Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ólöf Helga var rekin úr starfi hjá Icelandair: „Ég verð að viðurkenna að ég er náttúrlega mannleg“

Ólöf Helga var rekin úr starfi hjá Icelandair: „Ég verð að viðurkenna að ég er náttúrlega mannleg“
Ólöf Helga Adolfs­dóttir Mynd: Þórunn Hafstað.

Ólöfu Helgu Adolfs­dóttur, trún­að­ar­konu í hlað­deild Icelandair á Reykja­vík­ur­flug­velli, var sagt upp störfum í ágúst. Á þeim tíma var hún í við­ræðum um rétt­inda­mál starfs­fólks. Hún er 32 ára, ein­hleyp móðir – á 14 ára gamla dóttur – og seg­ist hafa áhuga á skot­veiði, stang­veiði, flugi úti­vist og ljós­myndun.

„Ég var búin að vera trún­að­ar­maður í rúm þrjú ár og und­an­farna mán­uði hafði ég verið að vinna í ákveðnum málum fyrir hlað­deild­ina, bæði varð­andi breyt­ingu á vak­taplani og svo færslu á ákveðnu starfi sem snýr að þjón­ustu við hreyfi­haml­aða far­þega. Í raun­inni var ég í sum­ar­fríi þegar ég fékk sím­tal frá yfir­mann­inum mínum um að ég ætti von á upp­sagn­ar­bréfi; ég var í heim­sókn hjá félögum mínum í hlað­deild­inni og var því á Reykja­vík­ur­flug­velli. Ég fékk svo upp­sagn­ar­bréfið í hend­urnar fimm dögum seinna. Ég hef ekki fengið neinar almenni­legar ástæður fyrir upp­sögn­inni nema að stöðv­ar­stjór­inn nefndi í sím­tal­inu við mig að um trún­að­ar­brest væri að ræða og til­kynnti svo sam­starfs­fólki mínu að mér hafi verið sagt upp störfum vegna alvar­legs trún­að­ar­brests. Ég fékk síðan þær upp­lýs­ingar á fundi að ástæða upp­sagn­ar­innar væru sam­skipta­erf­ið­leikar sem ég tel ekki nægi­lega góða ástæðu til þess að segja upp trún­að­ar­manni. Icelandair heldur því fram að þau hafi ekki vitað að ég væri trún­að­ar­maður þrátt fyrir að ég sé búin að vera í stöð­ugum sam­skiptum við þau sem trún­að­ar­maður síð­ast­liðna mán­uði vegna ágrein­ings­mál­anna sem ég nefndi áðan. Ef ég hefði aðgang að tölvu­póst­inum mínum hjá flug­fé­lag­inu þá gæti ég sýnt fram á það að Icelandair vissi sann­ar­lega að ég var trún­að­ar­maður og var í virkri rétt­inda­gæslu fyrir sam­starfs­menn mína. Svo var ég líka örygg­is­trún­að­ar­maður frá sept­em­ber 2020 og hefur Efling það stað­fest frá vinnu­eft­ir­lit­inu að ég var skráður örygg­is­trún­að­ar­maður.“

Icelandair heldur því fram að þau hafi ekki vitað að ég væri trún­að­ar­maðuR.

Ólöf Helga kann­ast ekki við trún­að­ar­brest í starfi og þegar hún er spurð um sam­skipta­erf­ið­leika segir hún: „Ég verð að við­ur­kenna að ég er nátt­úr­lega mann­leg og ég get alveg hafa verið pirruð ein­hvern tím­ann; sér­stak­lega þegar við vorum í miðri bar­áttu um rétt­inda­mál þar sem ég, fyrir hönd hlað­deild­ar­innar, mót­mælti því að Icelandair gæti ein­hliða ákveðið að setja ábyrgð á starfi sem til­heyrir annarri deild yfir á okkar deild bara af því að þeim datt það í hug. Starfið sem um ræðir er mik­il­vægt og allir starfs­menn sam­mála um mik­il­vægi þess að sinna því starfi vel en tækja­kostur til verks­ins er ekki við­un­andi og starfið í raun­inni hættu­legt. Ég tel þá hvernig breyt­ingin var til­kynnt hafa skapað mjög erfitt and­rúms­loft en það var gert þannig að yfir­menn ákváðu þessa breyt­ingu ein­hliða og kynntu hana þannig að starfs­fólk var kallað á fund og okkur til­kynnt að frá þeim degi væri starfið á okkar ábyrgð; ekk­ert sam­tal heldur bara ákvörðun sem yfir­menn tóku. Stöðv­ar­stjór­inn setti sig ítrekað inn í þetta mál með þeim hætti að banna þeirri deild sem að okkar mati ber ábyrgð á starf­inu að taka þátt í að sinna því þrátt fyrir að hennar yfir­maður hefði stað­fest við mig að á meðan deilur stæðu yfir þá yrði þetta starf unnið í sam­vinnu deild­anna tveggja. Ég er mann­leg og get átt erf­iða daga eins og aðrir en ég get ekki sam­þykkt það að ég sé erf­ið­ari í sam­skiptum en aðrir. Ég get að sjálf­sögðu ekki sagt að ég hafi aldrei verið hvöss við neinn en ekki þannig að það geti rétt­lætt það að mér sé sagt upp.“

Ólöf er spurð hvort kvartað hafi verið yfir henni vegna slíks. „Já, ég var búin að eiga sam­tal við yfir­mann þar sem við fórum yfir svona mál en það var ekk­ert þannig að ég hafi fengið skrif­lega áminn­ingu. Yfir­mað­ur­inn tók nokkur dæmi og sagði meira að segja að hlað­deildin væri orðin hrædd við mig en sam­starfs­menn mínir í hlað­deild­inni kann­ast ekki við það. Ég veit ekki hversu mik­ill sann­leikur er á bak við það sem yfir­mað­ur­inn sagði.“

Ég er mann­leg og get átt erf­iða daga eins og aðrir en ég get ekki sam­þykkt það að ég sé erf­ið­ari í sam­skiptum en aðrir.

Mynd: Þórunn Hafstað.

Stóð sig vel í vinnu

Ólöf seg­ist telja að ástæða upp­sagn­ar­innar sé að hún sem trún­að­ar­maður hafi verið að spyrna við fótum þegar reynt var að bæta verk­efnum á starfs­menn hlað­deild­ar­innar.

„Það er búið að fækka starfs­fólki í hlað­deild­inni um helm­ing á síð­ustu tveimur árum og svo er búið að vera að bæta á okkur störfum og þegar ein­hver sagði „nei“ þá virð­ist þetta hafa verið ein­faldasta lausnin hjá þeim. Á fundi um ástæður upp­sagn­ar­innar var margoft sagt að upp­sögnin sner­ist ekki um hvernig ég væri að vinna; ég væri að standa mig vel í vinnu og var mér sagt að þau væru mjög ánægð með mig sem starfs­mann. Þannig að ég get ekki séð neina aðra ástæðu heldur en störf mín sem trún­að­ar­maður en sem slíkur á ég að njóta verndar og þess vegna er þetta svo­lítið alvar­legt og mik­il­vægt mál til að skera úr um það og sýna Icelandair að þeir verði að fara eftir lögum og reglum. Þau hjá Icelandair hafa ekki getað sýnt fram á neitt um að ég hafi gerst brot­leg í starfi en áður en þau hefðu sagt mér upp hefði þurft að láta mig fá alla­vega skrif­lega áminn­ingu þar sem mér hefði verið gert það ljóst að ef ég lag­aði ekki hegðun mína, ef sam­skipta­erf­ið­leikar væru ástæða upp­sagn­ar­innar, þá ætti ég von á upp­sögn. En það var ekk­ert svo­leiðis.“

Þau hjá Icelandair hafa ekki getað sýnt fram á neitt um að ég hafi gerst brot­leg í starf.

Fer væntanlega fyrir Félagsdóm

Rúmur mán­uður er síðan Ólöfu var sagt upp og síðan þá hefur til dæmis lög­maður hennar og trún­að­ar­ráð Eflingar sent áskor­anir til Icelandair um að draga upp­sögn­ina til baka. „Við höfum verið mjög þol­in­móð í rúman mánuð að bíða eftir svörum frá þeim en við fengum loks­ins svör um að það ætti ekki að draga þessa upp­sögn til baka. Þá er ekk­ert annað í stöð­unni en að vekja athygli á þessu og fara svo með þetta fyrir Félags­dóm. Það er mik­il­vægt að það sé alveg á hreinu að þetta hafi verið ólög­legt.“ Búið er að opna vef­síðu um málið til stuðn­ings Ólöfu: https://www.efling.is/vid-stydjum-olofu-og-hladmenn-a-reykjavikurflugvelli/

Þá er ekk­ert annað í stöð­unni en að vekja athygli á þessu og fara svo með þetta fyrir Félags­dóm.

Eft­ir­far­andi ályktun var sam­þykkt á fundi trúnað­arráðs Eflingar síð­ast­lið­inn fimmtu­dag:

„Við, með­limir í Trúnað­arráði Eflingar, lýsum yfir fullri sam­stöðu með félaga okkar Ólöfu Helgu Adolfsdóttur trúnað­ar­manni Efl­ing­arfélaga í hlað­deild á Reykjavíkur­flug­velli.

Við mótmælum því að Icelandair hafi sagt henni upp störfum á sama tíma og hún var sem trúnað­ar­maður í við­ræðum við fyr­ir­tækið fyrir hönd vinnufélaga sinna um kjaramál þeirra. Slíkt er ólöglegt og felur í sér árás á félags­leg réttindi verkafólks.

Við lýsum einnig stuðn­ingi og sam­stöðu með baráttu vinnufélaga Ólafar. Þeir hafa slegið skjald­borg um hana og þannig um leið réttindi okkar allra. Þeir hafa sýnt Ólöfu að hún stendur ekki ein og við sýnum hlaðmönnum á Reykjavíkur­flug­velli að þeir standa ekki einir.

Atlaga að einum er atlaga að öllum.“

Starfs­menn í hlað­deild Icelandair á Reykja­vík­ur­flug­velli skrif­uðu 3. októ­ber undir yfir­lýs­ingu til for­stjóra Icelandair þar sem segir meðal ann­ars: „Í sam­tölum við fyr­ir­tækið um okkar mál höfum við haft öfl­ugan trún­að­ar­mann. Hún heitir Ólöf Helga Adolfs­dóttir og er félagi okkar og vinur. Hún hefur talað máli okkar og staðið vörð um rétt­indi okkar sam­kvæmt gerðum kjara­samn­ingi. Það er hennar hlut­verk og það hefur hún gert vel. Nú hafa stjórn­endur úr fyr­ir­tæk­inu þínu rekið Ólöfu úr vinnu. Að reka trún­að­ar­mann okkar Ólöfu úr starfi er árás á hana og á okkur alla.“ Síðar í yfir­lýs­ing­unni segir: „Við krefj­umst þess að Icelandair dragi til baka upp­sögn Ólafar Helgu Adolfs­dóttur.“

Að reka trún­að­ar­mann okkar Ólöfu úr starfi er árás á hana og á okkur alla.

Blaða­maður hafði sam­band við Icelandair sem sendi þetta svar: „Við hörmum að Efling hafi ákveðið að reka þetta við­kvæma mál í fjöl­miðlum. Stað­reyndin er sú að Icelandair er ósam­mála túlkun Eflingar og aðila greinir á um ákveðin efn­is­at­riði máls­ins, svo sem það að við­kom­andi starfs­maður hafi verið trún­að­ar­maður þegar til upp­sagnar kom. Að öðru leyti getum við því miður ekki rætt ein­stök starfs­manna­mál opin­ber­lega en þetta til­tekna mál er í far­vegi.“

Við hörmum að Efling hafi ákveðið að reka þetta við­kvæma mál í fjöl­miðlum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina