Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Nýtt líf Jóhönnu Guðrúnar eftir skilnað: Ferillinn í máli og myndum

Nýtt líf Jóhönnu Guðrúnar eftir skilnað: Ferillinn í máli og myndum

Eins og fram hefur komið þá hafa Stór­söng­konan Jó­hanna Guðrún Jóns­dótt­ir og eig­in­maður hennar, Davíð Sig­ur­geirs­son, ákveðið að enda hjóna­band sitt, en þau gift­ust í Garða­kirkju fyrir þremur árum.

Jóhanna Guðrún er ein dáð­asta söng­kona lands­ins og hefur verið lengi; byrj­aði sem barna­stjarna  og er ein af fáum slíkum sem náði að þróa og þroska feril sinn þannig að úr varð glæsi­legur fer­ill sem sér ekki fyrir end­ann á. Til dæmis varð hún í öðru sæti Eurovision árið 2009 með lag­inu Is It True?

Jóhanna Guðrún og fyrrum eig­in­maður hennar hafa unnið mikið sam­an, en Davíð er þræl­magn­aður tón­list­ar­maður og afar fjöl­hæfur; frá­bær gít­ar­leik­ari og út­setj­ari og þá hefur hann verið kór­stjórn­andi með miklum glans.

Hjón­in hafa verið áber­andi hvort á sínu sviði en líka unnið mikið sam­an. Jó­hanna Guðrún þykir ein af fram­úrsk­ar­andi söng­kon­um lands­ins og hef­ur hún tekið þátt í ýms­um æv­in­týr­um eins og að keppa fyr­ir Íslands hönd í Eurovi­son. Svo söng hún hinn ódauð­lega smell Baggal­úts, Mamma þarf að djamma, sem all­ar ein­hleyp­ar mæður lands­ins og reyndar bara allir sungu há­stöf­um á skemmti­stöðum lands­ins.

Jóhanna Guðrún „lauk grunn­skóla í Set­bergs­skóla í Hafn­ar­firði og fór svo í Flens­borg en hætti fyrir stúd­ents­próf, ég hafði svo mikið að gera í tón­list­inni að ég átti nóg með það. Menntun er auð­vitað mik­il­væg en í tón­list­ar­brans­anum snýst málið frekar um reynslu og getu.“

Jóhanna Guðrún er hörku­tól sem hefur farið langt í tón­list­inni, en ekki bara vegna hæfi­leik­anna, heldur líka vegna hörkunnar, því hún hefur verið gigt­ar­sjúk­lingur alla sína ævi.

„Ég þekki lítið annað en vera með verki ein­hvers staðar í lík­am­anum. Ég er þó ekk­ert sér­stak­lega góð í hvíla mig, finnst það mjög leið­in­legt – ekki getur maður setið og „borað í nefið“ allan dag­inn, ég nenni því ekki. það er kannski minn Akki­les­ar­hæll hvað ég er eirð­ar­laus. Ég fæ bein­línis sam­visku­bit ef ég sest niður og horfi á sjón­varpið eða les í bók – mér finnst þá að ég ætti að vera að gera eitt­hvað annað,“ sagði hún á sínum tíma í við­tali við gigt.is

Varðandi gigt­ina þá segir Jóhanna Guðrún að „ég hugsa að ég hafi alla tíð verið með gigt. Ég hall­ast að því að þetta hafi byrjað í mag­anum. Sumar rann­sóknir sýna að slíkt ger­ist, byrji í mag­anum en fari svo út í ónæm­is­kerfið. Ég var  „maga­barn“, grét mikið og for­eldrar mínir fóru með mig í alls­konar rann­sóknir. Það var meira að segja tekið á víd­eó­band hvernig ég grét og grét á kvöldin og næt­urnar.

Hún fædd­ist í Danmörku en „við flutt­umst heim til Íslands þegar ég var tveggja ára. Bjuggum fyrst í fal­legri íbúð í Drápu­hlíð­inni, þaðan á ég mínar fyrstu minn­ingar. Í Set­bergið fluttum við svo þegar ég var átta ára – síðan hef ég verið Hafn­firð­ingur – ekki þó Gaflari.

Þegar fólk heyrir að ég sé með liða­gigt spyr það gjarnan: „Er þér þá illt í lið­unum?“ – En það er svo margt fleira sem fylgir. Ég fæ stundum mjög háan hita, skelf öll og þótt ég sé ekki greind með vefja­gigt þá verð ég aum í vöðv­unum. Svona köst standa yfir­leitt ekki mjög lengi því það eru komin svo marg­vís­leg lyf sem slá á þessi ein­kenni. Það er þannig með gigt­ina að maður ber veik­indin ekki utan á sér. Ég lít ekki út fyrir að vera lasin. Auk þess reyni ég alltaf að bera mig vel, ég haltra til dæmis ekki þótt ég sé að drep­ast í fót­unum af bólgum. Ég er mikið á háum hælum þegar ég er að syngja en ég finn fyrir afleið­ing­unum næstu daga. Þá er ég slæm í bak­inu, það er blettur á mjó­bak­inu á mér þar sem ég hef ekki til­finn­ingu í húð­inni. Og oft er ég með stans­lausan bak­verk. En ég er heppin að hafa söng­inn, hann er mín guðs­gjöf. Ég gæti ekki unnið að jafn­aði milli átta og fimm á dag­inn, ég væri of lasin til þess. En í starfi mínu sem söng­kona get ég „tjaslað mér saman“ og gert það sem ég þarf að gera. Ég þekki mín tak­mörk og fer ekki út fyrir þau.“

Jóhanna Guðrún segir að hún gleymi gigt­inni þegar hún er á svið­inu:

„Mér líður vel á svið­inu, þar er ég með allt á hreinu og finnst eðli­legt að vera. Sárs­auk­inn eig­in­lega hverfur upp á sviði þegar adrena­línið „kikkar“ inn. En mér finnst skrítið að fara á tón­leika hjá öðrum, finnst ég vera vit­lausu megin við sviðið og fer því frekar sjaldan. Mér finnst gaman að syngja flestar teg­undir tón­listar, svo sem Kán­t­rýmúsik, elska stórar ball­öður og rokkið finnst mér æðis­legt. Þetta hefur kannski verið ókostur því fólk vill gjarna flokka mann í eitt­hvert hólf. Ég passa í nokkuð mörg hólf, þannig séð.“ Svo er bara að sjá hvað tím­inn leiðir í ljós varð­andi feril þess­arrar glæsi­legu og frá­bæru söng­konu – von­andi heyrum við sem fyrst og sem mest í henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum