Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Telja söluna á HS Veitum ólöglega: „Alvarlegt brot á lögum sem varðar hagsmuni bæjarbúa“

Telja söluna á HS Veitum ólöglega: „Alvarlegt brot á lögum sem varðar hagsmuni bæjarbúa“
Rósa Guð­bjarts­dóttir, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar

Minni­hlut­inn í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar telur sölu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar á hlut sínum í HS Veitum vera ólög­lega. Bærinn seldi í októ­ber 2020 15,42 pró­senta hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu HS Veitum og fékk bær­inn 3.5 millj­arða í sinn hlut fyrir söl­una.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Framsókn mynda meiri­hluta bæj­ar­stjórnar með sex menn kjörna, en minni­hlut­inn sam­anstendur af fimm kjörnum mönnum, tveir frá Sam­fylk­ingu, einn frá Viðreisn, einn frá Mið­flokki og einn frá Bæj­ar­list­anum.

Mannlíf hefur undir höndum gögn sem málið varða. Þar kemur meðal ann­ars fram að minni­hlut­inn telur „afgreiðslu máls­ins ekki hafa verið í sam­ræmi við ákvæði sveit­ar­stjórn­ar­laga nr. 138/2011 og máls­með­ferðin því ólög­leg og ákvörðun um sölu ógild­an­leg.“

Málið var mjög umdeilt á sínum tíma, en meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sóknar keyrðu í gegn söl­una þrátt fyrir hávær mót­mæli víða.

Í gögnum sem Mannlíf hefur undir höndum kemur fram að minni­hlut­inn bendir á marga þætti máls­ins þar sem hann telur söl­una hafa farið á svig við lög:

„Und­ir­rituð vilja vekja athygli ráðu­neyt­is­ins á vinnu­brögðum sem meiri­hluti Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks við­hafði við ákvarð­ana­töku varð­andi sölu á hlut Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar í fyr­ir­tæk­inu HS veitum hf. Við teljum afgreiðslu máls­ins ekki hafa verið í sam­ræmi við ákvæði sveit­ar­stjórn­ar­laga nr. 138/2011 og máls­með­ferðin því ólög­leg og ákvörðun um sölu ógild­an­leg.“

Einnig að minni­hlut­inn telji það skyldu ráðu­neyt­is­ins (Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið) „að bregð­ast við þess­ari ábend­ingu með því að hefja frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu skv. 112. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga, enda er um alvar­legt brot á lög­unum að ræða sem varðar mjög mik­il­væga hags­muni bæj­ar­búa í sveit­ar­fé­lag­inu.“

Samkvæmt gögn­unum er ljóst að meiri­hlut­inn undir stjórn Rósu Guð­bjarts­dóttur knúði málið í gegn án þess að taka til­lit til krafna minni­hlut­ans um að málið yrði sett í dóm kjós­enda:

„Bæj­ar­full­trúar þeirra fjög­urra flokka sem sitja í minni­hluta voru hvorki upp­lýstir um að sölu­ferli væri hafið né heldur að Kviku banka hefði verið falið að sjá um það ferli enda hafði málið ekki verið tekið til umfjöll­unar á vett­vangi bæj­ar­ráðs, né heldur bæj­ar­stjórnar. Þessar upp­lýs­ingar fengu bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans því fyrst að lesa um í fjöl­miðlum.“

Lögð var fram frá­vís­un­ar­til­laga frá minni­hlut­anum:

„Frá­vís­un­ar­til­lagan var felld með 6 atkvæðum full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar en 5 full­trúar Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Mið­flokks og Bæj­ar­lista greiddu atkvæði með til­lög­unni.“

Full­trúar Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Mið­flokks og Bæj­ar­lista lögðu þá til að málið yrði lagt í dóm hafn­firskra kjós­enda með íbúa­kosn­ingu og töldu til þess ríkar ástæður:

„Engin umræða sér stað um eign­ar­hlut Hafn­firð­inga í HS Veitum eða öðrum fyr­ir­tækjum fyrir kosn­ingar. Einka­væð­ing opin­berra orku­inn­viða var ekki á stefnu­skrá neins flokks. Enginn full­trúi í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar var kos­inn til að fram­fylgja þeirri stefnu. Í öðru lagi fengu þeir flokkar sem mynda meiri­hluta í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar færri atkvæði í síð­ustu kosn­ingum en flokk­arnir í minni­hlut­anum.

Þessi stað­reynd hlýtur að setja þá kröfu á meiri­hlut­ann að hann sýni auð­mýkt og sam­starfsvilja en keyri ekki umdeild mál í gegn í krafti eins manns meiri­hluta í bæj­ar­stjórn. Í þriðja lagi er um gríð­ar­lega umdeilt mál að ræða sem snertir bæði fram­tíð­ar­tekjur bæj­ar­ins og fyr­ir­komu­lag eign­ar­halds á orku­innviðum. Slíkt krefst mun meiri umræðu og sam­ráðs við bæj­ar­búa en raun ber vitni í þessu máli.“

Minni­hlut­inn bendir á mik­il­vægi eign­ar­hluta Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar í HS Veitum, sem hefur gefið vel af sér og segir að bæj­ar­ráð hafi ekki haft veld til að opna sölu­ferli á eign­ar­hlutnum:

„Þá er verð­mæti hlut­ar­ins svo mikið að ekki verður hjá því kom­ist að telja sölu hans fela í sér meiri háttar fjár­hags­lega ráð­stöfun. Það að bjóða eign til sölu og óska eftir til­boðum felur í raun í sér end­an­lega ákvörðun um sölu, hver sem verður svo hæst­bjóð­andi á end­anum. Það er því ljóst að bæj­ar­ráð hafði ekki vald til þess skv. 5. mgr. 35. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga að taka ákvörðun um að hefja sölu­ferli án þess að sam­þykki bæj­ar­stjórnar lægi fyrir.“

Sem stendur er málið á borði Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins, og verður fjallað meira um málið á morgun.

Hér að neðan má lesa minn­is­blað frá minni­hlut­anum í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar:

Hafn­ar­firði 5. nóv­em­ber 2020 Efni: Ábending um ástæðu til frum­kvæð­is­at­hug­unar vegna sölu Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar á hlut sínum í HS veitum hf. Um erindið

Und­ir­rituð vilja vekja athygli ráðu­neyt­is­ins á vinnu­brögðum sem meiri­hluti Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks við­hafði við ákvarð­ana­töku varð­andi sölu á hlut Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar í fyr­ir­tæk­inu HS veitum hf. Við teljum afgreiðslu máls­ins ekki hafa verið í sam­ræmi við ákvæði sveit­ar­stjórn­ar­laga nr. 138/2011 og máls­með­ferðin því ólög­leg og ákvörðun um sölu ógild­an­leg. Við teljum það skyldu ráðu­neyt­is­ins að bregð­ast við þess­ari ábend­ingu með því að hefja frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu skv. 112. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga, enda er um alvar­legt brot á lög­unum að ræða sem varðar mjög mik­il­væga hags­muni bæj­ar­búa í sveit­ar­fé­lag­inu. Mála­vextir Á fundi bæj­ar­ráðs þann 22. apríl sl. var málið fyrst tekið fyrir undir liðnum 2003508 – Covid 19, aðgerð­ar­á­ætlun. Meiri­hluti Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks sam­þykkti á þeim fundi að haf­inn verði und­ir­bún­ingur að sölu hluta­bréfa sveit­ar­fé­lags­ins í HS Veitum hf sem er 15,42% með það að mark­miði að hluta­bréf sveit­ar­fé­lags verði seld. Málið kom til umræðu á fundi bæj­ar­stjórnar 29. apríl en þar var til­lagan um sölu hluta­bréf­anna ekki borin undir atkvæði. Þann 7. maí birt­ist aug­lýs­ing í fjöl­miðlum um að hafið væri opið sölu­ferli á hlutnum þar sem fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Kviku, fyrir hönd Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar aug­lýsti eftir kauptil­boðum í 15,42% hlut bæj­ar­ins í HS Veitum. Bæj­ar­full­trúar þeirra fjög­urra flokka sem sitja í minni­hluta voru hvorki upp­lýstir um að sölu­ferli væri hafið né heldur að Kviku banka hefði verið falið að sjá um það ferli enda hafði málið ekki verið tekið til umfjöll­unar á vett­vangi bæj­ar­ráðs, né heldur bæj­ar­stjórnar. Þessar upp­lýs­ingar fengu bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans því fyrst að lesa um í fjöl­miðlum. Málið kom nokkrum sinnum til umræðu í bæj­ar­ráði eftir þetta, en engar frek­ari sam­þykktir voru gerðar í mál­inu. Í októ­ber sl. kom salan þrisvar sinnum til umræðu innan bæja­ráðs undir máls­núm­er­inu 2004407 – HS Veitur hf, sala hluta­bréfa, Á fundi ráðs­ins 22. októ­ber sam­þykkti meiri­hlut­inn fyr­ir­liggj­andi til­boð í hlut­inn og vís­aði til stað­fest­ingar í bæj­ar­stjórn. Full­trúar minni­hluta greiddu atkvæði á móti. Í bæj­ar­stjórn þann 28. októ­ber sl. var ákvörðun í mál­inu loks­ins borin undir atkvæði í bæj­ar­stjórn. Sú ákvörðun sneri ein­göngu að því, hvoru fyr­ir­liggj­andi til­boða ætti að taka. Meiri­hluti bæj­ar­stjórnar sam­þykkti sölu á hluta­bréfum Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar í HS Veitum hf. til HSV eign­ar­halds­fé­lags slfhf. sbr. fyr­ir­liggj­andi kauptil­boð. Fimm full­trúar minni­hlut­ans greiddu atkvæði á móti. Full­trúar minni­hlut­ans lögðu fram frá­vís­un­ar­til­lögu á bæj­ar­stjórn­ar­fund­inum þar sem bent var á að skv. 5. mgr. 35. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga væri bæj­ar­ráði heim­ilt að fulln­að­ar­af­greiða mál sem ekki varða veru­lega fjár­hags­lega hags­muni:

„Byggð­ar­ráði er heimil fulln­að­ar­á­kvörðun mála sem eigi varða veru­lega fjár­hag sveit­ar­sjóðs eða stofn­ana hans, enda sé eigi ágrein­ingur innan ráðs­ins eða við fram­kvæmda­stjóra um ákvörð­un­ina, en meðan sveit­ar­stjórn er í sum­ar­leyfi fer byggð­ar­ráð með sömu heim­ildir og sveit­ar­stjórn hefur ella.

Þá er heim­ilt að fela byggð­ar­ráði fulln­að­ar­af­greiðslu ein­stakra mála sem sam­kvæmt sam­þykktum sveit­ar­fé­lags hafa áður komið til umfjöll­unar ann­arra nefnda sveit­ar­stjórnar.“ Full­trúar minni­hlut­ans gerðu því þá kröfu að mál­inu yrði vísað frá þar sem ekki lá fyrir lög­legt umboð til að bjóða hlut­inn til sölu.

Frá­vís­un­ar­til­lagan var felld með 6 atkvæðum full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar en 5 full­trúar Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Mið­flokks og Bæj­ar­lista greiddu atkvæði með til­lög­unni. Full­trúar Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Mið­flokks og Bæj­ar­lista lögðu þá til að málið yrði lagt í dóm hafn­firskra kjós­enda með íbúa­kosn­ingu og töldu til þess ríkar ástæður:

„Í fyrsta lagi átti engin umræða sér stað um eign­ar­hlut Hafn­firð­inga í HS Veitum eða öðrum fyr­ir­tækjum fyrir kosn­ingar. Einka­væð­ing opin­berra orku­inn­viða var ekki á stefnu­skrá neins flokks. Enginn full­trúi í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar var kos­inn til að fram­fylgja þeirri stefnu. Í öðru lagi fengu þeir flokkar sem mynda meiri­hluta í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar færri atkvæði í síð­ustu kosn­ingum en flokk­arnir í minni­hlut­anum.

Þessi stað­reynd hlýtur að setja þá kröfu á meiri­hlut­ann að hann sýni auð­mýkt og sam­starfsvilja en keyri ekki umdeild mál í gegn í krafti eins manns meiri­hluta í bæj­ar­stjórn. Í þriðja lagi er um gríð­ar­lega umdeilt mál að ræða sem snertir bæði fram­tíð­ar­tekjur bæj­ar­ins og fyr­ir­komu­lag eign­ar­halds á orku­innviðum. Slíkt krefst mun meiri umræðu og sam­ráðs við bæj­ar­búa en raun ber vitni í þessu máli.“

Tillagan um að málið yrði lagt í dóm hafn­firskra kjós­enda var einnig felld með 6 atkvæðum full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar en 5 full­trúar Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Mið­flokks og Bæj­ar­lista greiddu atkvæði með til­lög­unni. Full­trúar Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Bæj­ar­lista og Mið­flokks lögðu einnig fram til­lögu um að mál­inu yrði frestað þar til fyrir lægi hver aðkoma rík­is­ins verði í grafal­var­legum rekstr­ar­vanda sveit­ar­fé­laga. Frest­un­ar­til­lagan var felld með 6 atkvæðum full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar en 5 full­trúar Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Mið­flokks og Bæj­ar­lista greiddu atkvæði með til­lög­unni.

Ágallar á máls­með­ferð

Telja verður að ákvörðun um að bjóða hlut­inn í HS Veitum til sölu, sé ákvörðun um mik­il­væga fjár­hags­lega hags­muni sveit­ar­fé­lags­ins. Um er að ræða gríð­ar­lega mik­il­væga inn­viði sveit­ar­fé­lags­ins sem skipta miklu máli fyrir hvern ein­asta bæj­ar­búa. Eign­ar­hlut­ur­inn hefur gefið af sér góðan arð sem hefur verið mik­il­vægt inn­legg í fjár­hag sveit­ar­fé­lags­ins.

Þá er verð­mæti hlut­ar­ins svo mikið að ekki verður hjá því kom­ist að telja sölu hans fela í sér meiri háttar fjár­hags­lega ráð­stöfun. Það að bjóða eign til sölu og óska eftir til­boðum felur í raun í sér end­an­lega ákvörðun um sölu, hver sem verður svo hæst­bjóð­andi á end­anum. Það er því ljóst að bæj­ar­ráð hafði ekki vald til þess skv. 5. mgr. 35. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga að taka ákvörðun um að hefja sölu­ferli án þess að sam­þykki bæj­ar­stjórnar lægi fyrir.

Enn fremur var tekin ákvörðun um það að fela Kviku banka að ann­ast sölu­ferlið. Sú ákvörðun var tekin án nokk­urrar umræðu í ráðum og nefndum bæj­ar­ins. Samn­ingur við Kviku um sölu­ferlið var gerður án nokk­urrar heim­ildar. Hvorki bæj­ar­stjórn né bæj­ar­ráð hafði falið bæj­ar­stjóra eða öðrum emb­ætt­is­mönnum að gera samn­ing við Kviku. Samn­ing­ur­inn skilar Kviku veru­legum fjár­hæðum í sölu­þóknun og ljóst er að samn­ing sem þennan má ekki gera án þess að hafa skýrt umboð frá bæj­ar­stjórn.

Við­eig­andi úrræði

Eins og áður segir er hér um að ræða svo stórt mál og svo mikla galla á máls­með­ferð að ráðu­neytið hlýtur að verða að taka málið til athug­unar skv. 112. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga. Eðli­leg­ast væri að ráðu­neytið ógilti ákvörðun um sölu á hlut Hafn­ar­fjarðar í HS Veitum, skv. 1. mgr. 114. gr., en að lág­marki gefi út álit um ólög­mæti söl­unnar skv. 2. tölul. 2. mgr. 112. gr.

Kær kveðja Jón Ingi Hákon­ar­son bæj­ar­full­trúi Við­reisnar Guðlaug Svala Krist­jáns­dóttir, bæj­ar­full­trúi Bæj­ar­list­ans Sigurður Þ. Ragn­ars­son, bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins Frið­þjófur Helgi Karlsson, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar Árni Rúnar Þor­valds­son, vara­bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi