Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dómurinn yfir Jóhanni Rúnari í heild sinni

Dómurinn yfir Jóhanni Rúnari í heild sinni

Í yfir­lýs­ingu frá Jóhanni Rúnari Skúla­syni tekur hann fram að hann hafi verið sýkn­aður. Yfir­lýs­ing­una má lesa í heild sinni hér. 

„Ákærði hefur við rann­sókn máls­ins hjá lög­reglu og fyrir dómi við­ur­kennt að hafa haft kyn­ferð­is­mök, önnur en sam­ræði, við stúlk­una,“er meðal þess sem kemur fram í dóm­inum.
„Þá verður ekki annað séð en að þroski Y, á þeim tíma sem hér skiptir máli, hafi verið eðli­legur og hvorki meiri né minni en almennt þekk­ist varð­andi stúlkur á hennar aldri“.

Hér að neðan má lesa dóm­inn í heild sinni og þar á meðal frá­sögn knapans.
Um opin­ber gögn er að ræða.

DÓMUR

  1. sept­em­ber 1994

Mál nr. Ákærandi:
S-15/1994: Rík­is­sak­sókn­ari (Ingvar Þór­odds­son full­trúi)

Ákærði:
X
(Stein­grímur Þor­móðs­son hdl.)

Dómari:
Halldór Hall­dórs­son hér­aðs­dóm­ari

Ár 1994, föstu­dag­inn 23. sept­em­ber, er dóm­þing Hér­aðs­dóms Norð­ur­lands vestra háð í dóm­húsi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, af Halldóri Hall­dórs­syni, hér­aðs­dóm­ara, sem dóms­for­manni og með­dóms­mönn­unum Ólafi Berki Þor­valds­syni og Þorgeiri Inga Njáls­syni, hér­aðs­dóm­urum.

Fyrir er tekið: Mál nr. S-191/1994
Ákæru­valdið
gegn
X

Í mál­inu er kveð­inn upp svo­felldur

DÓMUR:
Ár 1994, föstu­dag­inn 23. sept­em­ber, er á dóm­þingi Hér­aðs­dóms Norð­ur­lands vestra sem háð er í dóm­húsi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur af Halldóri Hall­dórs­syni hér­aðs­dóm­ara, sem dóms­for­manni, ásamt með­dóm­end­unum Ólafi Berki Þor­valds­syni og Þorgeiri Inga Njáls­syni, hér­aðs­dóm­urum, kveð­inn upp dómur í hér­aðs­dóms­mál­inu nr. S-191/1994: Ákæru­valdið gegn X, sem tekið var til dóms að loknum munn­legum flutn­ingi 1. sept­em­ber sl.

Mál þetta er höfðað með ákæru rík­is­sak­sókn­ara, dag­settri 17. maí 1994, gegn ákærða, „X, […], […], […], fæddum […], fæð­ing­ar­númer […], fyrir kyn­ferð­is­brot með því að hafa, aðfara­nótt föstu­dags­ins 20. ágúst 1993, haft sam­ræði eða önnur kyn­ferð­is­mök við stúlk­una Y, sem þá var 13 ára, í bif­reið ákærða í A í D.
Telst þetta varða við 1. mgr. 202. gr. almenn­ara hegn­ing­ar­laga nr. 19, 1940, sbr. 10. gr. laga nr. 40, 1992.“

Ákærði krefst sýknu af kröfum ákæru­valds­ins og að allur sak­ar­kostn­aður, þar með talin málsvarn­ar­laun skip­aðs verj­anda hans, greið­ist úr rík­is­sjóði.

Mála­vextir: 
Mánu­dag­inn 30. ágúst 1993 kl. 14.30 kom stúlkan Y, 13 ára gömul, ásamt móður sinni á lög­reglu­stöð­ina á B og kærði ákærða fyrir nauðgun sem hún kvað hafa átt sér stað aðfara­nótt 20. s.m. Ákærði var hand­tek­inn og tekin af honum skýrsla hjá lög­reglu þá um kvöldið.

Ákærði skýrir svo frá að hann hafi verið við vinnu í versl­un­inni E á B umrætt kvöld. Stúlkan Y hafi komið í versl­un­ina ásamt vinum sínum og verið þar dágóða stund eða allt fram að lokun versl­un­ar­innar. Y hafi m.a. skoðað mynd­bands­spólur í rekka þar inni og hafi ákærði bent henni á góðar mynd­bands­spólur. Þar hafi Y gefið honum undir fót­inn m.a. með því að núa sér utan í hann.

Eftir að ákærði hafi lokað versl­un­inni kveðst hann hafa ekið suður að versl­un­inni F. Þar hafi hann hitt vin sinn og ekið honum heim til hans. Ákærði kvaðst hafa tekið eftir E, þar sem hún sat austan við veg­inn gegnt G ásamt annarri stúlku. Hann hafi veitt því athygli að hún fylgd­ist með honum koma og fara. Hann hafi tekið greini­lega eftir því að hún horfði á hann. Ákærði kvaðst hafa ekið H tvisvar til þrisvar sinnum þar til Y, sem þá var orðin ein á ferð, hafi verið komin á opið svæði vestan við göt­una. Hann hafi þá ekið til hennar og boð­ist til að aka henni heim en hún svarað því til að hún væri á leið­inni að I. Hann hafi því ekið henni þangað. Þegar þangað var komið voru vinir Y ekki þar og kveðst ákærði þá hafa boð­ist til að aka henni eitt­hvert annað. Því hafi hún svarað á þá leið að hann ætti bara að setja sig ein­hvers staðar úr. Ákærði kveðst þá hafa slegið því fram í gríni hvort hann ætti að aka henni út í A og hún jánkað því. Ákærði kveðst þá hafa ekið sem leið liggur yfir […] og beygt síðan út í A.

Ákærði kveður þau hafa talað eitt­hvað saman á leið­inni. Hann hafi m.a. spurt hana að nafni og einnig hvað hún væri gömul. Þeirri spurn­ingu hafi hún svarað á þá leið „að það skipti engu máli, hún (væri) nógu gömul“. Síðan hafi hann sagt að sér þætti hún fal­leg og hún hafi sagt það sama um sig. Þá hafi hann spurt hana hvort hann mætti kyssa hana en hún hafi svarað „ekki á ferð“. Þá kveðst ákærði hafa spurt hvort hann mætti það ef hann stöðv­aði bif­reið­ina og því hafi hún játað. Þá hafi hann beygt inn á afleggjara við veg­inn, stöðvað og drepið á bif­reið­inni. Þar hafi þau byrjað að kyss­ast og faðm­ast og hún tekið jafnan þátt í því og hann. Síðan hafi eitt leitt af öðru. Ákærði kvaðst hafa farið með hend­urnar undir peysu Y og síðan með aðstoð Y klætt hana úr peys­unni. Einnig hafi hún farið úr bux­unum en þó alltaf verið í annarri buxna­skálminni og hann þá fært sig yfir í far­þega­sætið, þar sem Y var. Hann hafi spurt Y hvort hann mætti hafa við hana sam­farir. Því hafi hún neitað og hafi hann „virt það við hana“. Síðan kveðst ákærði hafa farið með tvo fingur inn í kyn­færi Y. Ekki kvaðst hann vita hversu lengi það stóð yfir en það gæti hafa verið u.þ.b. 15 mín­útur. Síðan hafi hann beðið Y um að fróa sér og það hafi hún gert þar til hann hafði sáð­lát. Kvaðst ákærði hafa orðið var við blóð á fingrum sínum eftir að þetta var yfir­staðið en hann kvaðst ekki hafa orðið var við blóð á fötum Y en blóð­blettir hafi verið í far­þega­sæti bif­reið­ar­innar.

Við svo búið hafi þau ætlað að halda heim á leið, en hann þá fest bif­reið­ina í skurði og ekki náð henni upp án aðstoðar. Skömmu síðar hafi komið þar að tveir menn og ákærði fengið far með öðrum þeirra til B og náð í aðstoð við að draga bif­reið­ina upp. Ákærði kveður sig og Y hafa verið sam­mála um að hún feldi sig bak við hól þar skammt frá þar til búið væri að ná bif­reið­inni upp úr skurð­inum. Að því loknu hafi hann ekið Y að göt­unni þar sem hún býr. Á leið­inni þangað hafi þau lítið talað saman en þegar Y fór út úr bif­reið­inni hafi hún spurt hvort hún ætti ekki að þegja yfir þessu og hafi hann sam­þykkt það.

Ákærði kveður Y hafa sjálf­vilj­uga tekið þátt í og notið atlota þeirra, en hann hafi ekki þekkt hana neitt fyrir þetta kvöld.

Stúlkan Y greindi frá mála­vöxtum nokkuð á sama veg og ákærði varð­andi akst­ursleið og með hvaða hætti hún fór upp í bif­reið ákærða. Hún kvaðst hins vegar aldrei hafa gefið ákærða undir fót­inn. Um orða­skipti þeirra í bif­reið­inni segir Y, að eftir að í ljós kom að vinir hennar voru ekki við I hafi ákærði spurt hvort hann ætti að aka henni út í A. Hún hafi tekið því sem gríni og svarað ját­andi í svip­uðum tón, án þess þó að vilja fara þangað. Ákærði hafi spurt sig um aldur og hún svarað „þú veist það alveg“. Kvaðst Y hafa talið að ákærði myndi snúa við en orðið hrædd við ákærða þegar hann ók austur Í í stefnu að A. Þegar út í A var komið hafi ákærði sagt, að honum þætti hún sæt og skömmu seinna spurt hvort hann mætti kyssa hana. Hún hafi ekki þorað að svara neit­andi, en sagt honum að stöðva bif­reið­ina. Það hafi ákærði gert og byrjað að kyssa hana og síðan klætt hana úr peys­unni. Jafn­framt hafi hann sagt að hann ætl­aði „ekk­ert ætla að gera“ og hún hafi sagt honum „að gera það ekki“. Síðan hafi ákærði klætt hana úr öllum föt­unum. Þó hafi hún mögu­lega verið í annarri buxna­skálminni. Þá kveður hún ákærða hafa reynt að hafa sam­farir við sig og sett getn­að­ar­lim sinn inn í kyn­færi sín. Kvaðst Y hafa fundið fyrir sam­fara­hreyf­ingum en ákærða hafi þó ekki orðið sáð­fall. Kvaðst Y hafa verið stíf af hræðslu við ákærða og ekki þorað að mót­mæla honum í neinu og gert það sem hann bað um. Nánar aðspurð um atburð­ina út í A sagði Y svo frá fyrir dómi „Ég man bara þegar hann klæddi mig úr og ég man ekki röð­ina alveg. Ég man bara þegar hann fór að reyna að hafa sam­farir með mér. Ég sagði honum að gera þetta ekki. Hann sagði mér að vera ekki svona stíf. Ég bað hann um að hætta þessu, grát­bað hann um það. Hann hélt áfram. Svo hætti hann því. Ég man ekki hvort hann sagði ég nenni þessu ekki lengur eða eitt­hvað. Og þá putt­aði hann mig. Ég hágrét allan tím­ann. Svo bað hann mig um að runka sér. Ég sagði ekki neitt. Ég bara gerði það. Og eftir það klæddi ég mig“. Í fram­burði Y kemur einnig fram, að þegar hún hafi verið að klæða sig hafi hún orðið vör við blóð á lík­ama sínum, fötum og í sæti bif­reið­ar­innar. Hafi hún þurrkað sér með hand­klæði sem hún hafði með­ferðis.

Þá kvað Y ákærða hafa bakkað bif­reið sinni ofan í skurð þegar halda átti heim á leið. Hafi ákærði sagt henni að fela sig meðan hann leit­aði aðstoðar. Hún kvaðst ekki hafa þorað að gefa sig fram við aðstoð­ar­menn­ina.

Y kvaðst að fyrra bragði hafa boð­ist til að þegja yfir atburð­inum en það hafi hún gert vegna þess að hún hrædd­ist ákærða og ótt­að­ist að hann gerði eitt­hvað” ef hún segði frá.

Þá kom fram hjá Y að hún hafi hitt móður sína þegar heim var komið, og hafi hún spurt Y um ástæð­una fyrir blóð­blett­unum á buxum hennar. Kvaðst Y hafa gefið þá skýr­ingu, að hún hefði dottið á stöng á hjóli.

Y kvaðst hafa þekkt ákærða sem bróður vin­konu sinnar, en ekki á annan hátt.

Í mál­inu liggur frammi grein­ar­gerð J kven­sjúk­dóma­læknis og K, barna­læknis, dags. 30. sept­em­ber 1993, varð­andi Y. Grein­ar­gerðin er svohljóð­andi: “ Um er að ræða 13 ára gamla stúlku sem er inn­lögð á Barna­spít­ala Hrings­ins að beiðni heilsu­gæslu­lækna á B þ. 01 09 93 til rann­sóknar vegna nauðg­unar sem stúlkan mun hafa orðið fyrir 27.08.93. Mun ekki hafa látið for­eldra eða neinn annan vita um atburð­inn fyrr en 2 dögum fyrir komu á deild­ina og rann­sókn þá strax hafin.

Stúlkan hefur eðli­lega fyrri heilsu­fars­sögu, blæð­ingar hófust fyrir um það bil 1 ári og hafa verið nokkuð reglu­legar.

Daginn eftir komu fór stúlkan í kven­fræði­lega skoðun hjá J, kven­sjúk­dóma­lækni. Í sam­tali við hana upp­lýsir stúlkan að mað­ur­inn hafi farið með getn­að­ar­lim­inn upp í leggöng, það hafi verið slæmt og blætt. Veit ekki hvort um sáð­lát hafi verið að ræða, telur að hann hafi ekki notað verjur.

Við skoðun sást að kyn­þroski er kom­inn vel á veg, það voru engin merki um áverka, op á meyj­ar­hafti var vítt og eft­ir­gef­an­legt og var meyj­ar­haftið rofið aft­antil og til hægri hliðar. Slímhúð leg­ganga var eðli­leg.

Ræktanir frá svæð­inu voru allar eðli­legar. Almenn skoðun barna­læknis á deild­inni leiddi ekk­ert athuga­vert í ljós.

Í kjöl­far skoð­un­ar­innar hafði L sál­fræð­ingur á barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans við­tal við stúlk­una. Fann hún ekki ástæðu til áfram­hald­andi afskipta af mál­inu en for­eldr­arnir (svo) og stúlkunni var bent á að hafa sam­band við barna- og ung­linga­geð­deild ef til­finn­inga­leg vanda­mál koma upp.

Nið­ur­staða skoð­unar sam­rým­ist frá­sögn stúlkunnar um það sem gerst hefur“.

Fyrir dómi stað­festi vitnið J fram­an­rit­aða grein­ar­gerð. Kvað hún meyj­ar­haft Y vera rofið og gæti það hafa gerst með þeim hætti sem Y greindi frá. Hins vegar gat hún ekki full­yrt neitt um það hvort rof meyj­ar­hafts­ins væri eftir getn­að­ar­lim eða fingur, ein­ungis að senni­legt væri að það hafi rofnað eftir að eitt­hvað hafi farið upp í leggöng Y. Ekki væri hægt að segja til um það með neinni nákvæmni hversu mikil blæð­ing kæmi með rofi á meyj­ar­hafti, en flestar stúlkur finndu til sárs­auka við rof á meyj­ar­hafti.

M, sál­fræð­ingur, kom fyrir dóm­inn sem vitni. Hún kvaðst ekki hafa gert svo­kall­aða per­sónu­leika­prófun á Y og því væri erfitt fyrir sig að leggja mat á sögu stúlkunnar, sem hún taldi þó trú­verð­uga. Hún hafi ein­ungis haft Y í stuðn­ings­við­tölum vegna þessa.

Í gögnum máls­ins eru að finna 4 ljós­myndir af Y sem teknar voru mánu­dag­inn 30. ágúst 1993. Stað­festu ákærði og Y að þar hafi Y verið eins til fara og umrætt sinn. Einnig er í gögnum máls­ins mynd af far­þega­sæti bif­reiðar ákærða þar sem glöggt má sjá blóð­bletti.

Auk þeirra vitna sem hér að framan er getið, komu fyrir dóm­inn við aðal­með­ferð máls­ins, móðir Y, nokkrir vinir og kunn­ingjar Y sem voru með henni umrætt kvöld, svo og móðir ákærða og systir hans. Engin efni eru til að rekja fram­burð þess­ara vitna sér­stak­lega.

III. Ákærði hefur við rann­sókn máls­ins hjá lög­reglu og fyrir dómi við­ur­kennt að hafa haft kyn­ferð­is­mök, önnur en sam­ræði, við stúlk­una Y, fædda […], þá er þau voru stödd í bif­reið ákærða í nágrenni B aðfara­nótt föstu­dags­ins 20. ágúst 1993. Er lýs­ing ákærða á hátt­semi hans gagn­vart Y áður rakin. Ef frá er tal­inn fram­burður Y, gengur frá­sögn ákærða af sam­skiptum hans og stúlkunnar að þessu leyti ekki gegn því sem upp­lýst hefur verið undir rekstri máls­ins. Ákærði og Y eru ein til frá­sagnar um atburða­rás. Að þessu virtu og með vísan til 45. og 46. gr. laga nr. 19/1991, þykir verða að leggja til grund­vallar við úrlausn máls­ins þá stað­hæf­ingu ákærða, að hann hafi ekki haft sam­ræði við stúlk­una. Með þessum fram­burði ákærða, sem fær stoð í fram­burði Y og öðrum gögnum máls­ins, telst hins vegar nægj­an­lega sannað, að ákærði hafði við stúlk­una kyn­ferð­is­mök í umrætt sinn og á þann veg sem hann hefur sjálfur lýst.

Stúlkan Y var komin vel á 14. ald­ursár þá er atburður sá varð sem hér er um fjallað. Ákærði hefur jafnan haldið því fram, að honum hafi ekki verið kunn­ugt um aldur Y í greint sinn, en ekki talið hana svo unga sem raun ber vitni. Kvaðst ákærði telja að Y hafi verið 16 til 17 ára gömul þá er fundum þeirra bar saman hið umrædda kvöld. Samkvæmt fram­burði Y sagði hún ákærða ekki til um aldur sinn, en telur honum hafa verið kunn­ugt um að hún væri ekki orðin 14 ára. Ekkert hefur hins vegar komið fram við með­ferð máls­ins sem afdrátt­ar­laust styður þess full­yrð­ingu Y. Þá verður ekki annað séð en að þroski Y, á þeim tíma sem hér skiptir máli, hafi verið eðli­legur og hvorki meiri né minni en almennt þekk­ist varð­andi stúlkur á hennar aldri.

Þegar fram­burður ákærða og vitna fyrir dómi er virtur í heild sinni og jafn­framt litið til ann­arra gagna máls­ins og þess sem sér­stak­lega er rakið hér að framan, þykir var­huga­vert að telja sannað, að á verkn­að­ar­stundu hafi verið fyrir hendi ásetn­ingur hjá ákærða í skiln­ingi refsiréttar til að hafa kyn­ferð­is­mök við stúlku yngri en 14 ára. Verður ákærði því ekki sak­felldur fyrir að hafa með ásetn­ingi, að því er tekur til ald­urs Y, brotið gegn því ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940 sem til­fært er í ákæru. Svo sem hér hagar til verður hins vegar að virða ákærða það til stór­fellds gáleysis, að hann skeytti nær engu um þann mögu­leika, að stúlkan væri svo ung sem raun ber vitni. Verður því í öllu falli að líta svo á, ákærði hafi í greint sinn haft kyn­ferð­is­mök, önnur en sam­ræði, við stúlk­una Y í gáleysi um aldur hennar. Með þeirri hátt­semi sinni vann ákærði sér til refs­ingar sam­kvæmt 1. mgr. 202. gr., sbr. 204. gr. almennra hegn­ing­ar­laga, sbr. 10. og 11. gr. laga nr. 40/1992, en málið var að frum­kvæði dóms­ins flutt með hlið­sjón af því, að verkn­aður ákærða kynni að verða heim­færður til refsi­á­kvæða á þann veg, sbr. 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 um með­ferð opin­berra mála.

  1. Samkvæmt saka­vott­orði ákærða gekkst hann þann 18. ágúst 1988 undir dómsátt vegna brots gegn 1. sbr. 3. mgr. 45. gr. umferð­ar­laga nr. 50/1987. Öðrum refs­ingum hefur ákærði ekki sætt.

Refsing ákærða þykir hæfi­lega ákveðin fang­elsi í fjóra mán­uði, en fresta skal fulln­ustu þriggja mán­aða af refs­ing­unni og sá hluti hennar niður falla, að liðnum þremur árum frá upp­kvaðn­ingu dóms þessa, haldi ákærði, almennt skil­orð 57. gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Með vísan til 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991, um með­ferð opin­berra mála, ber ákærða að greiða allan sak­ar­kostnað, þ.m.t. málsvarn­ar­laun skip­aðs verj­anda síns, Stein­gríms Þor­móðs­sonar, hér­aðs­dóms­lög­manns, 100.000 krónur og sak­sókn­ar­laun til rík­is­sjóðs, 50.000 krónur.

Við ákvörðun málsvarn­ar­launa er sér­stakt til­lit tekið til ferða­laga verj­and­ans.

Af hálfu ákæru­valds ann­að­ist Ingvar Þór­odds­son, full­trúi sýslu­manns­ins á B, sókn máls­ins.

Dóms­upp­saga hefur dreg­ist um einn dag vegna anna dóm­enda.

DÓMSORÐ:

Ákærði, X sæti fang­elsi í fjóra mán­uði, en fresta skal fulln­ustu þriggja mán­aða af refs­ing­unni og sá hluti hennar niður falla, að liðnum þremur árum frá upp­kvaðn­ingu dóms þessa, haldi ákærði, almennt skil­orð 57. gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði allan sak­ar­kostnað, þ.m.t. málsvarn­ar­laun skip­aðs verj­anda síns, Stein­gríms Þor­móðs­sonar, hér­aðs­dóms­lög­manns, krónur 100.000 og sak­sókn­ar­laun til rík­is­sjóðs krónur 50.000.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi