Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Dagný Ósk Vestmann er látin

Óttaðist dauð­ann og fór strax að skipu­leggja jarð­ar­för­ina

Dagný Ósk Vestmann er látin
Dagný Ósk Vestmann „Mik­il­vægt að finna það fal­lega í litlu hlut­unum“ Mynd: Mannlíf

Dagný Ósk Vestmann er látin, 38 ára að aldri, eftir bar­áttu við krabba­mein. Hún lést á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans eftir stutta inn­lögn. Dagný lætur eftir sig eig­in­mann og tvö börn. Hún vakti mikla athygli fyrir opin­skáa og ein­læga frá­sögn af veik­indum sínum, þar sem hún not­aði reynslu sína til þess að minna fólk á að finna gleð­ina í litlu hlut­unum.

Dagný greind­ist fyrst með þriðja stigs, ill­kynja og horm­óna­já­kvætt brjóstakrabba­mein síðla árs 2017, þá aðeins þrí­tug að aldri. Meinið hafði þá þegar dreift sér í eitla og nokkrum árum síðar kom í ljós að það hafði dreift sér víðar um lík­amann.

Í við­tali við Mannlíf árið 2021 lýsti Dagný þeim mikla hug­ar­hrær­ingi og ótta sem grein­ing­unni fylgdi í upp­hafi: „Ég fór strax að jarða sjálfa mig í hug­anum um leið og lækn­ir­inn sagði mér að ég væri með krabba­mein. Ég var komin með laga­list­ann fyrir jarð­ar­för­ina og búin að setja kross­inn á leiðið og allt saman.“

Mætti fordómum og „móðursýkisstimplun“

Leið Dagnýjar að grein­ingu var ekki án hind­r­ana. Hún fann fyrst fyrir stórri kúlu í brjóst­inu ágúst 2017 en fékk dræmar und­ir­tektir hjá fyrsta lækn­inum sem hún leit­aði til. Hún sagði lækn­inn hafa vísað áhyggjum hennar á bug og talið kúl­una horm­óna­tengda.

„Ég nennti ekki að díla við þetta við­mót og þessa móð­ur­sýkis stimplun,“ sagði Dagný um ákvörðun sína að segja lækn­inum síðar að kúlan væri farin, til þess eins að losna við við­mótið, en ætl­aði sér að leita annað. Þegar lögun brjóst­s­ins breytt­ist skömmu síðar fékk móðir hennar tíma fyrir hana á Leit­ar­stöð­inni. Þann 12. des­em­ber 2017 fékk hún loks stað­fest­ingu á því að um alvar­legt mein væri að ræða.

Mikilvægt að finna það fallega í litlu hlutunum

Baráttan reynd­ist fjöl­skyld­unni þung, bæði and­lega og fjár­hags­lega, og á loka­metr­unum kom Dagný sjálf að skipu­lagn­ingu eigin útfarar. Í síð­asta við­tali sínu á Vísi, sem birt­ist tæpum sól­ar­hring áður en hún lést, lagði hún áherslu á ríkt þakk­læti gagn­vart öllum þeim sem sýnt höfðu fjöl­skyld­unni stuðn­ing.

Hún skildi eftir sig mik­il­væg skila­boð til sam­fé­lags­ins um lífs­gildi og mik­il­vægi þess að hægja á sér:

„Mig langar að minna fólk á að finna það fal­lega í litlu hlut­unum. Lífið getur ekki snú­ist enda­laust um hraða þannig að maður gleymi að njóta þess. Það er svo mik­il­vægt að staldra aðeins við.“

Fyrir þá sem vilja sýna fjöl­skyld­unni stuðn­ing á þessum erf­iðu tímum er opinn söfn­un­ar­reikn­ingur á nafni Kristins Bjarka Hjalta­sonar, eig­in­manns Dagnýjar:

  • Kennitala: 160183-5439
  • Banka­númer: 0702-15-835439
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Minning

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Arnþór Örlygs­son er fall­inn frá

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína