Lögregla hafði í nógu að snúast síðustu nótt og komu nokkur alvarleg mál til kasta hennar, þar á meðal hótanir með vopnum, líkamsárásir og brot í umferðinni.
Maður var handtekinn í Reykjavík eftir að hafa hótað gangandi vegfaranda með eggvopni. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var maðurinn töluvert vímaður og var hann vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.
Þá var einstaklingur handtekinn inni á skemmtistað í miðborginni eftir að hafa tekið upp hníf og ógnað gestum staðarins. Lögregla handtók manninn á vettvangi og var hann vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að taka af honum skýrslu. Þegar komið var með manninn á lögreglustöð lét hann ekki þar við sitja heldur beitti lögreglumann ofbeldi. Það mál fer einnig sinn farveg innan kerfisins.
Í öðru tilviki voru tveir einstaklingar handteknir eftir að til átaka kom á heimili. Þeir voru vistaðir í fangageymslu þar til unnt verður að taka af þeim skýrslur.
Lögregla hafði einnig afskipti af starfsmanni skemmtistaðar í miðborginni þar sem grunur leikur á að viðkomandi sé hér á landi í ólöglegri dvöl. Sá aðili var vistaður vegna málsins.
Nokkur umferðarmál komu einnig til kasta lögreglu. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna og reyndist jafnframt sviptur ökuréttindum. Þriðji ökumaðurinn var einnig stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, en auk þess reyndist hann réttindalaus og ekki í öryggisbelti.
Einn ökumaður var einnig handtekinn grunaður um ölvunarakstur.
Lögreglu barst jafnframt tilkynning um líkamsárás í Hafnarfirði. Enginn var handtekinn í því máli en það hefur verið sent til rannsóknardeildar lögreglu. Í öðru máli í Hafnarfirði voru tveir handteknir eftir líkamsárás og voru þeir vistaðir þar til víma þeirra rennur af og hægt verður að ræða við þá.
Þá var maður handtekinn fyrir að hafa staðið í hótunum við unglingsstúlkur og var hann vistaður í þágu rannsóknar málsins.
Loks tóku lögreglumenn eftir manni á rafskutlu sem þeir könnuðust við. Kom í ljós að hann var eftirlýstur vegna annarra mála og var hann handtekinn og vistaður þar til hægt verður að ræða við hann.
Einnig framkvæmdi lögregla, í samstarfi við skattyfirvöld, athugun á veitingastað. Þar kom í ljós að erlendir starfsmenn höfðu verið ráðnir til vinnu án tilskilinna leyfa. Málið er nú til rannsóknar.


Komment