Móðir Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur, Karen Jenny Heiðarsdóttir, segir í samtali við Stundina að Guðni Bergsson, þáverandi formaður Knattspyrnusambands Íslands, hafi leitað eftir sáttum við hana og föður Þórhildar.

Þórhildur Gyða er konan sem lagði fram kæru á hendur Kolbeini Sigþórssyni fyrrverandi landsliðsmanni í knattspyrnu.

Karen segir að hún „hafi furðað sig á því þar sem lögreglurannsókn var enn í gangi. Það vakti furðu okkar að formaður KSÍ hafi rætt við okkur um möguleika á sáttum.“Að mati Karenar sýnir þetta að aðkoma KSÍ og formanni þess að sáttarferlinu var meiri en áður hefur komið fram.Í samtali við Stundina taldi Guðni Bergsson ekki óeðlilegt að hann hafi leitað sátta og að hann vilji almennt ekki tjá sig um málið; tók þó fram að honum hafi fundist aðkoma sín á þessum tímapunkti hafa verið eðlileg.„Mér finnst ekki óeðlilegt að það hafi borið á góma í þessu samtali.“































Athugasemdir