Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aktu Taktu lækkar verð á frönskum: Jói svarar kalli neytenda

Aktu Taktu lækkar verð á frönskum: Jói svarar kalli neytenda

Í kjöl­far fréttar Mannlífs um óánægju neyt­enda með verð og skammta­stærð á frönskum kart­öflum hjá Aktu Taktu, hefur veit­inga­stað­ur­inn nú brugð­ist við og lækkað verð á frönskum.

„Takk kær­lega fyrir ábend­ing­una og inn­leggið. Stefna okkar Gleðip­inna er að hámarka upp­lifun við­skipta­vina með því að leggja höf­uð­á­herslu á gæði matar og þjón­ustu. Og hluti af því að fylgja þeirri stefnu er að hlusta á við­skipta­vini okkar.“

Svona hefst svar Jóhann­esar Ásbjörns­sonar, tals­manns og eins eig­enda Gleðip­inna, við gagn­rýni Agnars Kára­sonar, sem vakti athygli á mál­inu og lýsti yfir óánægju sinni með veit­inga­stað­inn á Facebooksíðunni Brask og brall.is. Fyr­ir­tækið Gleðip­innar eiga og reka Aktu Taktu.

Svona var skammt­ur­inn á Aktu taktu sem ollu óánægju við­skipta­vinar.

Jóhannes heldur áfam:

„Í fyrsta lagi þá vil ég taka fram að í þessu til­felli þá fékkst þú afgreiddan of lít­inn skammt af frönskum. Og það eru mann­leg mis­tök sem eru alfarið á okkar ábyrgð.“

„Í öðru lagi þá hafði þessi ábend­ing þín þau áhrif að við ræddum saman, við eig­endur Gleðip­inna og stjórn­endur Aktu Taktu, og ákváðum að lækka verðið á stökum frönsku­skömmtum. Við erum sam­mála þér að þau verð stinga í stúf við almenna verð­lagn­ingu Aktu Taktu þar sem við viljum trúa því að við­skipta­vinir fái mikið virði fyrir það sem þeir greiða fyrir, bæði hvað varðar magn og gæði. Þar má sem dæmi nefna Fjarkann sem er vin­sælasta fjöl­skyldutil­boðið okkar, fjórir ost­borg­arar eða Aktu Taktu borg­arar + franskar og 2l af Coke á 3.999 kr,“ segir í svari Jóhann­esar.

Breytt verð Aktu Taktu á stökum frönsku­skömmtum eru eft­ir­far­andi:

Lítill skammtur lækkar úr 679 krónum í 599 krónur.

Miðlungs skammtur lækkar úr 999 krónum í 799 krónur.

Stór skammtur lækkar úr 1399 krónum í 1199 krónur.

Jóhannes, eða Jói eins og hann er oft­ast kall­aður, segir breyt­ingu á verð­lagn­ing­unni taka gildi strax, þó veit­inga­stað­ur­inn eigi eftir að prenta nýja mat­seðla. „Þið takið vilj­ann fyrir verkið,“ segir Jói.

Neyt­endur geta á þessu séð að það borgar sig svo sann­ar­lega að láta vita og vekja athygli á hlutum sem þeim þykir ábóta­vant hjá veit­inga­stöðum og versl­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina