Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Blaðamenn DV lýsa áreitni, andlegu ofbeldi og hótunum vegna fréttar um liprunarbréf Jakobs Frímanns

Blaðamenn DV lýsa áreitni, andlegu ofbeldi og hótunum vegna fréttar um liprunarbréf Jakobs Frímanns
Mynd/skjá­skot: Rúv

„Ákveðin tíma­mót urðu á fjöl­miðla­ferli okkar beggja í lið­inni viku þegar sett var af stað her­ferð til að reyna að þagga niður umfjöllun DV um Jakob Frímann Magn­ús­son, odd­vita Flokks fólks­ins.“

Svo hljóðar upp­haf nýbirtrar greinar DV, eftir Björn Þor­finns­son, rit­stjóra DV og Erlu Hlyns­dóttur, aðstoð­ar­rit­stjóra blaðs­ins. Greinin er merkt sem yfir­lýs­ing blaðs­ins og tit­ill­inn er: „Beittu barni til að stöðva frétt“.

Liprunarbréfið – utanríkisráðuneytið kannaði ekki sannleiksgildi tillögunnar

Umfjöllun DV um Jakob Frímann, sem vísað er í, snýst um mál þar sem hann er sagður hafa beitt utan­rík­is­ráðu­neytið blekk­ingum í mars á síð­asta ári, til þess að liðka fyrir því að barn kæm­ist inn í landið þar sem faðir þess er búsettur. Faðir barns­ins er, sam­kvæmt heim­ildum DV, vinur Jakobs Frímanns.

Jakob Frímann bað utan­rík­is­ráðu­neytið um að útbúa svo­kallað liprunar­bréf í fyrr­nefndum til­gangi, án vit­neskju eða aðkomu móður þess, en hún er for­sjárað­ili barns­ins.

Utan­rík­is­ráðu­neytið kann­aði ekki sann­leiks­gildi þess sem fram kom í til­lögu Jakobs Frímanns. Í henni kom meðal ann­ars fram að móð­irin væri sam­þykk beiðn­inni, málið væri barna­vernd­ar­mál og að Jakob sjálfur væri skyld­menni barns­ins, sem á ekki við rök að styðj­ast. Það tók ráðu­neytið aðeins nokkra klukku­tíma að afgreiða málið og gefa út form­legt, stimplað liprunar­bréf að for­skrift Jakobs Frímanns.

Jakob Frímann er fyrrum starfs­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, en hann starf­aði til að mynda sem sér­stakur menn­ing­ar­full­trúi í sendi­ráði Íslands í London.

Þegar móðir barns­ins komst að þessu leit­aði hún til lög­fræð­ings, sem sendi bréf á ráðu­neytið í mars­lok síð­asta árs og krafð­ist skýr­inga á mál­inu. Að sögn DV voru við­brögð ráðu­neyt­is­ins dræm í upp­hafi en eftir að hafa verið beitt þrýst­ingi greip ráðu­neytið til aðgerða og aft­ur­köll­uðu bréfið. Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur síðan beðist afsök­unar á mál­inu og ítrekað þá afsök­un­ar­beiðni.

Tveggja sólarhringa áreitni

Eftir að hafa haft sam­band við Jakob Frímann vegna máls­ins segj­ast þau Björn Þor­finns­son og Erla Hlyns­dóttir hafa orðið fyrir áreitni, and­legu ofbeldi og hót­unum af hálfu fólks nátengdu Jakobi Frímanni, sem þau segja for­dæma­laust á löngum fjöl­miðla­ferli þeirra beggja.

„Í kjöl­farið hófst tveggja sól­ar­hringa áreitni í garð okkar beggja, Björns en þó aðal­lega Erlu, þar sem mark­miðið var að koma í veg fyrir að þessi frétt myndi nokkurn tím­ann birt­ast. Okkur voru gerðar upp ann­ar­legar hvatir, reynt að láta okkur fá sam­visku­bit yfir því að vera að eyði­leggja póli­tískan feril Jakobs og ekki síður þau mik­il­vægu mál­efni sem hann væri að berj­ast fyrir. Við vorum bein­línis beitt and­legu ofbeldi og okkur hótað því að birt­ing frétt­ar­innar myndi hafa afleið­ingar fyrir okkur per­sónu­lega,“ segir í yfir­lýs­ingu þeirra.

Þau segja æðstu stjórn­endur útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins einnig hafa verið beitta bæði blekk­ingum og þrýst­ingi til að koma í veg fyrir birt­ingu frétt­ar­innar.

„Alvar­leg­ast af öllu var sú fyr­ir­lit­lega aðferð að láta barnið, sem statt var erlendis hjá föður sínum og hefði aldrei þurft að vera upp­lýst um frétt­ina eða að málið tengd­ist því, var látið hringja ítrekað í Erlu auk þess sem bréf í nafni þess voru send á stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins. Þar var okkur blaða­mönnum gefið að sök að ætla að velta okkur upp úr for­ræð­is­mál­inu og eyði­leggja líf barns­ins.“

Í kjöl­far alls þessa segj­ast þau Björn og Erla hafa fundið sig nauð­beygð til að til­kynna málið til Barna­vernd­ar­yf­ir­valda.

Elíta Íslands hættulegri blaðamennskunni en verstu glæpamennirnir

Björn og Erla segj­ast bæði í gegnum feril sinn hafa fjallað um það sem að flestra mati myndi flokk­ast undir hættu­leg­ustu glæpa­menn Íslands. Það sé þó elíta Íslands, hinir hátt settu og áhrifa­miklu í þjóð­fé­lag­inu, sem lík­leg­astir séu til að reyna að hafa áhrif á og koma í veg fyrir umfjöllun. „Þetta eru ríka fólkið, fína fólkið, fræga fólkið.“

Þau segj­ast hafa öll gögn í hendi og ef þau telji sig þurfa að verja sig frekar verði þau gögn birt.

„Við teljum að nú sé ekki lengur þörf heldur nauð­syn –  nauð­syn að íslenskir blaða­menn segi opin­ber­lega frá þeim þögg­un­ar­til­burðum, áreitni og ofbeldi sem þeir verða fyrir í starfi. Aðeins þannig getum við þró­ast áfram sem upp­lýst lýð­ræð­is­sam­fé­lag þar sem allir sitja við sama borð,“ segir að lokum í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina