Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gísli Hvanndal glímdi við erfið veikindi: „Alheimurinn tók frá mér óttann við að deyja“

Gísli Hvanndal glímdi við erfið veikindi: „Alheimurinn tók frá mér óttann við að deyja“
Gísli Hvanndal Jak­obs­son Mynd: Aðsend

Í dag barst Mannlífi bréf frá Gísli Hvanndal Jak­obs­son, sem er 36 ára tveggja barna faðir.  Margir muna eftir Gísla frá því að hann heill­aði land­ann með fal­legum söng sínum í Idolinu á sínum tíma. Bréfið er hér fyrir neðan:

„23. apríl síð­ast­lið­inn fékk ég mjög alvar­legt flog og end­aði í önd­un­ar­vél í fjóra daga. Í þessu flogi brotn­uðu báðir upp­hand­leggir. Hægri öxlin brotn­aði mjög illa og ég er með tvær stál­p­lötur á hægri öxl­inni og 6 eða 7 skrúfur í upp­hand­legg.

Annað lungað á mér féll saman og ég fékk lungna­bólgu. Neðsti hryggja­lið­ur­inn féll niður og nokkrir brotn­uðu og brákuð­ust. Ég fékk garna­flækju og hluti af þörm­unum voru teknir. Minnið mitt skert­ist því ég man ekki dag­ana á undan flog­inu né næstu 10 daga á sjúkra­hús­inu.

Ég var í 5 vikur á sjúkra­húsi. For­eldrum mínum var sagt að ég væri í mik­illi lífs­hættu og þau ættu að búa sig undir það að ég myndi ekki hafa það af. En ég var mjög hepp­inn því aug­ljós­lega lifði ég af þar sem ég er að skrifa þessa grein.

Vikurnar liðu og ég fór að hugsa um dauð­ann og ótt­ann í líf­inu. Ég átt­aði mig á því að dauð­inn er ekk­ert merki­legur og í raun ekk­ert til að ótt­ast. Að næstum því að deyja er bara eins og að slökkva ljósin í her­berg­inu áður en maður fer að sofa. Ég átt­aði mig á því að alheim­ur­inn hafði gefið mér mikla og verð­mæta gjöf. Alheim­ur­inn tók frá mér ótt­ann við að deyja.

Gísli Hvanndal Jak­obs­son

Ég átt­aði mig á því að lifa er hin raun­veru­lega áskorun og að lifa vel. Ég er 36 ára og á tvö börn sem hafa kennt mér hvað skil­yrð­is­laus ást er. Þau hafa kennt mér hvað gleði er og hvað vænt­um­þykja er. Þau hafa kennt mér að taka líf­inu ekki of alvar­lega og að njóta hvers ein­asta dags eins og hann væri minn síð­asti. Flogið sem næstum því drap mig gaf mér frið og þakk­læti. Í dag tek ég engu sem sjálf­gefnu og hlakka til ein­asta dags eins og barn á jól­unum sem bíður eftir að sjá hvað er í pakk­anum. Hver ein­asti dagur er dýr­mætur og maður veit aldrei hvað maður fær. Hver ein­asti dagur kemur á óvart. Hvern hitti ég í dag? Hvernig verða sam­ræð­urnar? Mun ég hlægja mikið? Mun eitt­hvað  erfitt eiga sér stað? Hvaða ævin­týri upp­lifi ég í dag? Það sem mér hefur verið gefið  er ótta­leysi, frelsi og frið frá almætt­inu. Mér hefur líka verið gefið þekk­ing og þá visku að ég er summa alls þess sem ég hef farið í gegnum. Að frá fæð­ingu hefur lífið mótað mig eins og leir í þann mann sem ég er í dag. Lífið hefur kennt mér þakk­læti og æðru­leysi. Lífið er ekki bara ein­tóm gleði. Lífið er bæði erfitt og auð­velt. Lífið er bæði þján­ing og sæla. Ég hef fengið þann skiln­ing að lífið er fullt af and­stæðum og að það eru erf­iðu kafl­arnir sem gefa mér á end­anum góðu kafl­ana. Ég myndi ekki vita né skilja hvað gleði og sæla er án þess að fara í gegnum þján­ingu. Ég myndi ekki vita né skilja hvað er upp ef ég vissi ekki hvað niður er. Yin og yang hald­ast í hendur. Lífið er bæði svart og hvítt og það er allt í lagi. Þessar and­stæður gefa okkur það sem við köllum líf eða hlut­veru­leika. Ég er ekki lengur hræddur við dauð­ann. Flogið gaf mér gjöf fulla af djúpum skiln­ingi, þekk­ingu og visku.  Flogið gaf mér kær­leika og gleði. Flogið gaf mér sál­ar­frið. En ég er ekki full­kom­inn. Í gegnum lífið hef ég verið með sterka rétt­læt­is­kennd og orðið bitur, sár og reiður gagn­vart fólki sem mér finnst hafa gert mér rangt til og jafn­vel beitt mig ofbeldi.

En sú líðan er að hverfa smátt og smátt. Ég er að þroskast og mun vera að þroskast allt mitt líf. Ég mun gera mis­tök  það er víst. En þannig á það að vera. Lífið er ferð og á veg­inum hittum við fullt af fólki af öllum stærðum og gerðum og þurfum að takast á við ýmis verk­efni. Ég er eilífa stúd­ent að læra. Ég stefni að eigin ágæti hvern ein­asta dag. Að verða betri í dag en í gær.

Ég hef gert fullt af mis­tökum í líf­inu og hef fyr­ir­gefið sjálfum mér fyrir þau því ég ein­fald­lega vissi ekki og gat ekki betur miðað við þann þroska og þekk­ingu sem ég hafði. En nú er ég þroskaðri og vitr­ari en ég var í gær. Ég hefði ekki getað skrifað þessa grein í gær.

Flogið gaf mér líka þá þekk­ingu að það er líf eftir þetta líf og að það er til fortil­vera. Flogið gaf mér frið og að kunna að meta það sem ég er og hef hvern ein­asta dag. Flogið gaf mér and­lega visku og æðru­leysi. Flogið gaf mér fyr­ir­gefn­ingu og það að sætta mig við það sem ég get ekki breytt. Flogið gaf mér líka ábyrgð. Að héðan í frá er ég meira vak­andi í líf­inu og að það er ég sem tek ábyrgð á sjálfum mér og hverri ein­ustu ákvörðun og gjörð sem ég tek í líf­inu. Flogið gaf mér ný við­horf , heil­brigði við­horf, and­leg við­horf.

Gísli með börnum sínum

Dagurinn sem ég næstum því dó var í raun dag­ur­inn sem ég lifn­aði við. Dagurinn sem ég næstum því dó var dag­ur­inn sem ég steig út úr myrkr­inu í ljósið. Dagurinn sem ég næstum því dó er dag­ur­inn sem hið nýja líf mitt byrj­aði. Dagurinn sem ég næstum því dó voru kafla­skil og hefur dregið mig inn á svið nýrra ævin­týra. Dagurinn sem ég næstum því dó gaf mér allt. Dagurinn sem ég næstum því dó gaf mér þá gjöf að opna hjarta mitt meira og meira. Dagurinn sem ég næstum því dó sýndi mér og gaf mér nýjan and­legan veru­leika og þá full­vissu að til er and­legur kær­leikur og vænt­um­þykja sem við getum öll eign­ast og upp­lifað. Dagurinn sem ég næstum því dó gaf mér gleði og hjarta barns­ins sem börnin mín hafa kennt mér smátt og smátt hvern ein­asta dag.  Ég gerði mis­tök í gær en ég lærði af þeim í dag. Takk fyrir að lesa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við