Leitin að Almari Yngva Garðarssyni stendur enn yfir en þrjár björgunarsveitir leita hans ásamt lögreglu. Þá hafa sjálfboðaliðar einnig boðið sig fram við leitina en í Facebook hópnum Leitin að Almari er fólk beðið um að skrá þau svæði sem þau ætla að leita á, svo það sé einhver yfirsýn á leitinni.
„Sæl öll
Eftir samtal við lögregluna höfum við þær upplýsingar að 3 björgunarsveitir eru að hefja leit að Almari okkar. Við viljum biðla til allra sem hafa tök á að leita í sínu nærumhverfi eða geta tekið að einhvern hátt, þátt í leitinni að skrifa í komment eða haka við hér að neðan hvar þið ætlið ykkur að leita eða hafi leitað nú þegar.
Til þess að gera leitina markvissari viljum við byrja á því að skipta Hafnarfirði niður í svæði, einnig biðjum við þá sem eru staðsettir á Suðurlandi eða á Suðurnesjunum um að merkja við hvar þið hafið leitað.“
Hægt er að skrá leitarsvæði hér.































Athugasemdir