Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bergþóra sakar Megas um kynferðisbrot: „Ég gat ekki hætt að gráta. Tárin runnu bara“

Bergþóra sakar Megas um kynferðisbrot: „Ég gat ekki hætt að gráta. Tárin runnu bara“
Megas Mynd: -

Bergþóra Ein­ars­dóttir sakar tón­list­ar­mann­inn Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, um kyn­ferð­is­brot gegn sér árið 2004. Samkvæmt Stund­inni rann­sak­aði lög­reglan málið sem blygð­un­ar­sem­is­brot, tal­aði ekki við Megas og felldi niður málið. Ásamt honum sakar Bergþóra tón­list­ar­mann­inn Gunnar Örn Jónsson, úr dúett­inum Súkkat, um sama brot.

Bergþóra var tví­tug þegar hún réði sig til vinnu á veit­inga­stað, þá nýflutt að heiman. Á milli þeirra hafði mynd­ast smá vina­sam­band og hún treysti Megasi, þegar kom að hinu örlaga­ríka kvöldi. Hann kall­aði hana Litlu ljót.

„Ég upp­lifði það sem þeir gerðu sem ofbeldi,“ segir Bergþóra sem full­yrðir að Gunnar hafi hvatt sig til að koma með sér í heim­sókn til Megasar á Þórsgötu. „Ég fékk ekk­ert slæma til­finn­ingu fyrir því að fara til Megasar því ég treysti honum. Hann tal­aði svo fal­lega um kven­fólk. Þeir sögðu mér að hafa engar áhyggjur, þeir væru í hjálp­ar­sveit­inni og ætl­uðu að kæta mig. Ég skildi það þannig að þeir ætl­uðu að vera til staðar fyrir mig sem vinir.“

Lömuð af ótta

Bergþóra var með hæl­særi þetta kvöld og segir hún að þeir félag­arnir, Gunnar og Megas, hafi boð­ist til að sleikja sárið. Gunnar hafi sleikt sárið en ekki látið þar við sitja. Hann hafi togað hana úr bux­unum, sem rifn­uðu við það, og afk­lætt hana að neðan. Bergþóra seg­ist í sam­tali við Stundina ekki hafa trúað því að þetta væri að ger­ast.

„Ég hélt að þeir væru vinir mínir. Ég var svo ringluð, hvernig gátu þeir haldið að þetta væri í lagi? Ég fékk áfall, fraus og þorði ekki að gera neitt. Ég var í of miklu sjokki yfir því að þetta væri að ger­ast, í algjöru losti, dauð­hrædd. Ég vildi bara passa að þeir færu ekki inn í mig. Mín leið til að lifa af var að halda fyrir kyn­færin á mér.“

Bergþóra Ein­ars­dóttir.

Daginn eftir seg­ist Bergþóra hafa vaknað í aðstæðum sem voru „við­bjóðs­legri en hún hefði nokkurn tím­ann getað ímyndað sér“, með tvo nakta gamla karla við hlið sér. Bergþóra fékk tauga­á­fall.

„Ég gaf aldrei sam­þykki fyrir því sem þeir gerðu og þetta var aldrei það sem ég vildi. Ég var notuð. Þeir tóku frá mér eitt­hvert sak­leysi sem ég skildi að ég fengi aldrei aftur og það var rosa­lega sárt. Ég gat ekki hætt að gráta. Tárin runnu bara.“

Kærði til lögreglu

Sex árum eftir atburð­inn tók Bergþóra ákvörðun um að leggja fram form­lega kæru á hendur Megasi og Gunnari. Þá komst hún að því að til­kynn­ingin frá árinu 2004 hafði týnst. Sjö mán­uðum síðar komst lög­reglan að þeirri nið­ur­stöðu að brotið væri fyrnt og ekk­ert við því að gera. Enn versn­aði í því þegar rík­is­sak­sókn­ari sá ekki til­efni til að end­ur­skoða ákvörðun lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um nið­ur­fell­ingu máls­ins vegna þess að hann taldi ásetn­ing ekki sann­aðan. „Mér finnst þetta bara ljótt,“ segir Bergþóra um nið­ur­stöð­una í sam­tali við Stundina, sem var enn eitt áfallið vegna máls­ins.

„Í mörg ár losn­aði ég ekki við reið­ina og reiðin rænir þig orku og tætir þig upp að innan. Ég var ekki að kæra þá til að rústa lífi þeirra. Ekki frekar en að ég sé að stíga fram núna vegna þess. Ég vildi bara að þeir þyrftu að horfast í augu við að það sem þeir gerðu var ekki í lagi. Vegna þess að það var alls ekki í lagi.

Mér hefði líka liðið tals­vert betur ef þeir hefðu beðið mig afsök­unar, við hefðum rætt málin og gert þetta upp. En þeir gerðu það ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ