Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Leyniskjöl um lánamál Framsóknarflokksins: Dularfullar skuldir flokksins á silfurfati milli banka

Leyniskjöl um lánamál Framsóknarflokksins: Dularfullar skuldir flokksins á silfurfati milli banka

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur síð­ustu ár glímt við nokkur fjár­hags­vand­ræði, sem einnig á við um fleiri stjórn­mála­flokka. Það er hins­vegar úrlausn þeirra vand­ræða, veð­setn­ing og lán­tökur, sem vekja sér­staka athygli í til­felli flokks­ins. Skuldir flokks­ins hafa verið færðar á silf­ur­fati á milli banka án þess að sýni­legt sé hvaða rök eru þar að baki fyrir lána­drottn­ana.

Samkvæmt gögnum sem Mannlíf hefur undir höndum er slóð skulda- og lána­mála Fram­sókn­ar­flokks­ins sér­kenni­leg. Athygli vekur að lánin sem Framsókn hefur fengið frá inn­lendum við­skipta­bönkum er úr öllu sam­hengi við fyr­ir­greiðslur sem stjórn­mála­flokkar njóta almennt í íslensku banka­kerfi.

Í skjöl­unum má sjá að Arion banki tók yfir lán Fram­sókn­ar­flokks­ins frá Kviku banka og Spari­sjóði Aust­ur­lands árið 2019. Ekki er auð­velt að koma auga á hald­bær rök fyrir þeirri ákvörðun út frá við­skipta­legum sjón­ar­miðum.

Stuttu áður en Arion banki tók Fram­sókn­ar­flokk­inn upp á arma sína, fékk flokk­ur­inn annað lán upp á 15 millj­ónir frá Spari­sjóði Aust­ur­lands. Láns­tím­inn náði ekki heilum mán­uði áður en Arion banki tók lánið yfir ásamt lán­inu frá Kviku banka. Slíkt verður að telj­ast í besta falli óvenju­legt.

Það er ein teng­ing milli Kviku banka og Arion banka sem vekur sér­staka athygli. Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfason starf­aði hjá hvorum bank­anum um sig einmitt þegar umræddir bankar skrif­uðu upp á lán fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn. Ásgeir Helgi er bróðir Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra í núver­andi rík­is­stjórn. Hann var yfir fyr­ir­tækja­sviði Kviku banka frá árinu 2015 fram til árs­ins 2019. Frá 2019 hefur hann sinnt starfi aðstoð­ar­banka­stjóra Arion­banka og verið fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs.

Láns­upp­hæð­irnar eru háar og kjörin góð. Þegar Arion banki tekur skuldir Fram­sóknar við Kviku banka og Spari­sjóð Aust­ur­lands yfir er það gert með 70 milljón króna láni bank­ans til flokks­ins, á þriðja veð­rétti. Það er sér­stakt að stór við­skipta­banki eins og Arion banki sætti sig við að lána svo háa fjár­hæð á svo lágan veð­rétt. Það er svo ein­ungis nokkrum dögum síðar að gefið er út umboð til veð­setn­ingar eignar félags í meiri­hluta­eign Fram­sókn­ar­flokks­ins, á fast­eign að Hverf­is­götu 33, þar sem flokk­ur­inn hafði aðsetur lengi vel.

Arion banki tók yfir lán frá Kviku

Málið er sér­stakt meðal ann­ars vegna þess að lausnin sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur fengið, fyrst frá Kviku banka árið 2017 og svo með yfir­töku láns­ins frá Arion banka árið 2019, er eins og áður sagði úr sam­ræmi við þá stefnu sem gengur og ger­ist hjá við­skipta­bönk­unum og svo vegna þess að lána­kjörin eru sér­lega hag­stæð og bank­inn ein­ungis með þriðja veð­rétt.

Tíma­línan:

2017 – Veð­skulda­bréf fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn er gefið út af Kviku banka í júní árið 2017.

Veð­skulda­bréf, Kvika, f.hl.
Veð­skulda­bréf, Kvika, s.hl.

2018 – Þann 15 febr­úar árið 2018 var gefin út yfir­lýs­ing vegna við­auka, sem gaf Einari Gunnari Ein­ars­syni, þáver­andi fram­kvæmd­ar­stjóra Fram­sókn­ar­flokks­ins, fullt umboð fyrir hönd flokks­ins til að skuld­binda hann fyrir 50 milljón króna skulda­bréfi hjá Kviku banka.

Yfir­lýs­ing v. við­auka

2019 – Tilkynnt er um að Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfason hafi verið ráð­inn aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka þann 8. júlí 2019.

2019 – Spari­sjóður Aust­ur­lands veitir Fram­sókn­ar­flokknum lán upp á 15 millj­ónir króna á 4. veð­rétti þann. 25. nóv­em­ber 2019. Spari­sjóður Aust­ur­lands var þá á eftir ALF spari­sjóði, sem var á 1. og 2. veð­rétti og Kviku banka á 3. veð­rétti. Þetta lán Spari­sjóðs Aust­ur­lands stóð ein­ungis í nokkra daga, áður en Arion banki gerði lánið upp við spari­sjóð­inn.

Trygg­ing­ar­bréf, Spari­sjóður Aust­ur­lands

2019 – Stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins veitir Helga Hauki Hauks­syni fullt og ótak­markað umboð til að stofna til lána­við­skipta við Arion banka þann 19. des­em­ber 2019.

Umboð fram­kvæmda­stjórnar til Helga Hauks Hauks­sonar

2019 – Arion banki veitir Fram­sókn­ar­flokknum 70 milljón króna lán á 3. veð­rétti. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gerir með því láni upp skuld flokks­ins við Kviku banka og Spari­sjóð Aust­ur­lands.

Veð­skulda­bréf, Arion banki, f.hl.

2019 – Stjórn Skúla­garðs ehf., félags sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á meiri­hluta í, gefur út umboð til veð­setn­ingar vegna lán­töku, þar sem Helga Hauki Hauks­syni er veitt fullt og ótak­markað umboð til að veð­setja eign Skúla­garðs að Hverf­is­götu 33 vegna lána­við­skipta Fram­sókn­ar­flokks­ins við Arion banka.

Umboð til veð­setn­ingar, Skúla­garður

Erfitt er að skýra ákvörðun Arion banka að taka yfir skuldir Fram­sókn­ar­flokks­ins við Kviku banka út frá við­skipta­legum sjón­ar­miðum. Síðustu ár hefur vilji við­skipta­bank­anna til að lána stjórn­mála­flokkum verið tak­mark­aður, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs. Sömu­leiðis er það ráð­gáta hver ástæða láns­ins frá Spari­sjóði Aust­ur­lands var. Það er auka­snún­ingur sem erfitt er að sjá við­skipta­leg rök fyrir, enda var lánið gert upp af Arion banka minna en mán­uði síðar.

Ekki náð­ist í Helga Hauk Hauksson, fram­kvæmda­stjóra Fram­sókn­ar­flokks­ins, við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina