Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ole Anton vandar MAST ekki kveðjurnar: „Mannúðlegt og dýravænt blóðmerahald er ekki til!“

Ole Anton vandar MAST ekki kveðjurnar: „Mannúðlegt og dýravænt blóðmerahald er ekki til!“

Formaður Jarð­ar­vina, félaga­sam­taka um dýra-, nátt­úru- og umhverf­is­vernd, Ole Anton Bielt­vedt, skrifar opið bréf til for­stjóra MAST, Hrannar Ólínu Jör­und­ar­dóttur, vegna blóð­mera­halds.

Þetta vekur furðu mína

Segist Ole vísa í við­tal við Hrönn sem birt­ist á Hring­braut síð­ast­lið­inn þriðju­dag.

„Þar sagðir þú meðal ann­ars, að það væri mat ykkar, að hægt væri að fram­kvæma blóð­töku af fyl­fullum merum – reka blóð­mera­hald – án þess, að ógna vel­ferð dýr­anna. Þetta mat vekur furðu mína,“ skrifar Ole og vitnar næst í blaða­grein eftir sjálfan sig sem birt­ist á Vísi þann 26. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

…verður vart séð, hvernig hægt er með góðu, að koma ótömdum, hálf­villtum hryssum, sem búið er að rífa fol­aldið frá, inn í þröngan blóð­töku­bás, þar sem hryssan er njörvuð niður og höfuð strengt upp með reipum – staða dýrs­ins negld – til að hægt sé að opna slagæð á hálsi og tappa þar af blóði í 15 langar mín­útur!!

Hvernig geta menn ímyndað sér, að þessi fjötrun ótam­innar hryssu og það ofbeldi, sem beita þarf dýrið, til að koma nál í háls og tappa 5 lítrum af blóði af því, geti farið fram með friði og spekt!?

Hræðsla og æsingur dýrs­ins byrjar þá strax, þegar fol­aldið er rekið frá því, og skelf­ingin og örvingl­unin magn­ast auð­vitað, þegar blóð­töku­menn höggva aftur og aftur í sama knérunn, beita sama ofbeld­inu, viku efir viku, í 8-9 vikur.

Auðvitað er ljóst, að blóð­taka getur ein­vörð­ungu farið fram með ofbeldi, bar­smíðum og meið­ingum; mann­úð­legt og dýra­vænt blóð­mera­hald er ekki til!

Hefur kynnt sér málið í þaula

Segist Ole hafa eytt tveimur árum í að kynna sér þetta mál meðal ann­ars með lestri af tengdum rann­sóknum og afstaða hans bygg­ist á því.

„Í raun ætti almenn skyn­semi að duga við þetta mat,“ skrifar hann.

„Þú nefndir líka, að dýra­læknar væru alltaf við, við hverja ein­ustu blóð­töku. Þeir voru þá líka við í öllum þeim til­fellum, þar sem gögn AWF og TSB dýra­vernd­un­ar­sam­tak­anna sýna óhóf­legar mis­þyrm­ingar og ofbeldi við dýrin!
Þessi athuga­semd sýnir þá fremur, að ekk­ert er á þetta kerfi að treysta, heldur en, að við­vera og meint eft­ir­lit og hand­leiðsla dýra­lækna komi hér að nokkru gagni; sé ein­hver trygg­ing fyrir dýra­væn vinnu­brögð og vel­ferð dýr­anna.“

Meðvirkni MAST óskiljanleg og ekki í lagi

Þá segir Ole að Hrönn og hennar fólk hljóti að sjá að stuðn­ingur þeirra við þessa óiðju, eins og hann orðar það, stand­ist hvorki þær skyldur né þá ábyrgð sem þau hafi gagn­vart vel­ferð dýra í land­inu.

„Í raun er með­virkni MAST með Ísteka og bændum í þessu máli, ekki bara nú, heldur á und­an­gengnum árum, þá ekki síst sú blessun, sem Fagráð um vel­ferð dýra, með yfir­dýra­lækni í far­ar­broddi, lagði yfir málið, ekki skilj­an­leg og alls ekki í lagi!“

Ole segir það ekki upp­byggi­legt að MAST þurfi að fara ofan í saumana á rann­sókn erlendra aðila til að átta sig á dýra­haldi sem Mat­væla­stofnun á sjálf að hafa eft­ir­lit með.

„Þú ert auð­vitað ný í þessu starfi, og er von­andi, að þú setjir nú þitt mark á að breyta og bæta þess­ari stofnun, þannig, að hún standi undir þeim skyldum um að tryggja dýra­vel­ferð í land­inu, sem henni er ætlað með lögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Blóðmerahald

AfhjúpunBlóðmerahald

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upp­hafi til enda

Lyf úr með­göngu­horm­óni fyl­fullra, íslenskra hryssa, hafa þær „óæski­legu auka­verk­anir“ að of margir grísir, stundum of stórir, oft smáir og veikl­aðir, fæð­ast gyltum á þýskum svína­búum. Blóð­takan hefur frá því í byrjun nóv­em­ber, eftir áminn­ingu frá ESA, verið felld undir reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni. Það gæti breytt öllu, segja þýsku og sviss­nesku dýra­vernd­un­ar­sam­tökin sem rann­sakað hafa iðn­að­inn í fjögur ár.

Myndband

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina