Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Áslaug Arna kveður ömmu sína

„Fastur punktur í til­ver­unni horf­inn á braut“

Áslaug Arna kveður ömmu sína
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Áslaug Arna minn­ist ömmu sinnar með hlýju Mynd: Instagram

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra, minn­ist ömmu sinnar, Elsu, í ein­lægri Facebook-færslu þar sem hún rifjar upp náið sam­band þeirra, sam­eig­in­legar minn­ingar og þann ómet­an­lega stuðn­ing sem amma hennar veitti henni í gegnum lífið.

„Þótt kveðju­stundin nú sé lífs­ins gangur eftir gjöf­ult líf þá er fastur punktur í til­ver­unni horf­inn á braut og það er sárt,“ skrifar Áslaug Arna.

Hún segir þær ömmu sína hafa verið perlu­vin­konur og að sam­band þeirra hafi orðið enn nán­ara eftir að móðir Áslaugar, elsta dóttir Elsu, lést langt fyrir aldur fram. Þær hafi fundið styrk hvor í annarri í sorg­inni.

„Amma hefur verið mér mik­il­væg, bæði sem hún sjálf og sem teng­ing við mömmu sem við sökn­uðum sárt,“ segir hún.

Kynnti barnabörnin fyrir listum og menningu

Í færsl­unni rifjar Áslaug Arna upp hvernig amma hennar kynnti barna­börnin fyrir menn­ingu og listum frá unga aldri. Elsa hafði sjálf stundað dans og saum­aði bún­inga fyrir Íslensku óper­una, sem varð að ævin­týra­heimi í augum barna­barn­anna.

Áslaug nefnir sér­stak­lega óper­una Töfraflaut­una eftir Mozart og per­són­urnar Papagenó og Papagenu. Einnig rifjar hún upp fjöl­skyldu­sam­komur á heim­ili ömmu sinnar og afa í Kópavogi þar sem fjöl­skyldu­með­limir settu á svið söng- og dans­at­riði.

„Amma velti því samt þó oft fyrir sér hvort slíkur fer­ill hefði ekki verið skyn­sam­legra val en stjórn­málin,“ skrifar Áslaug í léttum tón.

Elsa studdi barna­barn sitt af heilum hug þótt hún við­ur­kenndi stundum að hún skildi ekki alltaf ákvarð­anir hennar. Áslaug segir ömm­una hafa haft áhyggjur af því álagi sem fylgdi stjórn­mála­þátt­töku og þeirri gagn­rýni sem hún varð fyrir.

Sjálf hafði Áslaug þó meiri áhyggjur af miklu safni blaða­úr­klippa sem amma hennar hafði safnað um hana úr Morg­un­blað­inu í nærri tvo ára­tugi.

Nýjustu úrklipp­urnar röt­uðu á vegg hjá ömm­unni og þeim fylgdu gjarnan skila­boð um skoð­anir hennar á mál­efnum líð­andi stundar.

Mætti alltaf til að hjálpa

Áslaug segir stuðn­ing ömmu sinnar hafa birst í hvers­dags­legum verkum jafnt sem hlýjum sam­tölum. Þegar mikið álag var á henni hafi Elsa alltaf fundið leið til að létta undir, hvort sem það var með því að strauja rúm­föt, ann­ast plöntur eða stytta buxur og gera við föt.

Sér­stak­lega hafi Áslaug þó metið heim­sókn­irnar þegar amma hennar mætti með spurn­ingar um mál­efni líð­andi stundar. Hún vildi kynna sér málin betur og geta varið barna­barnið sitt hvar og hvenær sem væri.

Áslaug rifjar einnig upp ferð fjöl­skyld­unnar á Þing­velli árið 1994, þegar 50 ára afmælis lýð­veld­is­ins var minnst. Elsa klædd­ist þá þjóð­bún­ingi og hafði saumað nýja barna­þjóð­bún­inga á þrjár fyrstu dætra­dætur sínar.

Áslaug erfði síðar þjóð­bún­ing föð­ur­ömmu sinnar, Áslaugar, og naut aðstoðar Elsu við að klæð­ast honum við ýmis til­efni. Fyrir þremur árum saum­aði Elsa nýja bláa svuntu á þjóð­bún­ing­inn svo barna­barnið hefði fleiri mögu­leika þegar hún klædd­ist honum.

Síðasta samtalið var henni kært

Áslaug segir síð­asta sam­tal sitt við ömm­una hafa verið henni sér­stak­lega dýr­mætt. Þær hafi rætt um bæði nýja tíma og gamla, en Elsa hafi jafn­framt sagt að hún væri til­búin að kveðja.

Hún minn­ist einnig heim­sóknar þeirra í Hann­es­ar­holt þar sem þær lásu saman ljóð eftir Hannes Hafstein. Sú stund sé ein af mörgum sem hún minn­ist nú með þakk­læti og bros á vör.

„Takk fyrir allt amma,“ skrifar Áslaug Arna að lokum.

Með færsl­unni birtir hún ljóð­línur Hannesar Hafstein sem hefj­ast á orð­unum:

„Það er svo gaman að gleðj’ana ömmu,
og bros á vörum hennar sjá,
því amma er mamma hennar mömmu
og hún mamma er það besta sem ég á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Minning

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Marga Ingeborg Thome er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá

Minning

Arnþór Örlygs­son er fall­inn frá