Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Stórveldadraumar lögmannsins breyttust í martröð – Fjölmiðlasaga Sigurðar G.

Stórveldadraumar lögmannsins breyttust í martröð – Fjölmiðlasaga Sigurðar G.

Fjöl­miðla­saga Sigurðar G. Guð­jóns­sonar lög­manns er æði skraut­leg. Hann hefur staðið í rekstri nokk­urra fyr­ir­tækja sem sum hafa farið illa. Upphaf þess að lög­mað­ur­inn lagði fyrir sig rfekstur fjöl­miðla var að hann var um tíma for­stjóri Norð­ur­ljósa, eig­anda Stöðvar 2 og Bylgj­unnar, sem þá voru í eigu Jóns Ólafs­sonar athafna­manns. Eftir að Jón Ásgeir Jóhann­es­son keypti fyr­ir­tækið árið 2004 var Sigurður rek­inn. En hann var kom­inn með bakt­er­í­una og þyrnum stráð veg­ferð hans um flóru íslenskra fjöl­miðla hófst.

Í apríl 2005 spurð­ist út að nýtt frí­blað væri í fæð­ingu. Það fylgdi frétt­inni að því væri ætlað að fara í grjót­harða sam­keppni við Frétta­blaðið sem á þessum tíma bar höfuð og herðar yfir aðra miðla á prent­mark­aði. Þarna bólaði á Sigurði G. DV sagði frétt af mál­inu en meintir aðstand­endur sóru af sér vænt­an­legan fjöl­miðil.

„Þú segir mér fréttir. Það er allur gangur á því hvort er eldur þar sem er reykur. Ég er ekki búinn að festa mig í neinu slíku,“ segir Karl Garð­ars­son, fyrr­ver­andi frétta­stjóri frétta­stofu Stöðvar 2 og þáver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í sam­tali við DV þann 12. apríl 2005.

Taldi blaða­maður DV, Jakob Bjarnar Grét­ars­son, sig hafa heim­ildir fyrir því að her manna ynni að stofnun blaðs­ins. Á meðal aðstand­enda voru sagðir þeir Karl Garð­ars­son og Sigurður G. Guð­jóns­son, lög­maður sem hafði áður hrökkl­ast úr starfi for­stjóra Norð­ur­ljósa, for­vera fjöl­miðl­aris­ans 365. Karl varð­ist fregna en Sigurður G. sagði blákalt að hann kann­að­ist ekki við neitt.

„Nei, ég hef ekki hug­mynd um það,“ sagði hann aðspurður um málið.

Annað kom á dag­inn 11 dögum síðar þegar til­kynnt um stofnun Blaðsins sem Karl Garð­ars­son rit­stýrði og Sigurður G. var sagður aðal­eig­andi að. Sigurður var stjórn­ar­for­maður útgáf­unnar sem bar heitið Ár og dagur. Þriðji eig­and­inn var Steinn Kári Ragn­ars­son, aug­lýs­inga­stjóri og núver­andi fram­kvæmda­stjóri DV. Sam­an­lagt fóru þre­menn­ing­arnir með 51 pró­sent hlut. Óljóst er hverjir voru bak­hjarlar útgáf­unnar en kvittur var uppi um að stór­kaup­mað­ur­inn Jón Helgi Jónsson, kenndur við Byko, væri þar.

Blaðið átti eftir að lifa í nokkur ár. Karl var í upp­hafi rit­stjóri. Í febr­úar 2006 tók Ásgeir Sverr­is­son blaða­maður við af Karli sem varð útgef­andi. Ferill Ásgeirs varð afar stuttur eða aðeins fimm mán­uðir. Lestur Blaðsins var dræmur og draum­ur­inn um að skáka Frétta­blað­inu varð stöðugt fjar­læg­ari. Það breytti ekki því að Blaðið tók aug­lýs­inga­tekjur frá Frétta­blað­inu. Í örvænt­ingu reyndu eig­endur Blaðsins að snúa frá tap­rekstr­inum og leitað var til þaul­reynds frétta­stjóra Frétta­blaðs­ins sem hafði verið í lyk­il­hlut­verki þegar blaðið reis hæst.

Sigurjón Magnús Egilsson tók til­boði Blaðs­manna og hóf störf í júlí 2006. Lestur Blaðsins rauk upp á tíma Sig­ur­jóns Magnúsar, sem reyndar varð aðeins nokkrir mán­uðir. Árang­ur­inn olli titr­ingi innan 365. Það sem virt­ist vera and­vana fætt frí­blað var skyndi­lega orðin ógn við sjálft Frétta­blaðið.

Sigurjón Magnús fékk þá til­boð frá Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, aðal­eig­anda 365, um að taka við rit­stjórn DV. Í því fólst að hann fékk ein­greiðslu sem nam um það bil 10 millj­ónum króna eftir skatta. Þá fékk hann eign­ar­hlut í DV og há laun. Hvarf hann fyr­ir­vara­laust frá Blaðinu eftir aðeins fimm mán­aða starf til að taka við hinu nýja starfi. Sigurður G. brást illa við og var Sig­ur­jóni hótað stefnu fyrir samn­ings­rof. Útgáfa DV greiddi á end­anum bætur vegna brott­hlaups­ins.

Trausti Haf­liða­son, frétta­stjóri Blaðsins, tók við rit­stjórn­inni af Sig­ur­jóni. Það varð aðeins til skamms tíma. Frum­herj­arnir seldu Árvakri stóran hlut í útgáf­unni vorið 2007 og nafni þess var breytt í 24 stundir. Árvakur fékk aðstoð­ar­rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, Ólaf Steph­en­sen, til að taka við starfi rit­stjóra Blaðsins. Breytt var um nafn nokkrum mán­uðum síðar og hét blaðið 24 stundir þar eftir.

Dánarvottorð dagblaðs

Ólafur ent­ist lengur í starfi en for­verar hans eða tæpt ár. Hann hætti vorið 2008. Við starfi hans tók Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir. Hún varð sjötti rit­stjór­inn á aðeins tveimur árum. Dauð­stríð 24 stunda var hafið. Sigurði hafði mis­tek­ist en shann slapp með skrekk­inn.

Fimm mán­uðum eftir að Gunn­hildur tók starf­inu var gefið út dán­ar­vott­orð. Blaðið sem átti að verða stór­veldi á Íslandi lifði ekki nema rúm­lega þrjú ár. 10. októ­ber 2008 var boðað að 24 stundir kæmu ekki oftar út. Vef­út­gáfa DV sagði frá mál­inu og boð­aði jafn­framt þau stór­tíð­indi á fjöl­miðla­mark­aði að Morg­un­blaðið og Frétta­blaðið væru að renna saman:

„Búið er að leggja niður 24 stundir og Morg­un­blaðið og Frétta­blaðið verða rekin saman. Nú stendur yfir starfs­manna­fundur í Hádeg­is­móum þar sem verið að kynna starfs­mönnum breyt­ing­arnar. Ekki er ljóst hversu mörgum verður sagt upp vegna þessa en sam­kvæmt heim­ildum DV eru það í kringum tutt­ugu manns“.

Himinhátt tap

Aðkoma Árvakurs að rekstri Blaðsins reynd­ist verða fyr­ir­tæk­inu gríð­ar­lega dýr­keypt. Áætlað var að upp­safnað tap af rekstr­inum væri langt á annan millj­arð króna. Þetta bætt­ist við annað tap Árvakurs sem leiddi til þess að Íslands­banki þurfti að afskrifa millj­arða króna til að gera fyr­ir­tækið rekstr­ar­hæft. Aldrei varð af sam­ein­ingu Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins sem enn berj­ast á mark­aði. 24 stundir hvíla aftur á móti í gröf sinni. Draum­ur­inn um stór­veldi á fjöl­miðla­mark­aði brást. Árvakur sat uppi með skell­inn.

Tímarit Fróða

Sigurður G. Guð­jóns­son var þó ekki af baki dott­inn með að taka þátt í fjöl­miðla­reksti. Hann keypti ráð­andi hlut í tíma­rita­út­gáfu Fróða sem hafði farið í gegnum kenni­tölu­skipti og var komin í eigu prenstsmiðj­unnar Odda. Sigurður og sam­starfs­fólk hans skiptu um nafn á útgáf­unni sem fékk nafnið Birtíngur. Látið var í veðri vaka að hann hefði lagt eigið fé í kaupin en seinna kom á dag­inn að Jón Ásgeir Jóhann­es­son athafna­maður hafði lánað honum 120 millj­ónir króna eða sem nam kaup­verð­inu. Eftir nokk­urra mán­aða stjórn á Birtíngi var Sigurði ýtt út og Hreinn Loftsson tók útgáf­una yfir. Enn brást draumur hans um að reisa stór­veldi á sviði fjöl­miðla.

Sigurður G, hafði hægt um sig næstu árin og hélt sig að mest við lög­manns­störf. Þó lagði hann út í fisk­eldi á sínum gömlu heima­slóðum í Dýra­firði. Fer ekki sér­stökum sögum af árangri hans þar og var fyr­ir­tækið selt. En svo dró til tíð­inda að nýju. Að þessu sinni ætl­aði lög­mað­ur­inn að byggja upp stór­veldu á rústum fjöl­miðla­veldis Björns Inga Hrafns­sonar. Hann tók yfir rekstur DV og tengdra miðla, ásamt Karl Garð­ars­syni. Fékk fyr­ir­tækið nafnið Frjáls fjöl­miðlun líkt og var á blóma­skeiði DV. Sem fyrr gekk lög­mann­inum illa að fóta sig í rekstr­inum.

Kvittur var uppi um að Björgólfur Thor Björg­ólfs­son væri bak­hjarl útgáf­unnar en Sigurður þrætti fyrir það haustið 2018 þegar Stundin innti hann eftir því hver veitti félag­inu lán. Talskona Björg­ólfs Thors og Novators, Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, neit­aði því einnig í svari til Stund­ar­innar í árs­loks 2017 að Björgólfur kæmi að fjár­mögnun DV og Frjálsrar fjöl­miðl­unar.

Annað kom á dag­inn því Stundin upp­lýsti síðar að Novator, félag auð­manns­ins Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, hefði verið eini lán­veit­andi og helsti bak­hjarl DV frá árinu 2017. Þetta kom fram í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins þar sem kaup Torgs ehf., félags­ins sem á Frétta­blaðið, á Frjálsri fjöl­miðlun, félags­ins sem á DV, eru sam­þykkt.

Stundin sagði frá því að í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hefði komið fram að félagið hafi glímt við mikla rekstarörð­ug­leika og rekstur þess hafi ekki verið sjálf­bær. Með þessu fékkst stað­fest að Björgólfur Thor greiddi fyrir tap­rekstur DV í gegnum félagið Dalsdal ehf. sem var að form­inu til í eigu Sigurðar G. Guð­jóns­sonar lög­manns. „Samkvæmt árs­reikn­ingum 2017 lán­aði svo Dals­dalur Frjálsri fjöl­miðlun 425 millj­ónir króna, sem átti að greið­ast til baka með árlegum 85 millj­óna króna afborg­unum 2018 til 2022. Stórum hluta láns­ins hefur þegar verið breytt í hlutafé,“ segir í Stund­inni. Þrátt fyrir him­inhá lán tókst ekki að reka fyr­ir­tækið og það fór í þrot með til­heyr­andi eft­ir­málum fyrkir aðstand­endur félags­ins.

Líklegt má telja að full­reynt sé með það að Sigurður lög­maður geti rekið fjöl­miðla. Hann hvarf af sjón­ar­svið­inu eftir gjald­þrot Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Hann steig dans­inn við helstu auð­menn Íslands. Fyrst var það Jón Ólafsson, svo Jón Ásgeir Jóhann­es­son, þá Jón Helgi Jónsson og loks­ins Björgólfur Thor. Þrátt fyrir þessa öfl­ugu bak­hjarla gekk fátt upp hjá Sigurði sem hefur látið lítið á sér bera und­an­farið og sinnir störfum sem lög­maður. Stór­velda­draumar hans hrundu hver um annan veran og end­uðu í martröð þegar Frjáls fjöl­miðlum fór yfir um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina