Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lúðvík: „Hélt ég hefði orðið meistari en formaður Tjaldfélags Hafnarfjarðar er að eyðileggja það“

Lúðvík: „Hélt ég hefði orðið meistari en formaður Tjaldfélags Hafnarfjarðar er að eyðileggja það“
Lúðvík Jónasson Mynd: Harmageddon

Jón Rúnar Hall­dórs­son fyrrum for­maður knatt­spyrnu­deildar Fim­leika­fé­lags Hafn­ar­fjarðar vakti mikla athygli á Stöð2 Sport um liðna helgi; þar gerði hann upp magn­aða tíma félags­ins á árunum 2004 til 2016.

Eitt af því sem Jón Rúnar tal­aði um var hreinn úrslita­leikur FH og Stjörn­unnar í októ­ber árið 2014:

„Allir sann­gjarnir menn vita hvernig þetta hefði endað ef allt hefði verið spilað eftir regl­unum sem á að fara. Hefðum við ekki verið með blindan beitu­sala hérna á lín­unni, þá hefði þetta farið allt öðru­vísi. Ég held að Garð­bæ­ingar margir hverjir viti það sjálfir að þeir eigi eftir að vinna Íslands­meist­ara­tit­il­inn. Ég segi þetta ekki til að gera mér ein­hverja hug­arró. Það er bara þannig í þessum leik að allir vilja gera hlut­ina eftir regl­unum,“ sagði Jón Rúnar.

Hvað sem öðru líður getur eng­inn lengur fett fingur út í það að Stjarnan varð raun­veru­lega  Íslands­meist­ari í fyrsta sinn árið 2014: FH klúðr­aði hverju dauða­fær­inu á eftir öðru og ekki hægt að kenna Stjörnu­mönnum um það; þeir áttu tit­il­inn fylli­lega skilið.

Ummæli Jóns Rúnars um leik­inn fræga hafa farið öfugt ofan í margan stjörnu­mann­inn – og sá ákveðni mynd­ar­piltur Lúðvík Jónasson lagði orð í belg um leik­inn fræga eftir ummæli Jóns Rúnars:

„Ég varð fer­tugur þessa helg­ina, ég hélt að ég hefði orðið Íslands­meist­ari. Formaður Tjald­fé­lags Hafn­ar­fjarðar er að eyði­leggja það. Þeir eru búnir að taka átta dollur eftir bók­inni og regl­unum,“ sagði Lúlli fyrrum leik­maður Stjörn­unnar í hlað­varps­þætt­inum Dr. Football:

„Hvað veit Jón Rúnar um það, hefði hann (Sigurður Óli Þor­leifs­son) flaggað rang­stöðu á Óla Kalla hvernig þessi leikur hefði þró­ast. Þeir geta ekki grátið yfir vít­inu, ég held að Jón Rúnar sé nú ekki bestur til að ræða reglur. Hann brýtur reglur á hverjum ein­asta leik, fékk sekt í Evr­ópu­keppni þegar hann labb­aði inn á völl­inn. Hann er kóng­ur­inn í Krikanum en ekki tala um reglu­verki.“

Hins vegar eru ekki illindi hjá Lúðvík gagn­vart Jóni Rúnari:

„Hann er snill­ingur, ég er hrifin af karakt­erum eins og honum. Hann vill bara vinna og til í að gera allt til þess. Það er rán­dýrt að búa í Mónakó (Garðabæ), þetta er ekki Sam­fylk­ingar bæj­ar­fé­lag. Við erum eina liði í tólf liða deild sem hefur farið tap­laust í gegnum tíma­bilið,“ sagði hann.

Hjörvar Haf­liða­son stjórn­andi þátt­ar­ins bað Lúlla um að útskýr hvers vegna hann tal­aði um Tjald­fé­lagið:

„Þetta eru bara tjöld þarna, hvít tjöld út um allt. Þetta er eins og á Þjóð­há­tíð,“ sagði Lúðvík og var þá að tala um knatt­spyrnu­hús fim­leika­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi