Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurður G.: „Forsetaparið lét sér í léttu rúmi liggja þó ráðsmaðurinn hafi beitt konu ofbeldi“

Sigurður G.: „Forsetaparið lét sér í léttu rúmi liggja þó ráðsmaðurinn hafi beitt konu ofbeldi“
Sigurður G. Guð­jóns­son

Stjörnu­lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son lætur móðan mása á Facebook-síðu sinni og að þessu sinni tekur hann fyrir Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands og eig­in­konu hans, Elízu Reid:

„For­setap­arið tók virkan þátt í því að tryggja ráðs­manni sínum áfram­hald­andi starf á Bessa­stöðum. Parið lét sér í léttu rúmi liggja þó ráðs­mað­ur­inn hafi beitt unga konu ofbeldi og hún hrak­ist úr starfi sem hún naut. Ætli parið hafi fylgst með líðan hennar og afkomu eftir að hún hrökkl­að­ist úr starfi?“ spyr Sigurður og bætir við:

„For­setap­arið lét sem vind um eyru þjóta athuga­semdir stað­ar­hald­ar­ans á Bessa­stöðum þegar það upp­lýsti um end­ur­komu ráðs­manns­ins; ráðs­manns­ins sem beitt hafði stað­ar­haldar­ann og konu hans ofbeldi í Par­ís­ar­ferð, og sýnt af sér sér­kenni­lega hátt­semi utan við hús hjón­anna á Bessa­stöðum.

Ráðs­mað­ur­inn fékk að sönnu áminn­ingu; fór í leyfi og kom svo aftur til starfa eins og ekk­ert væri, þar sem for­setap­arið fann sig ekki í því að segja ráðs­mann­inum upp vegna hags­muna fjöl­skyldu hans.“

Hann segir að „for­setap­ar­inu var sama um hags­muni stað­ar­hald­ar­ans og fjöl­skyldu hans. Þau voru jú bara þolendur ofbeldis! Hverjir voru þessir hags­munir fjöl­skyldu ger­and­ans sem par­inu var svo mikið í mun að vernda? Var það rekstur eig­in­konu ráðs­manns­ins frá heim­ili þeirra á Bessa­stöðum á ferða­þjón­ustu fyrir ferða­menn einkum frá Kína?

Var það kannski eitt­hvað annað sem komið hafði upp á Bessa­stöðum og ekki þoldi dags­ins ljós?“

Spurn­ingar Sigurðar eru stórar og greini­legt að hann telur að for­seta­hjónin hafi óhreint mjöl í poka­horn­inu:

„Getur verið að ráðs­mað­ur­inn hafi haft vit­neskju um ólög­mæta hátt­semi emb­ætt­is­manns í starfs­liði for­seta? Getur verið að emb­ætt­is­mað­ur­inn hafi látið ráðs­mann­inn afhenda sér til eigin afnota vín í eigu for­seta­emb­ætt­is­ins? Slík hátt­semi kann að vera refsi­vert auðg­un­ar­brot, ef sönn er. Getur verið að for­set­inn hafi haft spurnir af vín­töku úr kjall­ar­anum og því ákveðið fórna stað­ar­hald­ara í stað ráðs­manns í þeirri von að aldrei yrði spurt um ólög­mæta með­ferð á víni emb­ætt­is­ins?“

Og að lokum, þetta:

„Nú er spurt var vín tekið með ólög­mætum hætti úr vín­kjall­ara Bessa­staða og vissi for­set­inn um það? Rétt­lætið á Bessa­stöðum virkar fremur sem rang­læti og ger­enda­með­virkni for­setap­ars­ins þykir ekki frétt­næm! Merki­legt nokk!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi