Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Æxlið sprakk inni í mér“ – Vignir berst bjartsýnn og óhræddur við fjórða stigs krabbamein

„Æxlið sprakk inni í mér“ – Vignir berst bjartsýnn og óhræddur við fjórða stigs krabbamein

Vignir Daðason, sem gengur undir nafn­inu Vigga Daða, ólst upp í Keflavík. Hann varð fyrir áfalli 10 ára gam­all sem mark­aði líf hans í ára­tugi og sauð reiðin í honum í 35 ár. Hann kynnt­ist sem ung­lingur vímu­efnum, var á yngri árum í ýmsum hljóm­sveitum og hann fór í með­ferð 2001 eftir að hafa átt langt „þurrk­tíma­bil“. Árið 2008 þegar efna­hags­hrunið varð lét hinn ómeð­höndl­aði alkó­hól­ismi á sér kræla og hrundi hann á huga, lík­ama og sál og upp­lifði kulnun. Vignir lærði síðan dáleiðslu­fræði í Banda­ríkj­unum og síðan hefur hann aðstoðað marga sem dáleið­ari. Í dag glímir Vignir við 4. stigs krabba­mein og elskar lífið.

Hann kom í heim­inn í Keflavík árið 1962 þegar Ray Charles söng I can’t stop lov­ing you, þegar Bobby Vinton söng Roses are red og þegar Elvis Presley söng Can’t help fall­ing in Love. Og svo sungu með­lim­irnir í The Duprees You belong to me.

Lífið gekk sinn vana­gang á Reykja­nes­inu þar sem eldar úr iðrum jarðar loga í dag og dreng­ur­inn spark­aði bolta og stund­aði skól­ann. Námið gekk vel framan af en svo breytt­ist allt.

„Ég var beittur mis­rétti þegar ég var 10 ára gam­all. Það gerði mig svo reiðan að ég var reiður í 35 ár. Ég eyddi 35 árum af ævi minni í að vera reiður út í einn ein­stak­ling. Ég hataði hann svo mikið að mig lang­aði til þess að drepa hann en það eina sem það gerði var að það drap mig meira og meira með hverjum deg­inum sem leið. Og allt í kringum mig sem ég snerti visnaði upp; það bara fjar­lægð­ist. Ég held að ég hafi ekk­ert verið sér­stak­lega leið­in­legur ein­stak­lingur en reiðin var mér fjötur um fót. Ég reyndi alltaf að halda and­liti og þykj­ast vera ein­hver annar en ég var. Fólk var með­vitað um það.“

Ég var beittur mis­rétti þegar ég var 10 ára gam­all. Það gerði mig svo reiðan að ég var reiður í 35 ár.

Vignir fór í sum­ar­búðir sum­arið sem hann var 10 ára og segir hann að starfs­maður þar hafi lamið sig, dregið sig upp við gadda­vírs­girð­ingu, og sé hann með ör á höfð­inu til minn­ingar um það, og síðan hafi starfs­mað­ur­inn dregið sig niður í mat­sal­inn og spurt hina krakk­ana hvort það ætti ekki að hafa hann í bandi fyrir utan eins og hina hundana.

Vignir segir að þetta hafi breytt sér. Þessi reynsla hafði áhrif á skóla­göng­una og hætti hann að nenna að læra. Svo fór hann að drekka 13 ára. Og skapið fór að versna. Allt fór að versna. Svo fór hann að reykja hass 15 ára en honum fannst hann ekki eiga við vanda­mál að stríða þar sem hann reykti bara á kvöldin og um helgar. Tíminn leið, hassið hætti að virka og þá tóku sterk­ari efni við. Hann er lærður húsa­smiður og vann í gegnum árin meðal ann­ars við húsa­smíðar og húsa­málun og svo kom hann reglu­lega fram sem söngv­ari með píanó­und­ir­leik á börum. Hann átti erfitt með að tolla í vinnu og skipti reglu­lega um vinnu­veit­anda. Hann fann fyrir kvíða og þung­lyndi eftir atvikið í sum­ar­búð­unum og það hafði áhrif á allt. Honum fannst hann almennt vera fórn­ar­lamb og allt vera öðrum að kenna. Vand­málin voru af ýmsum toga og nefnir hann að hann hafi meira að segja verið svo erf­iður í umgengni þegar hann var í hinum ýmsu hljóm­sveitum að stundum var hann bara einn eftir. Allir aðrir voru hættir. „Það glumdi í höfð­inu á mér lagið með Ríó tríó­inu „Allir eru að gera það gott nema ég“.“

Jú, árin liðu. Og neyslan jókst.

„Ég gat ekki drukkið áfengi. Ég varð svo fár­veikur af því.“ Hann reykti hass þegar hann var yngri eins og þegar hefur komið fram, svo tók amfetamín við og loks kókaín.

Svo gerð­ist eitt­hvað. Hann vildi hætta í dóp­inu. Það var árið 1984. Hann seg­ist hafa dreymt mörgum árum áður að hann myndi hætta í ákveðnum félags­skap það ár. Og svo varð.

„Ég lifði í ein­hverju sem heitir „ómeð­höndl­aður alkó­hól­ismi“ en ég fór ekki í neina með­ferð. Ég bara hætti. Ég hélt ég ætti ekki við vanda­mál að stríða; maður var bara að djamma. Svo hélt reiðin áfram eftir að ég hætti allri neyslu og svo kom neyslan af meiri krafti af því að ég hafði ekk­ert til þess að deyfa mig með lengur og einn góðan veð­ur­dag 12 árum síðar þótti mér það vera góð hug­mynd að fá mér; það er svo lýsandi fyrir hug­ar­farið sem alkó­hól­ism­inn til­einkar sér að það sé í lagi að fá sér núna af því ég var svo lengi búinn að vera þurr. Og þá fór ég í ennþá harð­ari neyslu og þannig var það í fjögur ár. Svo fædd­ist mér dóttir árið 2000 og þá breytt­ist líf mitt. Þá lang­aði mig til að breyt­ast og vera sá sem ég átti alltaf að vera; þá fann ég þessa knýj­andi löngun að vera þessi ein­stak­lingur sem var fæddur á jörð­ina til þess að hjálpa öðrum til að finna ljósið sitt.“

Og hann fór í með­ferð árið 2001.

Hann stóð á kross­götum í hrun­inu árið 2008. „Þá hrundi ég and­lega, lík­am­lega og ver­ald­lega. Ég var ekki í neyslu þá en með ómeð­höndl­aðan alkó­hól­isma. Ég hafði lent í mörgum minni­háttar slysum en lenti í mót­or­hjólaslysi árið 2003 sem var farið að banka veru­lega á dyrnar hjá mér og skert­ist starfs­orka mín í kjöl­farið. Ég tap­aði öllu sem ég átti og ég hef aldrei náð mér eftir það,“ segir Vignir sem hætti að borga reikn­inga í hrun­inu. „Ég var ekki í neinu standi til eins eða neins. Ég vissi ekki hvað væri að mér en það kall­ast „kulnun“ í dag. Og ég vissi alveg á þessum tíma hvað kvíði var. Og ég vissi alveg hvað ótti var. Ég var svo hræddur að ég þorði ekki að fara í göngut­úra heiman frá mér öðru­vísi en að taka sím­ann með mér ef ske kynni að ég dytti niður dauður en þá gæti ég kannski hringt í ein­hvern,“ segir hann og hlær. „Auðvitað var það svo heimsku­legt að það náði engri átt.“

Ég var ekki í neinu standi til eins eða neins. Ég vissi ekki hvað væri að mér en það kall­ast „kulnun“ í dag.

Dáleiðari

Oft er sagt að það sem fari upp fari svo aftur niður. Vignir fór niður, alla leið á botn­inn, en hann náði að krafla sig upp úr djúpum og myrkum brunn­inum; hann segir að hann hafi þurft að byrja upp á nýtt. Frá núlli. Hann fór í 12 spora sam­tök sem hann telur að hafi bjargað lífi sínu. Hann hafði áður verið með annan fót­inn í 12 spora sam­tök­unum en átt­aði sig á að ekk­ert hálf­kák dugði. Hann þurfti í ofaná­lag að breyta matar­æð­inu og huga mikið að and­legri heilsu sinni sem og lík­am­legri heilsu. Sú vinna stendur enn yfir.

Áður en hann náði almenni­lega að krafla sig upp úr brunn­inum djúpa og myrka hélt hann vestur um haf til að læra dáleiðslu­tækni sem hann lærði einnig hér­lendis. Hann kom síðan heim og opn­aði uppi á Ásbrú stofu þar sem hann bauð upp á ókeypis tíma. „Ekki vegna þess að ég væri svona frá­bær heldur lang­aði mig til að verða betri í því sem ég var að gera. Og þar af leið­andi gat ég hjálpað fólki og í senn sjálfum mér. Ég tók líka að mér á þessum tíma að kenna öldruðum leik­fimi og það gerði ég í tvö ár og fannst mér það vera æðis­legt.“

Vignir seg­ist hafa aðstoðað marga og þeir eru margir sem segja að Vignir hafi aðstoðað sig.

Svo kynnt­ist hann ást­inni aftur og á hann og sú barns­móðir hans þriggja ára gamla dóttur. Lífið virt­ist brosa við þeim. Svo kom skell­ur­inn árið 2019. Þá blasti við annar djúpur og myrkur brunnur.

Æxlið sprakk

„Ég ákvað árið 2016 að fara í alls­herj­artékk og láta kanna blóðið í mér og fleira. Þá kom í ljós að ég var með skerta nýrna­starf­semi í öðru nýr­anu. Það sem mér þótti und­ar­legt var að lækn­ir­inn skyldi ekki skoða þetta nánar eða senda mig til sér­fræð­ings.“ Svo leið tím­inn og Vignir var far­inn að fá bak­verki. „Mér var farið að svíða svo mikið í blöðr­unni einn dag­inn og ég var far­inn að vera í vand­ræðum með eðli­leg þvag­lát. Ég var sífellt að fara til læknis og vildi láta athuga hvort ég væri með þvag­færa­sýk­ingu eða hvort eitt­hvað annað væri að. Mér var alltaf meinað um það; mér var neitað um þá þjón­ustu sem ég vildi fá. Lækn­ir­inn lét mig í eitt skiptið bara frá sýkla­lyf. Ég kom hálfum mán­uði síðar og sagði að þessi sýkla­lyf væru ekk­ert að gera sig og að ég ætti enn við sama vanda­mál að stríða. Þá sagði hann að ég skyldi bera sveppakrem á skaufann á mér. Ég sagð­ist ekki vera með sveppa­sýk­ingu. Það end­aði með því að ég spurði hann hvort honum fynd­ist hann vera góður læknir og hann spurði á móti hvernig spurn­ing þetta væri. Ég svar­aði að það væri eðli­legt að ég spyrði því hann virt­ist ekki hafa hug­mynd um hvað hann væri að gera.

Ég fór síðan til ann­ars læknis sem veitti mér að lokum þjón­ustu sem ég hafði beðið um; þvag­færa­sýk­ing­ar­með­ferð en vildi í leið­inni láta athuga hvort ég væri með klamidíu eða lek­anda. Hann sagði að þetta væri stað­al­tékk. Ég fór undr­andi í þetta test og síðan var hringt í mig og mér sagt að ég væri hvorki með klamidíu né lek­anda. Ég sagði að það væri gott að vita það og spurði hvað hefði komið í ljós varð­andi þvag­færa­sýk­ingu. Mér var sagt að ég væri trú­lega ekki með slíka sýk­ingu.

Heim­il­is­lækn­ir­inn minn kom loks­ins úr veik­inda­leyfi og ég sagði honum þá rauna­sögu mína af þessum við­skiptum við þessa lækna sem mér fannst vera algjör­lega út úr kú. Ég var að glíma við brjósklos í háls­inum á mér í kjöl­far mót­or­hjólaslyss­ins og eftir sam­ræður okkar ákvað hann að ég færi á sterkan, bólgu­eyð­andi lyfjakúr sökum háls­meiðsla og er ég sann­færður um að það hafi bjargað lífi mínu því að að fjórum dögum liðnum hafði greini­lega komið gat á æxlið í öðru nýr­anu þannig að ég piss­aði svörtu. Það teng­ist trú­lega lyf­inu.“

Vignir seg­ist strax hafa farið á lækna­vakt­ina og hitt þar lækni sem vildi setja hann á sýkla­lyf eftir að hann léti athuga hvort hann væri með þvag­færa­sýk­ingu.

„Barns­móðir mín var ekki sátt við þetta og hún fór að leita að ein­hverjum lækni og fyrir ein­hverja guðsmildi fann hún lækni á einka­rek­inni stofu og þangað hringdi hún morg­un­inn eftir. Henni var sagt að það væri ekki laus tími fyrr en um einum og hálfum mán­uði síðar. Barns­móðir mín sagði að ég væri far­inn að pissa blóði og að ástandið væri alvar­legt. Konan í mót­tök­unni spurði um kenni­töl­una mína og þegar hún sá nafnið mitt sagði hún: „Er þetta Viggi Daða?“ Þá var þetta góð kunn­ingja­kona mín úr Keflavík og ég á henni í raun­inni lífið að þakka. Yndisleg mann­eskja. Hún hleypti mér örugg­lega fram fyrir ein­hvern annan eða að tími hafi losnað vegna þess að ég komst að sam­dæg­urs og tveimur dögum síðar var ég kom­inn í bráða­að­gerð á nýr­anu. Í stað­inn fyrir aðgerð sem átti að taka tvo og hálfan tíma þá var þetta átta stunda aðgerð af því að æxlið sprakk inni í mér. Það þurfti að kalla út aukalið og ég held að það hafi færri kom­ist að en vildu. Það var helj­ar­innar kaos og mér var ekki hugað líf. Það kom svo í ljós að ég hafði verið kom­inn með mein­varp í lifr­ina út frá nýr­anu þannig að ég var kom­inn með nýrna­krabba­mein í lifr­ina. Ég fór því í aðra aðgerð tveimur mán­uðum síðar og fór þá í raun einnig í bráða­að­gerð á lifr­inni. Hún átti að taka fjóra klukku­tíma en end­aði líka í átta klukku­tímum út af því að þeir þurftu að taka átta sentí­metra af lifr­inni og skáru í leið­inni á slagæð og missti ég 1,8 lítra af blóði. Mér var heldur ekki hugað líf í þess­ari aðgerð.

Mikið hrika­lega var ég svo þakk­látur mínum æðri mætti og því sem ég trúi að hafi komið mér í gegnum þetta og öllum þeim frá­bæru læknum sem við eigum sem eru virki­legir snill­ingar í því sem þeir eru að gera. Ég er þó ennþá að takast á við eft­ir­legu­kind af þessu öllu saman því ég er ennþá með tvö mein­vörp í lifr­inni sem komu í ljós í vor en mér hafði verið tjáð eftir seinni aðgerð­ina í hitti­fyrra að þetta væri allt búið. Ég væri bara hreinn.“

Vignir hefur frá því í vor farið í nokkrar lyfja­með­ferðir og hafa sumar tekið mikið á.

Ýmislegt hefur komið upp á og stuttu áður en við­talið var tekið kom í ljós að nýrað í Vigni er undir miklu álagi og að inn­kirtla­kerfið hafi rugl­ast. „Það er óþægi­legt að fá að vita að það sé meira álag á þessu eina nýra sem ég er með heldur en eðli­legt er en þegar maður horfir á það þá er það ósköp eðli­legt miðað við það sem á undan er gengið. Það má kannski segja að þetta séu óþægi­legar fréttir og auð­vitað vill maður helst ekki vera undir neinu álagi né að hafa óvissu í lífi sínu.“

Í stað­inn fyrir aðgerð sem átti að taka tvo og hálfan tíma þá var þetta átta stunda aðgerð af því að æxlið sprakk inni í mér.

Aukaverkanir

Mein­vörpin eru að sögn Vignis ekki skurð­tæk. „Þau eru á þannig svæði í lifr­inni; þetta er á blá­æða­svæð­inu og það væri hrein­lega ekki hægt að skera þau í burtu nema að það hefði jafn­vel slæm áhrif á lifr­ar­starf­sem­ina.“

Hann seg­ist ætla að kom­ast í gegnum þetta. „Ég veit að ég hefði ekki farið í gegnum allt hitt til þess að þetta yrði enda­stöðin mín.“

Hann seg­ist halda að horf­urnar séu ágætar. Auka­verk­anir hafa haft áhrif. „Það þarf að koma lík­am­anum á réttan stað til að kom­ast í gegnum síð­ustu lyfja­með­ferð­ina; að keyra lík­ams­starf­sem­ina á þann stað sem hún þarf að vera á því nú er ég á sterum sem keyra upp kortis­olið á eðli­legan máta,“ segir Vignir en nýlega var kortis­olið í honum komið niður í tvo en á að hans sögn að vera 500; þetta gerði það að verkum að hann svaf mest allan sól­ar­hring­inn á tíma­bili. „Það væri hægt að fixa kortis­olið á „no time“ með því að sprauta því í mig en ég myndi þá eðli­lega hrynja fljótt niður í því aftur þannig að ég er líka á sterum til að draga úr bólgum ef ein­hverjar bólgur hafa mynd­ast í lík­am­anum eða jafn­vel við heila­d­ingul­inn eða í skjald­kirtl­inum.“

Hann fer fljót­lega í mynda­töku og þá kemur í ljós hver staðan er. „Ég finn að það er mikil vinnsla í lík­am­anum. Ég finn að það eru mikil átök í lifr­inni.“

Vignir fær líf­tækni­lyf og segir hann að þau eigi að end­ur­ræsa allar frumur í lík­am­anum. „Allar frumur sem hafa hingað til verið að ráð­ast á krabba­meins­frum­urnar eru orðnar samdauna þeim; þær taka krabba­meins­fru­munum sem eðli­legum hlut í lík­am­anum þegar maður er búinn að vera með svona stórt æxli sem var búið að breiða úr sér yfir í lifr­ina. Það kall­ast 4. stigs krabba­mein. Það er fullt af fólki sem hefur lækn­ast af 4. stigs krabba­meini, sér­stak­lega í dag af því að lyfin eru orðin svo full­komin svo sem þessi líf­tækni­lyf sem end­ur­ræsa frum­urnar til þess að ráð­ast á krabba­meins­frum­urnar. Vanda­málið sem fylgir þessu er að það eru oft og tíðum svo miklar auka­verk­anir og þar með talið þessar auka­verk­anir sem ég er að takast á við svo sem lækkun kortis­ols og röskun inn­kirtla. Það hefur því þurft að gera smá­hlé á með­ferð­inni en lyfið er þó í þrjár vikur að vinna þannig að ég hef þrjár vikur til að koma mér á þannig stað að ég geti farið í fjórðu lyfja­með­ferð­ina; eftir það fer ég í tvær minni með­ferðir. Þetta er það sem lækn­arnir lögðu upp með í byrjun.“

Það er fullt af fólki sem hefur lækn­ast af 4. stigs krabba­meini.

Þegar sálin bognar

Líkamleg veik­indi eru eitt. Andlegt álag sem fylgir krabba­meins­grein­ingu, með­ferð og veik­indum er annað. Vignir ber sig vel en segir að vissu­lega komi þeir dagar þegar hann finnur fyrir ótta og van­líðan.

„Ég nýti mér bara þau tæki sem ég hef og ég fer þangað sem ég þarf að fara til að tala um þetta. Ég geymi þetta ekk­ert inni í mér. Ég ræði þessi mál og ef ég verð eitt­hvað óró­legur þá hugsa ég um eitt­hvað annað heldur en sjálfan mig.“

Hann segir að þegar hann greind­ist í fyrra skiptið hafi hann litið svo á að þetta væri eitt verk­efnið í við­bót sem hann þyrfti að takast á við. „Ég hef alltaf haft þá djúpu til­finn­ingu inni í mér að alveg sama hvað ger­ist þá veit ég að þetta verður í lagi. Ég er búinn að fara í gegnum svo margt að ég veit að þetta er ein hindr­unin á veg­inum sem ég er að fara yfir. Á meðan ég fæ að hjálpa öðrum og hugsa um aðra þá veit ég að það er séð um mig.“

Dauðinn. Vignir segir að hann hafi auð­vitað hugsað um dauð­ann þegar hann greind­ist í hitti­fyrra. Að hann gæti dáið úr krabba­meini. „Ég er mann­legur.“

Hvað er dauð­inn í huga hans? „Hann er bara færsla á til­vist.“

Hann seg­ist ekki ótt­ast dauð­ann. Manninn með ljá­inn. „Það sem ég glími við eru mínar egósentrísku hugs­anir. Þegar kemur að þeim tíma sem það ger­ist, þegar ég er að fara að deyja, þá byrjar egóið mitt að segja við mig að ég eigi að vera hræddur. Þá er það kannski það að ég vil ekki sleppa því sem ég á hér og ég held að það sé stærsti fakt­or­inn af því að ég á svo fal­legt líf sem ég er nýbú­inn að fá upp í hend­urnar.“

Þögn.

„Þætti mér það ekki vera súrt ef ég þyrfti að skilja við það þegar ég er loks­ins að þroskast?“

Tár á hvarmi.

Barns­móðir sem á hjarta hans sem og þriggja ára dóttir og önnur dóttir, 21 árs, sem hann á með annarri konu. Og svo er það sjö ára stjúp­sonur.

Hann seg­ist vita að það taki eitt­hvað við að lok­inni þess­ari jarð­vist. Segir að það sé erfitt að útskýra hvernig hann viti það. Segist vera næmur maður á sinn hátt.

„Ef fólk er í ljós­inu og þessum fag­ur­leika og lifir ekki í því að hugsa bara um rass­gatið á sjálfu sér þá verður það með­vitað um að það er svo miklu meira til heldur en nokkurn tím­ann þetta. Það er jafn­þunnt á milli og filman sem við setjum yfir mat­inn áður en við setjum hann inn í ísskáp.“

Hann seg­ist hafa lært að tala ekki um fólk heldur tala við fólk. „Ég hef líka lært að bregð­ast ekki við vegna þess að þegar ég bregst við sjúk­leika ann­arra þá verð ég sjúkur af þeim sjúk­leika og þá ber ég þann sjúk­leika inn í mínar aðstæður og ann­arra. Ég er ekk­ert nema við­brögð mín.“

Vignir seg­ist hafa mikla vernd. „Það er ég að leið­beina mér úr annarri til­vist en svo eru leið­bein­endur sem koma líka og hjálpa til ef meira þarf til.“

Hann dreymir um að ná heilsu. Lifa líf­inu. Og hann dreymir um að halda áfram því sem hann er að gera og geta hjálpað heim­inum til að sigr­ast á ótta; kom­ast úr egóinu sínu og inn í ljósið.

Hvað er ljósið í huga Vignis?

„Það er þetta guð­lega sem býr inni í okkur hvernig svo sem fólk upp­lifir það; hvernig svo sem það finnur þetta guð­lega inni í sér hvernig svo sem það birt­ist. Allt það fal­lega í kringum mann; börnin þegar þau brosa til manns og þegar maður sér ljós kvikna í úrvinda sálum og sér fólk skyndi­lega lifna við. Þetta er guð eins og ég skil hann. Lífið er ynd­is­legt.“

Söfnun stendur yfir fyrir Vigni og fjöl­skyldu og seg­ist hann vilja þakka þeim sem hugsa til sín, hafa styrkt hann á allan hátt og sent honum hlýjar kveðjur. 0544-26-062024 kt 2808902439

Ég er búinn að fara í gegnum svo margt að ég veit að þetta er ein hindr­unin á veg­inum sem ég er að fara yfir.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina