MinningHelgi Ólafsson er fallinn frá31. október 2026 Helgi Ólafsson, rafvirkjameistari á Raufarhöfn, lést á Dvalarheimilinu Hvammi 27. október, 97 ára að aldri. Morgunblaðið greindi frá andláti hans. Helgi fæddist á Raufarhöfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveinsprófi í rafvirkjun árið 1950 og hlaut meistararéttindi fimm árum síðar. Hann starfaði við rafvirkjun alla starfsævina, meðal annars fyrir Síldarverksmiðjur ríkisins og SR-mjöl, auk þess að...
MinningGuðrún Birna Gísladóttir er látin30. október 2026 Guðrún Birna Gísladóttir, fyrrverandi forstjóri hjúkrunarheimilisins Grundar, lést 20. október. Morgunblaðið greinir frá andlátinu. Guðrún fæddist á Grund við Hringbraut 1. júlí 1944. Hún varð þriðji ættliðurinn til að stýra Grund en afi hennar, sr. Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason, var meðal stofnenda heimilisins. Guðrún starfaði á Grund í 52 ár og tók við starfi forstjóra árið 1994. Hún var fyrsta konan...
MinningBjörgvin Birgisson er fallinn frá27. október 2026 Björgvin Birgisson, skipstjóri og Akureyringur, lést á heimili sínu 13. október. Hann fæddist á Akureyri 9. apríl 1964 og ólst upp í Glerárhverfi. Akureyri.net greinir frá andláti hans. Björgvin lauk námi við Stýrimannaskólann á Dalvík og öðlaðist skipstjórnarréttindi. Hann helgaði starfsævi sína að mestu sjómennsku og var meðal annars skipstjóri á uppsjávarskipinu Hákoni. Utan vinnu naut Björgvin útivistar og ferðalaga...
MinningSteingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn24. október 2026 Steingrímur Ingi Björnsson, rafvirkjameistari, verslunarmaður og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri þriðjudaginn 13. október, 85 ára að aldri. Hann lést í faðmi fjölskyldu sinnar. Akureyri.net sagði frá andlátinu. Steingrímur fæddist í Lyngholti í Glerárþorpi 26. júní 1941. Hann var einn af öflugum knattspyrnumönnum Akureyrar á sínum tíma og varð fyrsti leikmaður Þórs sem valinn var...
MinningSigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá23. október 2026 Söngkonan Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz lést í Bandaríkjunum 18. október, 91 árs að aldri en hún fæddist á Egilsá í Skagafirði 16. september 1935. Morgunblaðið greindi frá andláti hennar. Sigurlaug hóf ung söngnám og naut meðal annars leiðsagnar Sigurðar Birkis, Engel Lund og Einars Kristjánssonar. Hún vakti mikla athygli árið 1968 þegar hún fór með hlutverk greifafrúarinnar í Brúðkaupi Fígarós eftir...
MinningArnþór Örlygsson er fallinn frá18. október 2026 Arnþór Örlygsson lést í jeppaslysi á Gæsavatnaleið á föstudag. Hann var 47 ára að aldri. Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi frá nafni Arnþórs í tilkynningu. Arnþór lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn, stjúpson og barnabörn. Slysið varð á Gæsavatnaleið á föstudag og lést Arnþór af völdum þess. Lögreglan á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins.
MinningMarga Ingeborg Thome er látin16. október 2026 Margareta Ingeborg Thome, prófessor emerita við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, er látin, 84 ára að aldri. Morgunblaðið greinir frá andláti hennar. Margareta, sem kölluð var Marga, fæddist í Þýskalandi árið 1942 og flutti til Íslands árið 1973. Hún var menntuð hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og hóf kennslu við Háskóla Íslands árið 1974. Hún varð fyrsti fastráðni kennarinn við námsbraut í...
MinningAnna Valdimarsdóttir er fallin frá15. október 2026 Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur lést á Landspítalanum við Hringbraut 9. október, 78 ára að aldri. Morgunblaðið greindi frá andláti hennar. Anna lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og nam sálfræði og bókasafnsfræði við Háskóla Íslands. Síðar lauk hún cand. psych.-prófi frá Háskólanum í Ósló og stundaði framhaldsnám við University of Washington. Anna opnaði sálfræðistofu árið 1982 og varð þekkt fyrir námskeið...
MinningTveir látnir eftir árekstur á Austurlandi4. október 2026 Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í umferðarslysi í gær á þjóðvegi 1 við Háreksstaðakvísl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þá voru tveir fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús með sjúkraflugi til Reykjavíkur, erlendir ferðamenn einnig. Aðrir voru í kjölfar slyssins færðir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum. Þeir voru útskrifaðir samdægurs. Meiðsli talin minniháttar. Rannsókn á tildrögum...
MinningFlosi Kristinsson er fallinn frá3. október 2026 Flosi Kristinsson, bóndi á Höfða í Grýtubakkahreppi, lést á hjúkrunarheimilinu Grenilundi á Grenivík 24. september síðastliðinn. Akureyri.net greinir frá andláti hans. Flosi fæddist í Hringsdal á Látraströnd 10. mars 1929. Fjölskyldan flutti að Höfða árið 1932 og vann Flosi við landbúnaðarstörf frá unga aldri. Hann starfaði einnig við vegagerð og stundaði sjómennsku um nokkurra ára skeið. Árið 1950 keypti Flosi...
MinningSigurður Hafstein er fallinn frá1. október 2026 Sigurður Hafstein, fyrrverandi bankastjóri, lést á hjartadeild Landspítalans 24. september, 85 ára að aldri. Morgunblaðið greindi frá andláti hans. Sigurður fæddist 11. október 1940. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1967 og framhaldsnámi við Stokkhólmsháskóla tveimur árum síðar. Hann starfaði fyrst sem lögmaður og öðlaðist réttindi hæstaréttarlögmanns árið 1974. Sigurður tók virkan þátt í félags- og stjórnmálastarfi og var...
MinningBaldur Sveinsson er látinn24. september 2026 Baldur Sveinsson, kennari og flugvélaljósmyndari, lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi 15. september, 84 ára að aldri. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu. Baldur fæddist í Reykjavík 25. janúar 1942. Hann lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 1962 og öðlaðist síðar kennsluréttindi frá Háskóla Íslands. Hann starfaði við Verzlunarskólann í 43 ár, meðal annars sem stærðfræði- og tölvukennari, þar...
MinningÁrni Þór Grétarsson er fallinn frá23. september 2026 Kveðja frá Handknattleiksdeild Selfoss
MinningDagný Ósk Vestmann er látin23. september 2026 Óttaðist dauðann og fór strax að skipuleggja jarðarförina
MinningRannveig Pálsdóttir er fallin frá18. september 2026 Rannveig Pálsdóttir, húsmóðir og fyrrverandi gjaldkeri við Menntaskólann að Laugarvatni, er látin, 91 árs að aldri. Morgunblaðið greindi frá andláti hennar. Rannveig ólst upp í Stóru-Sandvík og lauk landsprófi á Selfossi. Hún gekk síðar í Húsmæðraskólann í Reykjavík og starfaði meðal annars við lyfjaafgreiðslu og verslun áður en hún hóf skrifstofustörf við Menntaskólann að Laugarvatni. Þar var hún um árabil...