Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Níddust á hundi Gunnhildar við Hagkaup í Spönginni: „Þetta mál verður ekki látið kyrrt liggja“

Níddust á hundi Gunnhildar við Hagkaup í Spönginni: „Þetta mál verður ekki látið kyrrt liggja“

Það var í gær­kvöldi sem Gunn­hildur nokkur og hundur hennar lentu í miður skemmti­legri reynslu.

„Það er með mik­illi sorg, reiði og von­brigðum sem ég pósta hér inn,“ skrifar Gunn­hildur inn í hverf­is­hóp Graf­ar­vogs­búa á Facebook.

„Fyrr í kvöld þurfti ég að stoppa stutt í Hagkaup Spöng og var á göngu með svarta labrador­hund­inn minn. Ég batt hund­inn minn fyrir utan á meðan, en þess má geta að hann er hvers manns hug­ljúfi og blíður bæði við dýr og menn. Hann dillar vana­lega skott­inu, kemur og heilsar og elskar gott klapp þegar hann hittir fólk.“

Þegar Gunn­hildur var á leið aftur heim ásamt hund­inum sínum, stoppar hana maður og segir henni að 13 til 14 ára gamlir drengir hafi verið að níð­ast á hund­inum meðan hún skrapp inn í búð­ina. Meðal ann­ars hafi drengirnir haldið hund­inum niðri svo hann hafi ekki geta varið sig.

„Ef hund­ur­inn væri ekki með jafn góða skap­gerð og raun ber vitni og hefði varið sig, er þó ekki að spyrja að leikslokum þar sem dýr­unum er alltaf kennt um í þannig til­fellum. Þrátt fyrir að verið sé að kljást við hreina og klára ill­girni eins og þessa.“

Gunn­hildur óskar eftir vitnum sem geta gefið henni frek­ari upp­lýs­ingar um málið.

„Einnig óska ég eftir að tala við þennan góða mann sem stopp­aði mig, en hann var á stórum jeppa, er veiði­maður og á sjálfur labrador­hunda. Hann má endi­lega senda mér skila­boð. Ég er afar þakk­lát fyrir að hann hafi látið mig vita og fyrir að hann hafi stoppað þá og látið þá vita að þetta væri ekki í lagi (sem á ekki að þurfa að ger­ast þar sem svona hlutir eiga ekki að ger­ast).“

Drengirnir voru sirka 13 til 14 ára, einn var mögu­lega með rauð­leitt hár, annar var klæddur í stóra úlpu og sá þriðji var á peys­unni, mögu­lega 66 gráður norður peysa.

Segir Gunn­hildur allar upp­lýs­ingar vel þegnar. „Ég vil einnig ná tali af for­eldrum ef þeir eru hér inni þar sem þetta mál verður ekki látið kyrrt liggja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina