Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Terry Gunnell um Grýlu: „Hún er náttúrulega á vissan hátt fyrsti femínistinn“

Terry Gunnell um Grýlu: „Hún er náttúrulega á vissan hátt fyrsti femínistinn“
Terry Gunnell. Mynd úr einka­safni.

Terry Adrian Gunnell, pró­fessor í þjóð­fræði við Háskóla Íslands, var gestur í hlað­varp­inu Jóla­ser­í­unni hjá Mannlífi á dög­unum.

Terry er afar fróður um hina ýmsu vætti sem tengj­ast jól­unum, sögur og siði í ald­anna rás. Hann veit sér­stak­lega mikið um Grýlu – hvaðan hún kemur og sögu svip­aðra skessa í öðrum löndum, svo eitt­hvað sé nefnt.

Terry var spurður út í hið drunga­lega í kringum jólin – enda fátt nota­legra svona á aðvent­unni en að velta fyrir sér draugum, tröllum og alls konar öðrum ófétum sem hræddu fólk hér á árum áður.

Dyr milli heima opnast

„Jólin eru, eins og við hugsum um þau, alltaf 24., 25. des­em­ber. Kristin trú, Jesú­barnið og svo fram­vegis. En á Norð­ur­löndum eru ræt­urnar í 21. des­em­ber, sem er lengsta nótt árs­ins. Þegar menn eru að vona að sum­arið komi aftur. Ljósið kemur aftur, sólin fer þá að hækka á lofti og þetta er eins og með mið­sumar; á þessum tímum er eins og dyr milli heima opn­ist. Þetta er það sem við köllum svona milli­bils­á­stand eða jað­ar­tíma. Þar sem breyt­ingar eru að eiga sér stað í nátt­úr­unni og líka umhverf­inu og svo fram­vegis. Ekki síst í sam­bandi við sól­ina.

Þannig að þetta er tími, í þjóð­trú að minnsta kosti, þar sem maður getur búist við því að lenda í klóm ein­hverra yfir­nátt­úru­legra vera. Og á Íslandi eru aðal fígúr­urnar nátt­úr­lega Grýla og jóla­svein­arnir, og jóla­kött­ur­inn og svo fram­vegis. Svo eru álfar sem fara á milli bæja á svip­uðum tíma.

Það er margt sem er tengt við gamlárs­kvöld en svo er ýmis­legt sem ger­ist á jólum, í kringum jóla­tím­ann, sem fær­ist milli daga. Ekki síst vegna þess að í gamla daga var verið að færa jólin. Í kringum 1600 tóku menn eftir því að lengsta nótt árs­ins var komin á 13. des­em­ber. Þess vegna þurfti að stytta árið um sirka 12 nætur. Þess vegna eru 12 dagar fyrir jól og 12 dagar eftir jól. Það er nátt­úr­lega alltaf grun­sam­legt þegar rík­is­stjórn fer að fikta við árið á þennan hátt. En það var nauð­syn­legt til þess að hafa jól þar sem þau eru núna og það var verið að breyta tíma­kerf­inu úr því róm­verska yfir í gregor­í­anska tíma­kerfið, sem kom frá páf­anum. Þess vegna er til dæmis á Hjaltlandseyjum enn þá talað um hin gömlu jól og nýju jól.

Þannig að við höfum gömlu jólin sem eru 13., og við höfum nýju jólin sem eru 24., 25. des­em­ber. Þá höfum við sirka þessa 24 daga, til 6. jan­úar, til að útskýra tíma­bilið og ýmis­legt fær­ist milli daga.“

Grýla

„Grýla er kannski flókn­asta veran sem við eigum í sam­bandi við jólin. Hún er mjög gömul fígúra; hún þekk­ist frá 13. öld reyndar. Þá er hún ekki tengd við jól, heldur er hún ein­hver vera sem er uppi í fjöll­unum og er að ráð­ast á fólk. Í Sturl­unga­sögu er saga um mann sem heitir Jón Loftsson sem er mjög pirr­aður út í annað fólk sem er búið að gera grín að honum í dans­vísum. Þá ákveður hann að ráð­ast á bæinn þar sem þetta fólk býr og þegar hann kemur niður fer hann með vís­una um Grýlu. Grýla kemur í garð, með alla þessa hala og er að ráð­ast á bæinn … þetta er vísa sem við þekkjum enn í dag, og er ennþá þekkt í Færeyjum til dæmis.

Þá er hann að ráð­ast á, meðal ann­ars, mann sem heitir Stein­grímur Skinn­grýlu­son, sem er leik­ari. Skrýtið nafn, vegna þess að að jafn­aði eru það föð­ur­nöfn sem menn nota. En það virð­ist líka vera á þessum árum að menn hafi verið að leika Grýlu, eins og er enn þá gert í Færeyjum.

Fyrsti hluti af Sverris-sögu heitir Grýla. Þá býr hann í Noregi, er uppi í fjöll­unum og er að ráð­ast á fólk úr ýmsum áttum; hann er að búa sér til svona þjóð­sagn­ar­per­sónu fyrir sig. Þannig að hann er í raun­inni Grýla. Og það eru vísur sem segja eitt­hvað eins og „Hvar er Grýla núna? Hvenær kemur hún niður?“. Þannig að það er ein­hver vera í fjöll­unum, ein­hver kven­vera.

Grýla á dönsku þýðir að urra. Eins og urr­andi vera. Með tím­anum nátt­úr­lega, á Íslandi, fer hún að breyt­ast og við eigum þessar vísur um jóla­svein­ana og Grýlu frá sirka 1600, 1700, 1800.“

Villta reiðin

„En á meðan, í öðrum löndum, eru siðir og sögur um hópa af vættum sem ráð­ast að húsum og bæjum á jólum. Stórir hópar af dauðum mönnum og tröllum sem koma niður og ráð­ast inn á bæi og stela mat, stela fólki og fara á milli bæja. Þetta er kallað „villta reiðin“ eða „the wild ride“, sem er vel þekkt í mörgum löndum, til dæmis í Þýska­landi. En í Vestur-Noregi heitir per­sónan sem leiðir þennan hóp, á íslensku, Guðrún með hesta­hal­ann. Aftur höfum við hal­ana og kven­veru sem leiðir hóp af vættum, eins og jóla­svein­ana hér.“

Julebukk og Julegeit

„Það eru sögur af þessu tagi og líka siðir, þar sem fólk klæðir sig upp í bún­inga; í skinn, sem er auð­veld­ast að nota til að fela sig og fara á milli bæja á jólum og nýársnótt og líka snemma í jan­úar – svona á jóla­tíma­bil­inu. Í Noregi heitir aðal­vætt­ur­inn Julebukk eða Julegeit, sem hefur horn og fleira, eins og Grýla í vís­unum. Stundum kemur hann einn, stundum er það kven­vera. Og svo aðrar verur líka, önnur nöfn sem menn nota. En Julebukk og Julegeit fara á milli bæja á þessum tíma og krefj­ast matar, krefj­ast þess að fá eitt­hvað að drekka, fá áfengi. Stundum, þegar krakk­arnir höfðu fengið að heyra um hóp af illum vættum sem komu niður úr fjöll­unum og réð­ust á bæina, þá var hópur af ungum karl­mönnum sem réðst inn í bæina á sama tíma. Siðirnir styrkja sög­urnar, sög­urnar bæta ein­hverju við sið­ina. Menn gefa í skyn að þeir komi niður úr fjöll­unum: „Ég er einn af þeim“.“

Jólaleikir: „Ef þeir heimsækja þig ekki, þá er eitthvað að þér“

Terry segir að þetta hafi stundum þró­ast í jóla­leiki sem voru ómissandi hluti af jóla­tíma­bil­inu.

„Stundum er þetta jóla­leikur. Ef þeir heim­sækja þig ekki, þá er eitt­hvað að þér. Þeir koma og þú þarft að giska á hver það er sem er búinn að klæða sig upp og fela sig. Ef þú veist hver það er, þá tekur hann grímuna af sér og heldur áfram að ræða við þig og drekka. Svo fer hann áfram á næsta bæ. Þeir eru oft blind­fullir. Alltaf karl­menn. Ungir, ógiftir karl­menn, sem gera þetta árlega.

Í sumum bæjum er kona sem heitir Lussi. Við þekkjum auð­vitað líka Lúsíu, en hér lítur hún nákvæm­lega út eins og Grýla. Hún hefur horn, hesta­hófa og er með tösku með sér. Það er til frá­bær mynd af Lussi í Hardan­ger frá sirka 1800 og með henni er lít­ill maður með geit­ar­haus sem heitir Jules­vein. Þannig að við höfum þá jóla­sveina; karl­menn sem fara á milli bæja á jólum og eru að stela pylsum, kjöti og skyri og ég veit ekki hverju öðru. Stela, frekar en að fá gef­ins.

Við höfum ekki nákvæm­lega eins siði á Íslandi en við höfum aftur á móti viki­vaka-leiki, sem ger­ast oft á þessum tímum. Menn fóru í bæ og þá kom fólk inn í bún­ingum, til dæmis tröll­kona; Háa-Þóra. Svo eru ýmsir aðrir sem eru dýr, alveg eins og Julegeit og Julebukk. Þannig að ég held að sams konar siðir hafi verið til hér á landi í gamla daga, eins og Skinn­grýla gefur í skyn; þetta var til. Svona frum­leik­list, ein­hvern veg­inn.

Það er gaman að hafa svona spennu líka og hóp­ast saman. Strákar nátt­úr­lega í bún­ingum, að reyna að fá stelpur til að hóp­ast saman. Mikil læti og svo­leiðis í kringum þá.“

Álfahóparnir

„Hér á Íslandi eru svo líka sögur um illa vætti sem ráð­ast inn í bæi á jólum. Við höfum álfa, af ein­hverjum ástæðum. Ekki tröll lengur eða dauða menn, heldur álfa. Þeir nátt­úr­lega eiga hús ann­ars staðar, til hvers að stela? En þetta eru samt sams konar sögur. Íslend­ingar vita að Norðmenn eru með hóp af tröllum. Það er aldrei hópur af tröllum á Íslandi. Hópur af álfum – ókei, við tökum þá bara álfa í stað­inn. Það er ekki rými fyrir fullt af tröllum í húsum, það bara gengur ekki. Þannig að; ókei, fínt, þá eru það bara árans álfarnir á þessum tíma.“

Grettir og Glámur takast á.

Bruce Willis og Grettir

„Svo er ein­hver hetja sem heyrir af því að heima­menn séu að flytja út úr bænum á jólum árlega. Ekkert mál, hann mun ráð­ast í þetta, eins og Bruce Willis. Þetta er sama saga og Die Hard og Home Alone. Hetjan og svo ein­hverjir vættir sem koma, svona ter­r­oristar eða eitt­hvað.

En Bruce Willis kemur í heim­sókn og í Noregi er hann oft­ast með ísbjörn með sér. Það gengur ekki heldur á Íslandi. Íslend­ingar vita að ef þú ert að ganga um með ísbirni ertu bara nesti fyrir ísbjörn­inn. Þannig að það þurfti að breyta þessu aðeins. Í einni gerð af sög­unni hér þá er hann með kind með sér. Það passar reyndar ekki heldur. Tröllin, vætt­irnir, eiga að vera hræddir við dýrið. En, sagan er til, og margar útgáfur af sög­unni þar sem hetjan kemur inn og losnar við álf­ana sem eru búnir að taka yfir bæinn.

Sams­konar og ennþá eldri sögu eigum við í Grettis-sögu. Þá eru það draugar sem eru að ráð­ast að heima­húsum á jólum. Í Grettis-sögu er það Glámur. Grettir losnar aldrei við hræðsl­una við augu Gláms. En siður Gláms er sá sami; að ráð­ast í heima­hús á jólum og menn flytja út þangað til Bruce Grettir kemur.“

Grýla fyrsti femínistinn

Ljóst er að í mörgum þessum sögum frá hinum ýmsu löndum er það kven­per­sóna sem leiðir vætt­ina.

„Á Írlandi er til dæmis kona sem heitir „Kell­ingin“, sem er tákn fyrir vet­ur­inn.

Sögurnar um Grýlu eru til úti um allt í lönd­unum í kringum okkur, í mis­mun­andi formi. Þannig að þetta er ekki bara íslenskur siður eða íslensk þjóð­trú. Þetta er nor­rænt að miklu leyti.“

Aðspurður hvort Grýla sé ill í allri þess­ari þjóð­trú og mis­mun­andi útgáfum af sögum segir Terry að hún sé alltaf gýgur, tröll­kona.

„Hún er nátt­úr­lega á vissan hátt fyrsti femínist­inn. Kona sem borð­aði fyrsta eig­in­mann sinn. Það er eitt með hana, sem er bara get­gáta, en í nor­rænni trú eru vet­ur­nætur árs­ins í lok októ­ber, byrjun nóv­em­ber. Á allra heil­agra messu. Og vet­ur­nætur á Íslandi eru líka tengdar við Dísablót, sem er fyrir kven­kyns verur. Þær eru líka tengdar við Þor­björgu Lít­il­völvu, í Eiríks­sögu, sem fer milli bæja og er að spá á þennan tíma. Og þá höfum við Grýlu, Kell­ing­una og fleiri, miðs­vetrar.“

Freyja og göltur hennar, Hild­isvíni. Mynd­skreyt­ing í Hyndlu­ljóðum Eddu­út­gáfu Karls Gjell­erup frá 1895.

Veturinn tími kvenna

Terry segir að á þessum árs­tíma hafi konur ráðið meiru innan veggja heim­il­is­ins. Þær höfðu lykla­völdin, stjórn­uðu þræl­unum og svo fram­vegis.

„Þannig að ein­hvern veg­inn, á þessum tíma, tekur við tími kvenna. Sumarið er tími karla. Að fara í stríð, að versla, að slá blett­inn og svo fram­vegis. Maður fer líka að hugsa, að í nor­rænni trú eru Freyr og Freyja, Freyr og Gerður – þau eru aldrei saman, heldur alltaf að leita hvort að öðru. Freyja fer í burtu að leita að Óðni, Freyr er að leita að Gerði og Þór er alltaf fyrir austan ein­hvers staðar. Hann er ekki hér, þegar maður þarf að fá aðstoð.

Þá fer maður að hugsa hvort það sé mögu­leiki að árinu hafi verið skipt í tvennt. Að vet­ur­inn hafi þá verið tími kvenna; þegar allt er að ger­ast inni í jörð­inni, inni í bumbunni, að sumu leyti. Svo sprettur allt úr jörð­inni þegar sum­arið kemur og þá fara menn að slá. Yfirborð – und­ir­borð, myrkur – ljós. Þá er spurn­ing hvort Grýla, Lussi og fleiri séu leifar af Freyju, til dæmis. Sem er líka tengd við hina dauðu í sumum Eddu­kvæðum. Þetta er bara get­gáta, en þetta myndi útskýra af hverju guð­irnir eru ekki hér. Þeir eru ann­ars staðar á þessum tíma.

Mér þætti mjög gaman að sjá fólk taka upp Dísablót hér, í stað­inn fyrir „Halloween“. Tími kvenna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina