Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þórdís Lóa segir enga ákvörðun liggja fyrir um pálmatrén í Vogabyggð: „Málið er enn í vinnslu“

Þórdís Lóa segir enga ákvörðun liggja fyrir um pálmatrén í Vogabyggð: „Málið er enn í vinnslu“

„Málið var sett í raun­hæf­is­mat og það er þar enn þá. Það er algjör mis­skiln­ingur að það sé komið úr því,“ segir Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, for­maður borg­ar­ráðs og odd­viti Við­reisnar í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, um frétt þess efnis að búið sé að gefa grænt ljós á að flytja inn pálma­tré í gler­kúpli í Voga­byggð.

Um er að ræða lista­verk eftir þýska lista­mann­inn Karin Sander, sem sigr­aði í sam­keppni borg­ar­innar um úti­lista­verk í Voga­byggð árið 2019. Verkið, þá einkum og sér í lagi fram­kvæmd þess og kostn­aður við það, var gagn­rýnt nokkuð á sínum tíma.

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru meðal þeirra sem vildu að áformin yrðu end­ur­skoðuð. Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, hefur sömu­leiðis haldið á lofti mik­illi gagn­rýni á verkið.

Árið 2020 var ákveðið að fram færi raun­hæf­is­mat á verk­efn­inu.

Í fyrri frétt Mannlífs sagði að nið­ur­staða úr raun­hæf­is­mati lægi nú fyrir; ger­legt væri að rækta pálma­tré við þessar aðstæður, trjánum yrði fækkað úr tveimur í eitt og verk­efnið því form­lega sett á dag­skrá.

Það leið­rétt­ist hér með.

Ljóst er að verk­efnið hefur ekki enn fengið grænt ljós – heldur er það enn á gulu.

„Sú vinna er bara enn þá í gangi og þó það sé komin ein­hver mögu­leg nið­ur­staða í ein­hverjum vinnu­hópi, þá er ekki komin form­leg nið­ur­staða. Þannig að málið er enn í vinnslu. Ég er alveg búin að heyra að það sé búið að breyta aðeins og að það eigi mögu­lega að vera eitt tré, en það á alveg eftir að kostn­að­ar­greina þetta allt saman. Þannig að út frá ákvörð­un­ar­töku okkar í borg­ar­ráði, þá er málið bara enn þá í vinnslu.“

Þórdís Lóa segir að Mið­flokk­ur­inn hafi verið með fyr­ir­spurn um málið í borg­ar­ráði, en þar var ein­göngu verið að athuga hvar málið væri statt. Hún seg­ist halda að ekki sé búið að svara þeirri fyr­ir­spurn form­lega. Það sé því algjör­lega byggt á mis­skiln­ingi að ein­hver ákvörðun liggi fyrir um fram­tíð pálmatrjáa í Voga­byggð.

Þannig að það er eng­inn búinn að ákveða hvort af verk­efn­inu verði?

„Nei. Það er ekki búið að taka neinar svo­leiðis ákvarð­anir. Við erum ekki einu sinni með gögn í hönd­unum til að gera það. Það eina sem ég get sagt er að þetta bara fór í raun­hæf­is­mat, bæði tækni­legt og fjár­hags­legt. Það er ekki búið að taka neina afstöðu – það er ekki klárt,“ segir Þórdís Lóa að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina