Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dauðvona að safna fyrir heimferð: „Ég er með krabbamein í ristli, lifur, maga, brisi, og lungum“

Dauðvona að safna fyrir heimferð: „Ég er með krabbamein í ristli, lifur, maga, brisi, og lungum“

Hellen Linda Drake sem er betur undir skálda­nafn­inu Baugalín sendir frá sér neyð­ar­kall. Hún er föst á Englandi en hennar æðsta ósk er að fá að ljúka lífs­ferða­lag­inu sínu hér heima á Íslandi:

„Ég er stödd í mesta vanda lífs míns til þessa, en fyrir rúmu ári síðan fékk ég blóð­tappa í tá á vinstri fæti svo hún varð fjólu­blá. Stuttu seinna kom í ljós að ég var með krabba­mein í bein­merg sem lætur hann fram­leiða storkn­un­ar­frumur í linnu­lausu akkorði,“ segir Baugalín og bætir við:

„Ég var sett á krabba­meinslyfja­með­ferð sem lof­aði í fyrstu góðu; mark­miðið var að halda þessu blóð­krabba­mein í við­ráð­an­legu ástandi. En 25. ágúst kom í ljós að storkn­un­ar­frumum er að fjölga aftur og það versta er að krabba­meinslyfið hefur þá auka­verkun að ráð­ast á rauðu blóð­kornin og fækka þeim, sem var ein af ástæð­unum að ég var svona veik í sumar; í hjart­anu, móð og þreytt og með enda­lausa verki í kviðnum út af hægð­ar­tregðu sem eng­inn gat gefið skýr­ingu á.“

Hún segir að „krabba­meins­hjúkkan sendi mig til heim­il­is­læknis, og hann skrif­aði á mig ný hægða­lyf, stærri skammta sem virt­ust ekki breyta neinu. Svo síð­ast­liðið hálft ár hef ég gengið á milli þeirra án þess að þær gætu hitt mig né hjálpað mér og voru báðar orðnar nokkuð leiðar að ég hringdi svona oft. Svo núna 21. sept­em­ber þegar ég hringdi og bað heim­il­is­lækn­inn að hringja á sjúkra­bíl sagð­ist hún ekki gera það því hún væri búin að panta speglun á ristli eftir 2 vikur. Að ég ætti að bíða.“

Svar lækn­is­ins var mikil von­brigði fyrir Baugalín sem sagð­ist „grát­andi af ótta ekki geta beðið svo lengi því ég væri svo móð og kvalin að ég rétt gæti staul­ast fram á kló­sett og til baka aftur í rúmið. Svo hún varð önug og sagði mér að hringja í 999 ef ég teldi mig of veika til að bíða eftir ristil­speglun. Og ég gerði það. Var komin um kvöld­mat sama dag á Neyð­ar­mót­tök­una á St. Richard sjúkra­hús­inu í Chichester og eftir blóðprufu um miðja nótt kom í ljós að ég var hrein­lega að deyja.

Mér var fyrst gef­inn poki af pottasíum sem vant­aði í blóðið hjá mér og síðan fékk ég 2 poka af blóði því blóð­rauð­inn var hættu­lega lít­ill. Og viti þið, mér leið strax betur; mæðin og þreytan hurfu og hjart­sláttar­óreglan hvarf. Ég var siðan send í CT sneið­mynda töku og fékk þær hræði­leg­ustu fréttir sem hægt er að fá. Að ég væri með krabba­mein í ristli, lifur, maga, brisi, báðum lungum og í eitlum í kvið­ar­holi. Að það væri engin lækn­ing til. Og ég ætti eftir nokkrar vikur eða örfáa mán­uði.“

Baugalín var „sagt að fara heim og njóta þess tíma sem ég ætti eftir. Mér leið eins og örvænt­ingin gæti hvorki verið dýpri né mis­kunn­ar­laus­ari og sökk ofan í þá verstu líðan sem ég hef kynnst og kemst ekki enn upp úr henni. Dætur mínar eru að hjálpa mér heim. Þær eru að fá alþjóð­lega sjúkra­trygg­ingu því ég hef verið í Englandi í 20 ár og er því án nokk­urs réttar fyrstu 6 mán­uð­ina eftir heim­komu. Og af því ég hef verið veik þá hef ég lifað á sjúkra­dag­pen­ingum frá degi til dags og á ekk­ert sparifé.“

Staðan er svo slæm hjá Baugalín að hún á „hvorki fyrir litlum gámi né flugi, hvað þá pen­inga fyrir kistu og jarða­för – og örvænt­ing yfir því hefur ekki gefið mér stund­legan frið ofan á að ég er hrædd við að deyja og geta ekki fengið neins konar lækn­is­hjálp. Ég er samt svo lánsöm að vin­kona mín ætl­aði að lána mér her­bergi en það er oggu­lítið, aðeins 2x3x m sem ég var bara að frétta núna og þar er fyrir rosa­stórt rúm sem tekur víst allt gólf­pláss – svo ég get ekki tæmt úr gámnum inní það eða sett upp bóka­hill­urnar eða skrif­borðið mitt til að búa til vinnu­að­stöðu svo ég geti klárað, ef tím­inn verður nægur, eit­ur­blóma bók­ina mína og sitt­hvað annað og kannski fengið bók­ina útgefna áður en ég dey ef læknar á Íslandi gætu fundið krabba­meins lyfja­með­ferð sem hægir aðeins á þessu svo ég fengi kannski nokkra mán­uði auka­lega.“

Hún biðlar til fólks um aðstoð:

„Svo ef ein­hver býr svo vel að hafa her­bergi á lausu sem er ekki með rúmi eða hús­gögnum þá endi­lega látið mig vita. Því spyr ég hér í þeirri von að þeir sem lesa þetta og eru aflögu­færir að styrkja konu eins og mig fjár­hags­lega til að geta tekið gám til Íslands frá Englandi eins hratt og hægt er – þá eru allar upp­hæðir kær­komnar og safn­ast saman – Ég veit ég er að fara fram á mikið að fólk hjálpi mér en án hjálpar verður mér ekki mögu­legt að borga fyrir gám og flug­vél og allt hitt sem bíður mín á íslandi.

Þeir sem vilja hjálpa mér og eru aflögu­færir geta lagt inn á banka­reikn­ing minn á Íslandi sem er á mínu nafni – Hellen Linda Drake – hjá Íslands­banka á Suð­ur­lands­braut. Númerið á honum er 525 – 15 – 800660 og kennitala mín er 2906605999. Og takk til ykkar allra sem getið hjálpað. Ég met það mik­ils og meira en ég get fært í orð – Guð blessi ykkur öll“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi