Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Frosti um föðurmissi og endalok Harmageddon: „Stundum skjálfandi og grátandi inni í stúdíói“

Frosti um föðurmissi og endalok Harmageddon: „Stundum skjálfandi og grátandi inni í stúdíói“
Frosti Logason

Frosti Logason og Þorkell Máni Pét­urs­son eru hættir með útvarps­þátt­inn Harma­geddon á X-inu 977 en síð­asti þátt­ur­inn var sendur út í morgun. 14 ár eru liðin síðan þeir byrj­uðu með þátt­inn.

„Þetta hefur svo sem staðið til nokkuð lengi og þetta er svo­lítið langur tími á sama stað,“ segir Frosti. „Við vorum búnir að und­ir­búa hvernig við ætl­uðum að slíta þessu einn góðan veð­ur­dag í svo­lít­inn tíma og við ákváðum að þessi tíma­punktur yrði í lok kosn­inga­bar­átt­unnar. Við höfum fjallað um fimm alþing­is­kosn­ingar á þessum tíma sem við höfum verið með Harma­geddon en þátt­ur­inn hefur að öðrum þræði verið mjög póli­tískur í gegnum tíð­ina þannig að þetta var fínn enda­punktur. Ég hef verið að starfa á öðrum miðlum hjá Sýn und­an­farin ár og hef fundið mig mjög vel í sjón­varp­inu og ætla að ein­beita mér meira að því núna.“

Frosti hefur starfað á X-inu frá árinu 1999 og Máni frá árinu 1997. „Það stóð aldrei til að við yrðum svona lengi á X-inu 977. Þetta er auð­vitað stöð unga fólks­ins og við höfðum engan áhuga á að verða ein­hverjir gamlir karlar á slíkum miðli; kannski ekki enda­laus eft­ir­spurn eftir því. Við erum þess vegna fegnir að vera að ljúka þessu núna á þessum tíma­punkti. Það hefur gengið ótrú­lega mikið á á þessum tíma bæði í þætt­inum og í einka­lífi okkar þannig að þetta er orðið gott.“

Þegar Frosti er spurður hvað standi upp úr varð­andi Harma­geddon segir hann það vera for­rétt­indi að hafa verið með dag­legan útvarps­þátt þar sem tekin voru fjögur til sex við­töl á hverjum degi, fjalla um þjóð­fé­lags­mál og vera í þeirri stöðu að geta kallað inn í við­töl alla þá við­mæl­endur sem þeim datt í hug. „Það hafa afskap­lega fáir sagt „nei“ við okkur. Við höfum örugg­lega tekið við­töl við alla þing­menn á þessum tíma.“

Við höfum fjallað um fimm alþing­is­kosn­ingar á þessum tíma sem við höfum verið með Harma­geddon en þátt­ur­inn hefur að öðrum þræði verið mjög póli­tískur í gegnum tíð­ina þannig að þetta var fínn enda­punktur.

Óvirkur alkóhólisti

Frosti nefndi að mikið hefði gengið á bæði í þætt­inum og í einka­líf­inu.

„Við Máni höfum eign­ast fjóra stráka.“ Frosti eign­að­ist tvo og Máni tvo. „Og við erum búnir að nefna syni okkar í höf­uðið á hvor öðrum; ég á strák sem heitir Máni og Máni á strák sem heitir Frosti. Við höfum upp­lifað alls konar hæðir og lægðir á þessum tíma; alls konar per­sónu­legar krísur og jafn­vel verið á stundum skjálf­andi og grát­andi inni í stúd­íói á milli við­tala þegar hlust­endur urðu þess ekki varir án þess að ég fari nákvæm­lega út í hvað var að ger­ast á þeim tíma. Lífið hefur bara verið að ger­ast á sama tíma og Harma­geddon hefur verið í loft­inu.“

Frosti hætti að drekka á þessum tíma. „Áður en það gerð­ist var ég oft í vanda staddur með neysl­una.“ Hann fór í með­ferð.

„Til að hætta að drekka þurfti ég að fara í ótrú­lega mikla sjálfs­skoðun; það að stunda stöðuga sjálfs­skoðun er eitt­hvað sem óvirkir alkó­hólistar þurfa að leggja stund á. Það er auð­vitað mik­ill lær­dómur í því. Maður var áður í miklum hroka og fastur í eigin hug­myndum og það víkkar sýn manns á allt lífið þegar maður fer að ein­beita sér að því að bæta sjálfan sig en ekki vera stöðugt að gagn­rýna aðra. Það er stóri lær­dóm­ur­inn sem maður fær úr þess­ari 12-spora vinnu.“

Áður en það gerð­ist var ég oft í vanda staddur með neysl­una.

Áfallameðferð

Frosti segir að það erf­ið­asta sem hann hefur upp­lifað sé þegar faðir hans lést eftir að hafa lent í bílslysi. „Það var rosa­legur skellur og það tók mörg ár að vinna úr þeim til­finn­ingum. Ég er á þeim stað í dag að mín áföll hafa ein­hvern veg­inn öll verið yfir­stíg­an­leg á end­anum og ég hef tamið mér það við­horf að það sé alltaf ein­hver sem hefur það verra en maður sjálfur.“

Hann seg­ist hafa unnið sig í gegnum áfallið sem tengd­ist föð­ur­miss­inum meðal ann­ars með mik­illi 12-spora vinnu og sam­tals­með­ferðum hjá fjöl­skyldu- og fíkni­ráð­gjöfum. „Ég fór í áfalla­með­ferð mörgum árum eftir að pabbi dó og þá fór ég að vinna í þessu. Það var ótrú­lega mik­il­vægt og hjálp­aði mér mikið.“

Ég fór í áfalla­með­ferð mörgum árum eftir að pabbi dó og þá fór ég að vinna í þessu.

Frosti seg­ist líta á dauð­ann sem enda­lok. „Ég trúi ekki á upp­risu eða annað líf. Kon­fús­íus sagði að allir menn eigi tvö líf og að seinna lífið byrji þegar þeir gera sér grein fyrir því að það er bara eitt líf. Ég held mikið upp á þetta spak­mæli og það er svo­lítið síðan ég gerði mér grein fyrir því að þetta líf er það eina sem maður fær og að það er í raun og veru allt of stutt. Það hefur haft mikil áhrif á lífs­við­horf mitt að lífið er stutt og það er bara eitt tæki­færi.“

Og Frosti ætlar að nýta þetta tæki­færi vel.

Talið berst að ást­inni en Frosti kvænt­ist eig­in­konu sinni á afmæl­is­degi föður síns, 31. jan­úar á þessu ári. Hann hefði þá orðið átt­ræður. „Það sem gefur mér mest í líf­inu er að eign­ast og ala upp börnin mín og eiga góða fjöl­skyldu.“ Hjónin eiga tvo syni, fimm ára og þriggja mán­aða. „Þetta hefur maður lært síðan maður sleppti hrok­anum en ég hélt áður að ég væri ósigr­andi. Ástin er kraft­mesta afl jarð­ar­innar og það sem límir lífið saman ein­hvern veg­inn. Auðvitað er ást mik­il­vægt hrá­efni til þess að búa til börn og það er mik­il­vægt að ala þau upp saman í ást og kær­leika. Við værum með full­komið þjóð­fé­lag ef öll börn myndu alast upp í algerri ást og kær­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ