Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Baráttukonan Erna var rekin frá Bændasamtökunum: „Ég var óvinnufær í marga mánuði“

Baráttukonan Erna var rekin frá Bændasamtökunum: „Ég var óvinnufær í marga mánuði“

Erna Bjarna­dóttir hefur und­an­farna mán­uði verið áber­andi þar sem hún er for­svars­maður Facebook-hóps­ins Aðför að heilsu kvenna, sem er „gras­rót­ar­hópur til að mót­mæla aðför að heilslu kvenna“. Baráttan hefur vakið athygli þar sem barist fyrir því að leg­háls­sýni kvenna hér á landi verði rann­sökuð á Íslandi en ekki Danmörku eins og verið hefur síð­ustu mán­uði sem hefur orðið til þess að konur hafa beðið í nokkra mán­uði eftir því að fá nið­ur­stöður auk þess sem sum sýni eru ein­fald­lega ekki skoðuð vegna ákvarð­ana hér á landi. Þetta teng­ist því að um ára­mótin flutt­ust skimanir fyrir leg­hálskrabba­meini frá Krabba­meins­fé­lagi Íslands til Heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og síðan hafa málin verið í miklum ólsetri.

Hver er Erna Bjarna­dóttir?

„Ég ólst upp á bænum Stakk­hamri á Snæ­fells­nesi,“ segir hún en sjálfur Snæ­fells­jök­ull, sem segir í texta lags­ins að logi, blasir við frá bænum á björtum dögum. „Bæj­ar­stæðið er ofsa­lega fal­legt og útsýnið mikið. Það er langt á næstu bæi og á sumrin lék ég mér eig­in­lega bara við systur mína; við hittum eig­in­lega enga aðra krakka á sumrin nema þegar ætt­ingjar komu í heim­sókn.

Hún var  í heima­vist­ar­skóla alla sína grunn­skóla­göngu nema í tvo vetur.

„Það hefur haft áhrif á mörg börn að vera í heima­vist kannski heilan vetur nema blá­helgar og þetta er ósögð saga; það hefur ýmis­legt þrifst á heima­vist­ar­skólum sem maður myndi ekki sætta sig við í dag. Ég lenti ekki í neinu slæmu en ég held að það hafi mótað mig tölu­vert mikið að fara þessa leið. Mér gekk mjög vel í skóla og var síð­asta vet­ur­inn minn í skól­anum for­maður nem­enda­fé­lags­ins og sem slíkur hafði ég þau fríð­indi að mega sitja kenn­ara­fundi. En til þess að sitja fyrsta kenn­ara­fund vik­unnar, á mánu­dags­morgnum, þá var ekk­ert annað í boði en að ég yrði komin á sunnu­dags­kvöldi til að gista hjá kenn­ara sem bauð mér að gista í her­bergi hjá sér. Þannig að pabbi minn eða mamma lögðu það á sig oftar en einu sinni að keyra mig í skól­ann á sunnu­dags­kvöldi svo ég gæti verið á fundi með kenn­ur­unum á mánu­dags­morgni á meðan hinir krakk­arnir voru að koma í skóla­bílnum. Það er þessi stelpa sem fór af stað í „Aðför að heilsu kvenna“. Hún var alltaf að reyna að gera eitt­hvað fyrir aðra.“

Erna var 12 ára þegar hún kom til Reykja­víkur í fyrsta skipti.

„Sumum finnst það vera skrýtið þar sem ég er ekki eldri en þetta.“

Hún hlær.

„Ég átti ekk­ert erindi til Reykja­víkur og mér fannst það vera mikið ævin­týri þegar ég kom þangað í fyrsta skipti. Ég man þegar ég kom niður Árbúns­brekk­una í þetta fyrsta skipti og sá þessa borg. Við fórum svo að sjá Fló á skinni í leik­húsi en það var sýn­ing sem var búin að ganga mjög lengi; þetta var ein­hver lang­lífasta sýn­ing í Iðnó á þeim tíma.“

Einstæð móðir

Erna kynnt­ist ást­inni og eign­að­ist tvær dætur sem eru í dag 26 ára og 29 ára. Hún og faðir þeirra skildu og var hún ein­stæð móðir um tíma.

„Auðvitað var það erfitt. Ég held að það sé erfitt hjá öllu barna­fólki og ég satt að segja öfunda ekki barna­fólk í dag. Mér finnst vera gríð­ar­lega mikið lagt á ungt fólk með börn; það sækir vinnu og ekur börn­unum í leik­skól­ann eða skól­ann og fer svo með þau í íþróttir eða til læknis. Umferðin er mikil og það er verið að lækka hámarks­hrað­ann. Svo er það fæð­ing­ar­or­lofið. For­eldrar hafa þurft að skipta níu mán­uðum á milli sín þannig að annað for­eldrið má mest taka sex mán­uði. Ég mátti taka sex mán­uði þegar ég átti dætur mínar og hvað hefur þá áunn­ist? Ekkert. Þær eru ekk­ert betur settar í dag en ég var. Ég vil sjá gerða könnun hjá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði á því hvernig fólk hagar töku fæð­ing­ar­or­lofs og þá skal ég taka sam­talið hvernig best sé að koma þessu fyrir. Þetta gæti orðið næsta mál hjá mér. Ég hef mik­inn áhuga á mál­efnum fjöl­skyldna og mér finnst að við þurfum að hlúa meira að fjöl­skyld­unum,“ segir Erna sem burt­séð frá „Aðför að heilsu kvenna“ var um tíma for­maður Heims­sýnar sem voru sam­tök um að Ísland yrði ekki aðili að Evr­ópu­sam­band­inu.

„Þetta er allt í sjálf­boða­vinnu.“

Óvinnufær í marga mánuði

Erna er hag­fræð­ingur að mennt og vann í 20 ár hjá Bænda­sam­tök­unum. Hún segir að erf­ið­asta lífs­reynslan og mesti skafl­inn sem hún hefur farið í gegnum í líf­inu sé þegar henni var sagt upp haustið 2019.

„Ég held að það hafi allir verið sam­mála um að ég hafi staðið mig mjög vel í starfi hjá þeim. Ég held að það sé í lagi að segja það einu sinni; ég hef ekki gert það opin­bera­lega áður. Þeir voru að spara. Byrjuðu á mér. Og létu meira að segja standa í Bænda­blað­inu í októ­ber sama ár að eftir að aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra, mér, hefði verið sagt upp eða eitt­hvað í þá átt þá væru sam­tökin lík­ari öðrum hags­muna­sam­tökum. Þau létu hag­fræð­ing­inn, sér­fræð­ing í land­bún­að­ar­póli­tík, hætta til að verða lík­ari öðrum hags­muna­sam­tökum. Það stendur í Bænda­blað­inu í októ­ber sama ár.“

Hún er spurð um áhrif upp­sagn­ar­innar.

Þögn.

„Ég var óvinnu­fær í marga mán­uði.“

Þögn.

Hún vill ekki fara nánar út í þetta.

„Þetta var bara mikil lífs­reynsla. Ég er ekki til­búin til að gera þetta að neinu umfjöll­un­ar­efni í fjöl­miðlum. Það var heil­mikið verk­efni að fara í gegnum þetta og síðan bauðst mér að vinna fyrir Mjólk­ur­sam­söl­una, þar sem ég starfa sem verk­efna­stjóri, og það var mín björg má segja.“

Þetta var höfnun og ekk­ert annað

Erna er spurð hvað hún hafi lært af þess­ari reynslu.

„Ég lærði rosa­lega margt svo sem hvað góð sam­skipti og gott fólk getur gert krafta­verk fyrir aðra. Kannski er ég að reyna að end­ur­gjalda það að ein­hverju leyti hvað varðar „Aðför að heilsu kvenna“.

Hún er spurð hvort þessi reynsla sitji enn í henni.

„Já, hún gerir það. Þetta var höfnun og ekk­ert annað. Það hendir alla sem verða fyrir atvinnu­missi með þessum hætti. Svo er það mis­mun­andi eftir því hver á í hlut hvernig spil­ast úr því.“

Það var svo í febr­úar 2021 sem Erna stofn­aði Facebook-hóp­inn „Aðför að heilsu kvenna“. Hún seg­ist sjálf ekki hafa reynslu af frumu­breyt­ingum í leg­hálsi en að í sínum huga sé þetta rætt­læt­is­mál hvernig komið er fram við konur í dag í þessu máli sem og ákveðin van­virð­ing. 

„Ég ólst upp við þessa sam­fé­lags­vit­und í sveit­inni þar sem maður ætti að leggja sitt af mörkum en í sveit­inni voru kven­fé­lög sem voru að aðstoða nærum­hverfi sitt í sjálf­boða­vinnu og þar oru líka ung­menna­fé­lög.“

Barátta Ernu í þessu máli og ann­arra hefur skipt miklu máli og virð­ist málið vera að þok­ast í rétta átt. Erna fund­aði í morgun með Umboðs­manni Alþingis ásamt Gunnari Bjarna Ragn­ars­syni, for­manni Félags krabba­meins­lækna og vara­for­manns lækna­ráðs Lands­spít­al­ans. Heil­brigð­is­ráð­herra hefur nú stigið fram og ákveðið að hefja und­ir­bún­ing að flutn­ingi þess­ara sýna aftur til lands­ins.

„Ætli þetta þýði ekki að bar­áttan hafi borið árangur. Ég held að það sé stutta útgáfan. Ég lít þannig á þetta að bar­átta gras­rót­ar­innar, rödd almenn­ings, hafi náð í gegn og þannig borið árangur.“

ég er þakk­lát fyrir að vera þessi rödd almenn­ings

Erna seg­ist vera þakk­lát fyrir allt það góða fólk sem hefur hefur kynnst í þessu ferli og nefnir sér­fræð­inga og aðra sem hafa viljað leggja þessu mál­efni lið og hún nefnir líka allar kon­urnar sem hafa gengið í gegnum það að grein­ast með frumu­breyt­ingar og eru að ganga í gegnum það. 

„Ég finn bara þakk­læti og hvað það er mikið af góðu fólki. Það er frá­bær upp­lifun. Ég þakka öllum sem hafa lagt þessu mál­efni lið og ég er þakk­lát fyrir að vera þessi rödd almenn­ings sem hefur náð þessu fram. Ég er þakk­lát fyrir að hafa fengið þetta hlut­verk. Ég held ég eigi drjúgan þátt í því hvernig staðan er í dag; ég ætla ekk­ert að segja hver á hvað í því. Það eru margir fleiri sem líka eiga þar stóran hlut að máli. En ég held að það skipti máli að einsk­lingur hafi staðið í þessu sem er ekki hluti af þess­ari lækn­is­fræði­legu umgjörð eða stofna­naum­gjörð. Ég hef rætt mikið við þing­menn, sér­stak­lega þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar, og það gekk ekki hníf­ur­inn á milli okkar í því starfi.“

Erna tal­aði um stelpuna sem vill hjálpa. Hefur hún ekk­ert hugsað að gefa kost á sér? Fara í stjórn­mál? Berjast þar?

„Jú, ég á örugg­lega eftir að gera eitt­hvað. Ég er alveg vís með að láta til mín taka ein­hvers staðar. Ég myndi ekki segja að mér hafi ekki dottið í hug að gefa kost á mér.“

Hún vill ekki segja meira að svo stöddu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi