Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dóttir Karenar endaði á bráðamóttöku vegna mistaka lyfjafræðings: „Mætti algjöru skilningsleysi“

Dóttir Karenar endaði á bráðamóttöku vegna mistaka lyfjafræðings: „Mætti algjöru skilningsleysi“

Karen Drífa Thor­halls­dóttir end­aði með sautján mán­aða gamla dóttur sína uppi á bráða­mót­töku Barna­spít­al­ans í eitr­un­ar­prófi, vegna víta­verðra mis­taka lyfja­fræð­ings í Apó­tek­ar­anum í Mos­fellsbæ.

Karen segir frá því hvernig dóttir hennar hafi byrjað á leik­skóla í haust og að því hafi fylgt ýmis til­heyr­andi veik­indi. Til að mynda hafi dóttir hennar fengið þrá­láta eyrna­bólgu, sem varð til þess að hún þurfti þrisvar sinnum að fara á sýkla­lyf.

„Í þriðja skiptið dugði flaskan sem hún fékk frá apó­tek­inu ekki fyrir skömmt­unum sem voru upp­á­skrif­aðir fyrir hana. Ég fór undr­andi í apó­tekið og spurði hvort hún ætti meira inni hjá þeim eða eitt­hvað svo­leiðis,“ segir Karen.

Hún lýsir því hvernig lyfja­fræð­ingnum sem þá var á vakt hafi sömu­leiðis þótt þetta afar skrýtið og farið á bak við til þess að reyna að kom­ast til botns í mál­inu. Þess ber að geta að við­kom­andi lyfja­fræð­ingur vinnur aðeins þessa einu viku­legu vakt í hverri viku í umræddu apó­teki.

„Hún kom aftur fram eftir dágóða stund og sagði mér að það kæmi ekk­ert annað til greina að hennar mati en að lyfja­fræð­ing­ur­inn sem vinnur alla hina dag­ana og bland­aði lyfið hafi blandað það rangt.

Þetta þýddi að dóttir mín hafði fengið um 8-900 mg af sýkla­lyfi í stað­inn fyrir 350 mg í fjóra daga. Lyfja­fræð­ing­ur­inn hringdi strax upp á eitr­un­ar­deild sem hafði svo sam­band við mig nokkrum mín­útum síðar og við vorum beðin um að bruna með dóttur okkar upp á bráða­mót­töku Barna­spít­al­ans í eitr­un­ar­próf.“

Á spít­al­anum kom í ljós að stúlkan hafði bless­un­ar­lega sloppið við eitrun, en hún þurfti umsvifa­laust að hætta að taka inn lyfin, þrátt fyrir að vera ekki batnað af eyrna­bólg­unni.

„Nokkrum dögum síðar fékk hún svo hræði­lega mikla sveppa­sýk­ingu í tann­holdið sem afleið­ingu af magni lyfj­anna ofan á eyrna­bólg­una og ég hélt að ég myndi varla lifa það af að sjá hversu kvalin hún var og hún gat ekk­ert borðað í marga daga og létt­ist mjög hratt.“

Hélt að lyfjafræðingurinn yrði miður sín

Sá lyfja­fræð­ingur sem hafði áttað sig á mál­inu mælti með því við Karen að hún til­kynnti málið til Lyfja­stofn­unar, auk þess að koma aftur með lyfjaglasið í apó­tekið og ræða málið við lyfja­fræð­ing­inn sem hafði blandað lyfið.

„Þegar ég fór aftur í apó­tekið algjör­lega upp­gefin og hrein­lega stressuð yfir því að tala við konu sem ég hélt að myndi vera með tárin í aug­unum yfir því að hafa mögu­lega eitrað fyrir unga­barni þá mætti ég í stað­inn algjöru skiln­ings­leysi og kæru­leysi.

Við­kom­andi lyfja­fræð­ingur hóf bara að rök­ræða um hvað hafði verið í glas­inu og hvers vegna barnið fékk svona oft sýkla­lyf og svo fram­vegis.

Í stuttu máli þá þurfti ég bara að stöðva sam­talið, taka glasið af kon­unni til baka og fara.

Ég á svo erfitt með að skilja afstöðu lyfja­fræð­ings­ins að taka því ekki alvar­legar en þetta að hafa gert svo grafal­var­leg mis­tök í svo ábyrgð­ar­fullu starfi.“

Karen ákvað í ljósi þessa að henni þætti ekki nóg að til­kynna málið til Lyfja­stofn­unar, heldur vildi hún vara aðra for­eldra við.

„Höfum augun alltaf opin,“ segir Karen að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi