1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

3
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

4
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

5
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

6
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

7
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

8
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

9
Minning

Megas er látinn

10
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Til baka

Sakar Auði og Kvenfélag Íslands um „froðufellandi karlhatur“

„Tilgangur þessa pistils er ekki að bera Auði og Kvenréttindafélag Íslands saman við barnaníðshring Epsteins“

Auður Önnu Magnúsdóttir
Auður Önnu MagnúsdóttirEinar er lítt hrifinn af skrifum Auðar
Mynd: Landvernd

Einar Steingrímsson, stærðfræðingur, skrifaði pistil sem birtur var á Vísir í gær þar sem hann gagnrýnir skrif Auðar Önnu Magnúsdóttur og starf Kvenréttindafélag Íslands, sem hún fer fyrir.

Í upphafi pistilsins segir Einar að ekkert bendi til þess að Auður eða Kvenréttindafélagið tengist brotum Jeffrey Epstein. Hann skrifar meðal annars:

„Ekkert bendir beinlínis til að Auður Önnu Magnúsdóttir og Kvenréttindafélag Íslands, sem hún er í forystu fyrir, tengist níðingsverkum Jeffrey Epstein, enda virðast Auður og félagið ekki nefnd í þeim skjölum sem birt hafa verið, enn sem komið er. En, ...“

Í framhaldinu gagnrýnir Einar framsetningu í pistli Auðar, sem birtist á Vísi í fyrradag og segir hann nota svokallað „en“-stílbragð. Hann hafnar þeirri aðferð og segir:

„Það er ekkert „en“, þetta er bara stílbragð sem ég lærði af pistli Auðar, fyrir hönd Kvenréttindafélagsins, sem birtist í Vísi í gær, 17. febrúar.“

Einar segir í pistli sínum að Auður hafi í sínum skrifum nafngreint karla sem, að hans mati, hafi ekki verið sýnt fram á að hafi framið refsiverð brot. Hann skrifar:

„Þar nafngreinir hún, eftir inngang um Epstein, nokkra karla sem ekkert hafa til saka unnið svo við getum vitað, nema hvað sumir þeirra viðhöfðu óviðurkvæmileg ummæli um konur, í litlum hópi vina.“

Hann bætir við kaldhæðnislegri athugasemd um persónulega framkomu Auðar:

„Við erum auðvitað sannfærð um að Auður hafi aldrei sagt neitt ljótt um annað fólk í einkasamkvæmum, enda hefur hún sjálf nýlega útskýrt opinberlega hvernig hún er miklu betri manneskja en við hin.“

Síðar í pistlinum setur Einar fram dæmi um hvernig, að hans mati, sams konar rökfærslu mætti beita á Auði og Kvenréttindafélagið, þó hann taki fram að hann mæli ekki með því. Hann skrifar orðrétt:

„Tilgangur þessa pistils er ekki að bera Auði og Kvenréttindafélag Íslands saman við barnaníðshring Epsteins, heldur frekar að undirstrika að það er það sama sem liggur til grundvallar í báðum tilfellum: Manneskjufyrirlitning. Hún birtist hjá Epstein í kvenfyrirlitningu og viðurstyggilegri framkomu við konur, en hjá Auði og Kvenréttindafélaginu í froðufellandi karlhatri.“

Að lokum veltir Einar upp þeirri spurningu hvort stjórnvöld eigi áfram að styðja starfsemi félagsins með opinberu fé. Hann skrifar:

„Sú spurning verður sífellt áleitnari hversu langt ofstækisfemínistar þurfa að ganga áður en hið opinbera hættir að styrkja svona soralegan áróður og persónuníð af almannafé.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu