Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigríður Karlsdóttir er lýtalæknir en kynnir sig sem handarsérfræðing: Reiður sjúklingur vill svör

Sigríður Karlsdóttir er lýtalæknir en kynnir sig sem handarsérfræðing: Reiður sjúklingur vill svör

Mannlíf hefur undir höndum gögn er varða lækni sem er sér­mennt­aður sem lýta­læknir en fékk stöðu sem hand­ar­sér­fræð­ingur.

Sjúk­lingur sem fór í aðgerð hjá áður­nefndum lýta­lækni, sem heitir Sigríður Karls­dóttir, og er sér­mennt­aður lýta­læknir, er ekki sáttur.

Við­kom­andi, sem sendi ábend­ingu á Mannlíf, vildi ekki koma fram undir nafni að svo stöddu en hann var sjúk­lingur hjá Sigríði.

„Þetta varðar sér­fræði­lækni hjá LSH. Lýta­læknir vinnur og kallar sig handa­skurð­lækni. Af hverju veit ég ekki, en komst að þessu því ég var sjúk­lingur hjá við­kom­andi lækni. Hún kynnti sig sem hand­ar­sér­fræð­ing og ég hélt ég væri að fara hitta sér­fræð­ing í því fagi eins og stóð a papp­írum sem ég fekk í pósti. Sendi afrit af því með.“

Við­kom­andi aðili seg­ist ekki vera sáttur við afgreiðslu á sínu vanda­máli:

„Og þess vegna fór ég að gramsa í þessu. Á heima­síðu Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins er hægt að sjá hvort læknir sé með rétt­indi eða ekki og þá sá ég að Sigríður er með leyfi sem lýta­læknir en ekki hand­ar­skurð­læknir. Veit ekki hversu lengi hún hefur verið þarna, en mér finnst þetta mjög ein­kenni­legt; að þykj­ast vera hand­ar­skurð­læknir en ekki vera það. Ég var ekki að þykj­ast vera sjúk­lingur, og ég þótt­ist ekk­ert vera með bak­verki, ég þurfti á þjón­ustu hand­ar­skurð­læknis að halda.

Í bréfi sem ég fékk frá bækl­un­ar­skurð­deild­inni stóð að ég hefði fengið tima hjá Sigríði Karls­dóttir hand­ar­sér­fræð­ingi og þannig kynnti hún sig. Ég man vel eftir því. Mér þykir þetta allt vera hið und­ar­leg­asta mál og kalla eftir skýr­ingu á þessu. Spurn­ingin er: Af hverju þetta er látið við­gang­ast?

Ég hefði haldið að maður þyrfti að vera með rétt­indi í því fagi sem maður vinnur við sem sér­fræði­læknir. Getur þá hvaða sér­fræð­ingur sem er unnið í allt öðru fagi en hann er mennt­aður, og er það eitt­hvað eðli­legt og bara almennt? Til dæmis, hjarta­læknir gæti þá unnið og kallað sig gigt­ar­lækni? Er þetta ein­hver klíku­starf­semi hjá þessum spít­ala?“

Hinn ósátti sjúk­lingur sem Sigríður með­höndl­aði bætir þessu við mál sitt:

„Svo fór að ég náði mér í enn frek­ari upp­lýs­ingar bæði hjá land­lækni og land­spít­ala:

„6 gr.

Rétt til að kalla sig sér­fræð­ing í sér­grein innan lækn­is­fræði og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi land­læknis.“

„Það stendur skýrt að við­kom­andi má ekki kalla sig hand­ar­sér­fræð­ing sam­kvæmt 7 gr.

Umsækj­andi um sér­fræði­leyfi í sér­grein og und­ir­sér­grein innan lækn­is­fræði skal fyrst hafa hlotið sér­fræði­leyfi í því ríki þar sem sér­námið eða meiri­hluti sér­náms fór fram; og þar sem sér­námi lauk.“

Bendir á 9. gr:

„Sér­fræði­leyfi má veita að loknu við­ur­kenndu form­legu sér­námi, sbr. 7. og 8. gr.

Til að hljóta sér­fræði­leyfi í und­ir­sér­grein innan við­kom­andi aðal­greinar skal umsækj­andi hafa hlotið sér­fræði­leyfi í við­kom­andi aðal­grein og hafa lokið form­legu við­ur­kenndu sér­námi í und­ir­grein­inni. Með und­ir­grein er átt við frek­ari sér­hæf­ingu á fræða- og starfs­sviði sem fellur innan við­kom­andi aðal­greinar. Auk tveggja und­ir­sér­greina er hægt að við­ur­kenna eina við­bót­ar­sér­grein skv. 10. gr.

10. gr:

Sér­greinar: Sérgrein skal standa á traustum fræði­legum grunni og eiga sér sam­svörun á við­ur­kenndum alþjóð­legum vett­vangi Samkvæmt þess­ari reglu­gerð má veita Bækl­un­ar­skurð­lækni við­ur­kenn­ingu í hand­ar­skurð­lækn­ingum sem und­ir­sér­grein. Einnig má veita sér­fræði­leyfi i hand­ar­skurð­lækn­ingum eftir við­ur­kennt nám i þeirri grein sam­kvæmt 8 gr.“

„Samkvæmt 10 gr. þá er ekk­ert nefnt að lýta­læknar geti fengið hand­ar­skurð­lækn­ingar metið sem und­ir­sér­grein í dag.

Eftir að hafa lesið í gegnum þessa reglu­gerð þá er hér tví­mæla­laust um brot á reglum að ræða.

Horft hefur verið fram­hjá reglum og kröfum varð­andi menntun til hand­ar­skurð­læknis að mínu mati sem sjúk­lings.“

Bætir við:

„Svo kynnti ég mér hvernig stöðu­veit­ingar sér­fræði­lækna fara fram, hjá LSH; ræddi við lækni sem ég þekki lít­il­lega og hann sagði mér að allar sér­fræði­stöður ættu að fara i gegnum nefnd, og spurn­ing hvort það var farið fram hjá því í þessu ferli? Fór veit­ing Sigríðar lýta­læknis sem hand­ar­skurð­læknis í gegnum eðli­legt ferli, í gegnum nefnd.“

Sjúk­lingur Sigríðar lýta­læknis sem hélt að hún væri hand­ar­skurð­læknir spyr:

„Hver ákveður svona veit­ingar og af hverju. Væri ekki gott að athuga það? Mér finnst þetta vera frétt sem á erindi til almenn­ings og hvernig farið er skatt­pen­inga okkar og hrein­lega logið að okkur skatt­borg­urum og sjúk­lingum. Þetta er ekki í lagi! Fær maður bara sí svona að vinna við fag og kannski taka vaktir án þess að hafa rétt­indi?

Ég komst líka að því að sam­kvæmt starfs­lýs­ingu séfræði­lækna að það finn­ast svo­kall­aðar hæfnikröfur hja LSH, sem eru:

„Læknir með sérfræði­leyfi hefur lokið sérnámi (fram­haldsnámi) í þeim sérgreinum sem hann hyggst stunda á Landspítala – brot þarna – og LSH hefur sýnt fram á íslenskt sérfræði­leyfi í sinni sérgrein – líka brot þarna. LSH býr yfir hæfni í mann­legum sam­skiptum og vilja til teym­is­vinnu og sam­vinnu, jafnt við aðra lækna sem og annað heil­brigð­is­starfsfólk.“

Sjúk­lingur Sigríðar spyr að lokum:

„Er eitt­hvað meira um svona ráðn­ingar hjá LSH? Ég bara spyr.

Bestu kveðjur,

Skatt­borg­ari á Íslandi.“

Mannlíf sendi ítar­lega fyr­ir­spurn á Ólaf Bald­urs­son, Ölmu land­lækni og fleiri sem gætu varpið ljósi á ráðn­ingu Sigríðar.

Svör bár­ust ekki frá neinum sem mennt­aðir eru í lækn­is­fræði, heldur fékk Mannlíf svör frá Kjartani Hreini Njáls­syni, aðstoð­ar­manni land­læknis og fyrrum blaða­manni.

Hér eru spurn­ing­arnar:

1. Mega sér­mennt­aðir læknar í sinni sér­fræði­grein eða sér­fræði­greinum starfa sem sér­fræð­ingar í öðrum sér­fræði­greinum sem þeir eru ekki útskrif­aðir í? Ef svo er, þarf þá skrif­lega und­an­þágu veitta af ykkur og/eða nefnd? Og yrði slík und­an­þága þá tíma­bundin eða til lang­frama?2. Má sér­fræð­ingur í til dæmis inn­kirtla­skurð­lækn­ingum og háls-, nef- og eyrna­skurð­lækn­ingum starfa sem hjarta- og brjóst­hols­skurð­læknir eða sem lýta­læknir?3. Má til dæmis þvag­færa­skurð­læknir kynna sig sem æða­skurð­læknir fyrir sjúk­lingum sínum, eða verður við­kom­andi sér­fræði­læknir alltaf að segja hvaða sér­grein við­kom­andi lagði stund á og útskrif­að­ist í?Úr Lækna­blað­inu:,,Í dag eru sam­tök almennra skurð­lækna, æða­skurð­lækna, barna­skurð­lækna, lýta­lækna, bækl­un­ar­skurð­lækna, hjarta- og brjóst­hols­skurð­lækna, hand­ar­skurð­lækna, þvag­færa­skurð­lækna, heila- og tauga­skurð­lækna, inn­kirtla­skurð­lækna og háls-, nef- og eyrna­skurð­lækna aðilar að Skurð­lækna­fé­lagi Íslands.“4. Geta sér­fræði­læknar sem eru til dæmis heila- og tauga­skurð­læknar verið félagar í sam­tökum þvag­færa­skurð­lækna? Svo dæmi sé nefnt.5. Ef mögu­leg aðgerð fer af ein­hverjum völdum illa eða ekki nægi­lega vel, getur mögu­legur sjúk­lingur kraf­ist miska­bóta, farið í mál til dæmis við við­kom­andi lækni, LSH og jafn­vel Land­lækni, vegna þess að mögu­leg aðgerð fór úrskeiðis og mögu­legur sér­fræði­læknir hafi ekki kynnt sig fyrir mögu­legum sjúk­lingi sem þann sér­fræði­læknir sem hann útskrif­að­ist sem?

Hér eru svör Kjartans:

  1. Mega sér­mennt­aðir læknar í sinni sér­fræði­grein eða sér­fræði­greinum starfa sem sér­fræð­ingar í öðrum sér­fræði­greinum sem þeir eru ekki útskrif­aðir í? Ef svo er, þarf þá skrif­lega und­an­þágu veitta af ykkur og/eða nefnd? Og yrði slík und­an­þága þá tíma­bundin eða til lang­frama?

Starfs­heitið „læknir“ er lög­verndað starfs­heiti, sbr. lög um heil­brigð­is­starfs­menn, nr. 34/2012. Sá sem lokið hefur lækn­is­fræði­námi og því starfs­námi sem við á getur sótt um starfs­leyfi sem læknir. Sá sem lýkur sér­fræði­námi getur að auki sótt um við­ur­kenn­ingu á því og þar með fengið leyfi til notk­unar lög­vernd­aðs sér­fræði­heitis. Lög­verndun felur í sér að sá einn má nota starfs­heitið og sér­fræði­heitið sem fengið hefur leyfi land­læknis til slíks.

Í 2. gr. reglu­gerðar um menntun, rétt­indi og skyldur lækna og skil­yrði til að hljóta almennt lækn­inga­leyfi og sér­fræði­leyfi nr. 467/2015 kemur fram að rétt til að kalla sig lækni og starfa sem slíkur hér á landi hafi sá einn sem fengið hefur útgefið almennt lækn­inga­leyfi frá land­lækni. Þá segir í 6. gr. sömu reglu­gerðar segir að rétt til að kalla sig sér­fræð­ing í sér­grein innan lækn­is­fræði og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi land­læknis.

Læknir með sér­fræði­við­ur­kenn­ingu A má ekki kalla sig sér­fræð­ing í B hafi hann ekki sér­fræði­leyfi land­læknis í B. Land­læknir veitir ekki und­an­þágur til að læknar geti kallað sig sér­fræð­ing í öðru en þeir hafa menntað sig til og upp­fyllt sett skil­yrði fyrir sér­fræði­við­ur­kenn­ingu. Spurn­ingin felur í sér hvort til sé eitt­hvað það sem er störf sem eng­inn má sinna nema sá sem hefur sér­fræði­leyfi. Má t.d. heim­il­is­læknir sinna börnum eða mega bara barna­læknar sinna börnum? Þarf sér­fræð­ing í mynd­grein­ingum til að lesa úr mynd­grein­ingu eða má t.d. sér­fræð­ingur í lungna­sjúk­dómum lesa úr lungna­myndum? Svarið er að ein­stök verk eru ekki lög­vernduð. T.d. eru við störf hér á landi, á heilsu­gæslu­stöðvum og víðar læknar sem lokið hafa lækna­námi en hafa ekki lokið sér­fræði­námi í t.d. heim­il­is­lækn­ingum. Með sama hætti gæti t.d. sér­fræð­ingur í lyf­lækn­ingum unnið á t.d. heilsu­gæslu­stöð, á grund­velli almenns lækn­inga­leyfis síns. Eðli máls­ins sam­kvæmt er það hlut­verk stjórn­enda á heil­brigð­is­stofnun að tryggja að læknir sinni ekki öðrum störfum en þeim sem við á. Og að sjálf­sögðu er það á ábyrgð hvers og eins að taka ekki að sér önnur verk­efni en þau sem við­kom­andi ræður við.

Það gefur auga leið að sum störf og verk eru sér­hæfð­ari en önnur; þannig getur eng­inn læknir fram­kvæmt hjarta­skurð­að­gerð nema hjarta­skurð­læknir og eng­inn læknir fram­kvæmt heila­skurð­að­gerð nema heila­skurð­læknir.

Um þetta er t.d. fjallað í 13. gr. laga um heil­brigð­is­starfs­menn, þar sem segir: „Heil­brigð­is­starfs­maður skal virða fag­legar tak­mark­anir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúk­lingi til ann­ars heil­brigð­is­starfs­manns eftir því sem nauð­syn­legt og mögu­legt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Þá má einnig hafa hlið­sjón af í 10. gr. laga um heil­brigð­is­starfs­menn nr. 34/2012 í þessu sam­bandi þar sem segir: „Þeim sem ekki hefur gilt leyfi land­læknis er óheim­ilt að nota lög­gilt starfs­heiti eða starfa sem heil­brigð­is­starfs­maður. Honum er jafn­framt óheim­ilt að veita sjúk­lingi með­ferð sem fellur undir lög­verndað starfs­svið lög­giltrar heil­brigð­is­stéttar eða gefa lækn­is­fræði­legar eða aðrar fag­legar ráð­legg­ingar.“

Í athuga­semdum sem fylgdu frum­varpi til lag­anna kemur fram að við túlkun á því hvenær heil­brigð­is­starfs­maður starfar sem slíkur og hvenær hann fer inn á lög­verndað starfs­svið ann­arrar heil­brigð­is­stéttar verði að líta til þess að víða er veru­leg skörun á starfs­sviði heil­brigð­is­stétta og mörkin ekki alltaf skýr. Við mat á því hvort heil­brigð­is­starfs­maður hefur farið inn á lög­verndað starfs­svið ann­arrar stéttar skal litið til hags­muna sjúk­linga af því að heil­brigð­is­starfs­maður hafi nauð­syn­lega fag­lega þekk­ingu og hæfni til við­kom­andi starfa, fremur en hags­muna heil­brigð­is­stéttar af því að úti­loka aðrar heil­brigð­is­stéttir frá því að sinna til­teknum störfum.

2. Má sér­fræð­ingur í til dæmis inn­kirtla­skurð­lækn­ingum og háls-, nef- og eyrna­skurð­lækn­ingum starfa sem hjarta- og brjóst­hols­skurð­læknir eða sem lýta­læknir?

Sjá svar við 1. spurn­ingu.

3. Má til dæmis þvag­færa­skurð­læknir kynna sig sem æða­skurð­læknir fyrir sjúk­lingum sínum, eða verður við­kom­andi sér­fræði­læknir alltaf að segja hvaða sér­grein við­kom­andi lagði stund á og útskrif­að­ist í?

Sjá svar við 1. spurn­ingu, þ.e. um lög­vernduð sér­fræði­heiti. Það á hvaða sér­grein við­kom­andi lagði stund og útskrif­að­ist í nægir ekki til að mega kynna sig sem sér­fræð­ing í þeirri sér­grein. Við­ur­kenn­ing land­læknis á sér­fræði­nám­inu og þar með heim­ild til notk­unar lög­vernd­aðs sér­fræði­heitis er for­senda. Hér má vísa til áður­greindra ákvæða 6. gr. reglu­gerðar nr. 467/2015 um lækna og  10. gr. laga nr. 34/2012 um heil­brigð­is­starfs­menn.

Úr Lækna­blað­ið­inu: 

,,Í dag eru sam­tök almennra skurð­lækna, æða­skurð­lækna, barna­skurð­lækna, lýta­lækna, bækl­un­ar­skurð­lækna, hjarta- og brjóst­hols­skurð­lækna, hand­ar­skurð­lækna, þvag­færa­skurð­lækna, heila- og tauga­skurð­lækna, inn­kirtla­skurð­lækna og háls-, nef- og eyrna­skurð­lækna aðilar að Skurð­lækna­fé­lagi Íslands.“ 

4. Geta sér­fræði­læknar sem eru til dæmis heila- og tauga­skurð­læknar verið félagar í sam­tökum þvag­færa­skurð­lækna? Svo dæmi sé nefnt.

Embætti land­læknis kemur ekki að ákvörðun um það í hvaða félaga­sam­tökum menn eru. Embætti land­læknis bendir á að Lækna­fé­lag Íslands væri rétti aðil­inn til þess að svara þess­ari spurn­ingu.

5. Ef mögu­leg aðgerð fer af ein­hverjum völdum illa eða ekki nægi­lega vel, getur mögu­legur sjúk­lingur kraf­ist miska­bóta, farið í mál til dæmis við við­kom­andi lækni, LSH og jafn­vel Land­lækni, vegna þess að mögu­leg aðgerð fór úrskeiðis og mögu­legur sér­fræði­læknir hafi ekki kynnt sig fyrir mögu­legum sjúk­lingi sem þann sér­fræði­læknir sem hann útskrif­að­ist sem?

Embætti land­læknis ákveður ekki miska­bætur. Í hverju ein­stöku til­viki er metið hvort sjúk­linga­trygg­ing Sjúkra­trygg­inga Íslands og vátrygg­ing sjálf­stætt starf­andi lækna á við um skaða sem hlýst af aðgerð. Embætti land­læknis kemur ekki að því. Sjúk­lingur getur lagt fram kvörtun til emb­ættis land­læknis telji hann um mis­tök eða van­rækslu að ræða. Sem fyrr segir er lög­verndun á ákveðnum starfs­heitum og sér­fræði­heitum. Sjálf­stætt starf­andi heil­brigð­is­starfs­maður á að hafa vátrygg­ingu. Benda má á lög um heil­brigð­is­þjón­ustu, nr. 40/2007 þar sem segir í 10. gr., um fag­lega ábyrgð á heil­brigð­is­stofn­unum:

  1. gr.Fag­stjórn­endur.
    Á heil­brigð­is­stofnun skal starfa fram­kvæmda­stjóri lækn­inga, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­unar og eftir atvikum aðrir fag­legir yfir­stjórn­endur sem bera fag­lega ábyrgð á þjón­ustu stofn­un­ar­innar gagn­vart for­stjóra.
    Yfir­læknar sér­greina eða sér­deilda innan heil­brigð­is­stofn­unar bera fag­lega ábyrgð á þeirri lækn­is­þjón­ustu sem undir þá heyrir gagn­vart fram­kvæmda­stjóra lækn­inga eða næsta yfir­manni sam­kvæmt skipu­riti stofn­unar.
    Deild­ar­stjórar hjúkr­unar innan heil­brigð­is­stofn­ana bera fag­lega ábyrgð á þeirri hjúkr­un­ar­þjón­ustu sem undir þá heyrir gagn­vart fram­kvæmda­stjóra hjúkr­unar eða næsta yfir­manni sam­kvæmt skipu­riti stofn­unar.
    … 1) [F]agstjórn­endur innan heil­brigð­is­stofn­unar bera fag­lega ábyrgð á þeirri þjón­ustu sem þeir veita og undir þá heyrir í sam­ræmi við stöðu þeirra í skipu­riti stofn­un­ar­innar.

kv.,

Kjartan Hreinn Njálsson

aðstoð­ar­maður land­læknis

Mannlíf sendi Kjartani Hreini Njáls­syni ekki tölvu­póst. Sendir voru tölvu­póstar með ofan­greindum spurn­ingum á eft­ir­talin net­föng:

[email protected]

[email protected]

[email protected]

[email protected]

[email protected]

[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ