1
Heimur

Unglingur lést við að renna sér

2
Fólk

Svaraði árás Jóns með rappi hjá Gísla Marteini

3
Fólk

Kona með sögu

4
Heimur

Rússneskur hershöfðingi montaði sig af pyntingum og aftökum úkraínskra stríðsfanga

5
Heimur

Reiði eftir að smábarn fékk gallað hjarta

6
Innlent

Rúta ók ofan í skurð

7
Heimur

Leyniþjónustumenn drápu mann á heimili Trumps

8
Innlent

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar - Annar kafli

Til baka

Aðjúnkt við HÍ segir stjórnvöld sitja aðgerðarlaus frammi fyrir þjóðarmorði

„Hryllingnum verður að linna en við ætlum ekki að gera neitt sem gæti mögulega haft áhrif“

Gaza
Eyðileggingin á GazaIngólfur gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega

Dr. Ingólfur Gíslason, sem er aðjúnkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega viðbrögð íslenskra og vestrænna stjórnvalda við ástandinu á Gaza. Í færslu sem hann birti á Facebook segir hann að íslenskt mennta- og menningarfólk sé almennt á vinstri vængnum í stjórnmálum og telji jöfnuð, mannréttindi og velferð mikilvæga þætti. Samt sem áður hafi þessi hópur verið hikandi við að gagnrýna stjórnvöld fyrir skort á aðgerðum gagnvart Ísrael.

Ingólfur bendir á að ríkisstjórnin hafi setið aðgerðalaus mánuðum saman þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um áhyggjur af ástandinu á Gaza. Yfirlýsingar um þjóðarmorð, sem gefnar voru út fyrir kosningar, hafi jafnvel verið dregnar til baka. Hann segir orðræðuna litaða af ásökunum í garð Palestínumanna sjálfra, þar sem hryllingurinn sé fordæmdur en ábyrgðin færð á Hamas.

Í færslunni fjallar hann einnig um tengsl Ísraels við vesturlönd og nefnir nýlegar fregnir um væntanleg kaup Bretlands á hernaðartækni frá Ísrael fyrir um tvo milljarða punda, sem samsvarar rúmlega 320 milljörðum íslenskra króna. „Vesturlönd hafa ekki beitt neinum refsiaðgerðum af neinu tagi gegn Ísrael þó að það hafi framið þjóðarmorð og sé enn að fremja þjóðarmorð af fullum þunga,“ skrifar hann.

Hann bendir á að Bandaríkin hafi hins vegar gripið til viðskiptaþvingana gegn dómurum og saksóknurum Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) fyrir að hyggjast sækja leiðtoga Ísraels til saka.

„Hryllingnum verður að linna en við ætlum ekki að gera neitt sem gæti mögulega haft áhrif,“ segir Ingólfur að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Leyniþjónustumenn drápu mann á heimili Trumps
Heimur

Leyniþjónustumenn drápu mann á heimili Trumps

Maðurinn var vopnaður.
Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar - Annar kafli
Úttekt
Innlent

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar - Annar kafli

Rússneskur hershöfðingi montaði sig af pyntingum og aftökum úkraínskra stríðsfanga
Heimur

Rússneskur hershöfðingi montaði sig af pyntingum og aftökum úkraínskra stríðsfanga

Svaraði árás Jóns með rappi hjá Gísla Marteini
Fólk

Svaraði árás Jóns með rappi hjá Gísla Marteini

Reiði eftir að smábarn fékk gallað hjarta
Heimur

Reiði eftir að smábarn fékk gallað hjarta

Unglingur lést við að renna sér
Heimur

Unglingur lést við að renna sér

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar
Úttekt
Innlent

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar

Bitvargur á sextugsaldri réðist á lögreglumann
Heimur

Bitvargur á sextugsaldri réðist á lögreglumann

Átján létust í hörðum árekstri rútubíls og vörubíls í Egyptalandi
Heimur

Átján létust í hörðum árekstri rútubíls og vörubíls í Egyptalandi

Tíu ára drengur látinn eftir sveðjuárás á Tenerife
Heimur

Tíu ára drengur látinn eftir sveðjuárás á Tenerife

Nora Haukland lýsir meintu ofbeldi í sambandi við Marius Borg Høiby
Heimur

Nora Haukland lýsir meintu ofbeldi í sambandi við Marius Borg Høiby

Innlent

Axel kærði blaðamann DV vegna fréttar
Innlent

Axel kærði blaðamann DV vegna fréttar

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar - Annar kafli
Úttekt
Innlent

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar - Annar kafli

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar
Úttekt
Innlent

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar

Hlaut tíu ára dóm fyrir banvæna árás í Kiðjabergi
Innlent

Hlaut tíu ára dóm fyrir banvæna árás í Kiðjabergi

Sakar Auði og Kvenfélag Íslands um „froðufellandi karlhatur“
Innlent

Sakar Auði og Kvenfélag Íslands um „froðufellandi karlhatur“

Loka auglýsingu