1
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

2
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

3
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

4
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

5
Minning

Megas er látinn

6
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

7
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

8
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

9
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

10
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Til baka

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns

„Af hverju gerði enginn neitt?“

Margrét löf
Margrét LöfHálfbróðir Margrétar opnar sig um málið
Mynd: Facebook

Bróðir Margrétar Höllu Hansdóttur Löf er þeirrar skoðunar að unnt hefði verið að koma í veg fyrir þann harmleik sem endaði með því að hún banaði föður þeirra, Hans Löf, í Súlunesi í fyrra. Hann segir að kerfið hafi brugðist og lýsir bæði handtökudeginum og þeirri upplifun sem hann hefur haft af málinu í kjölfarið.

„Það sem mér finnst verst í þessu öllu saman er að það hefði verið hægt að grípa inn í,“ segir hálfbróðir Margrétar, sem dæmd var fyrir manndrápið í apríl 2025. Þau eru samfeðra en ólust ekki upp saman.

Í síðari þætti Vítahrings Margrétar Löf á Rás 1 segir hann frá sinni sýn á málið. Hann kýs að stíga ekki fram undir nafni. Í þáttunum er leitast við að skýra hvernig aðstæður innan fjölskyldunnar þróuðust á þann veg að úr varð banvænn atburður.

Bróðirinn gagnrýnir að heilbrigðisstarfsfólk hafi ekki gripið til harðari aðgerða þegar grunur vaknaði um að faðir hans væri beittur heimilisofbeldi. Hans Löf leitaði ítrekað til lækna vegna áverka sem hann hafði hlotið af völdum Margrétar dagana áður en hann lést. Sjálfur segist bróðirinn ekki hafa haft hugmynd um ofbeldið sem átti sér stað á heimilinu.

„Ég skil alveg að fólk sé að velta því fyrir sér: Hvar var bróðirinn? Af hverju steig hann ekki inn í? Ég skil það alveg, því mín saga er ekki þarna úti. Það veit enginn hvernig okkar samband var. Fólk hélt kannski að ég hefði alist upp á heimilinu og þetta væri hið hefðbundna fjölskyldumynstur. En það var ekki. Ég hefði stigið inn í á sekúndunni hefði ég vitað af þessu.“

„Mikill ljúflingur“

Hálfbróðir Margrétar var kominn vel á unglingsaldurinn þegar hún fæddist og hafði í raun ekki myndað tengsl við föður sinn fyrr en mun síðar. Samband móður hans og Hans Rolands Löf var stutt og feðgarnir kynntust ekki fyrr en drengurinn var orðinn tólf ára. Í þættinum rifjar hann upp hvernig samband þeirra þróaðist með árunum og minnist föður síns með hlýju.

„Hann var mikill ljúflingur, vildi öllum vel og sýndi fólki mikla umhyggju. Honum var ekki sama um fólk. Hann var líka mikill grínisti og hafði lúmskan húmor.“

Þegar Margrét fæddist var bróðir hennar kominn á menntaskólaaldur. Hann segir að þegar hún var barn hafi hann vonast til að frekja og yfirgangur myndu minnka með aldrinum, en að það hafi verið augljóst að hún stjórnaði foreldrum sínum. Hann taldi sig þó ekki í stöðu til að gera athugasemdir.

„Ég bjó aldrei hjá þeim. Þegar ég kom þá var ég bara sem gestur.“

Gríðarlegt sjokk

Hann lýsir einnig morgninum þegar lögregla hafði samband og greindi honum frá því að faðir hans væri á gjörgæslu og að systir hans hefði verið handtekin. Fréttirnar komu honum algjörlega í opna skjöldu þar sem hann hafði ekki haft hugmynd um ofbeldi á heimilinu. Enn stærra áfall beið hans þó á spítalanum.

„Þetta var mikið sjokk þegar ég labbaði inn og sá framan í hann. Ég held ég hafi staðið þarna gapandi örugglega í mínútu. Ég var algjörlega óundirbúinn því.“

Hann segir föður sinn hafa verið alvarlega slasaðan, bæði í andliti og á líkama.

„Ég var orðlaus. Ég hafði aldrei séð neina ofbeldisfulla hegðun frá henni. Frekja og yfirgangur, já. En ofbeldi? Nei. Þetta kom mér algjörlega á óvart.“

Finnur fyrir reiði

Í kjölfarið hafi margar spurningar vaknað, ekki síst þegar í ljós kom að faðir hans og eiginkona hans höfðu ítrekað leitað læknishjálpar vegna áverka. Þrátt fyrir að heilbrigðisstarfsfólk hafi farið að gruna heimilisofbeldi voru þau ávallt send aftur heim. Bróðirinn telur að annað hvort lögreglu eða honum sjálfum hefði átt að vera gert viðvart.

„Af hverju gerði enginn neitt?“

Aðspurður segist hann finna fyrir reiði.

„Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta. Að starfsfólkið sé bundið vilja fórnarlambsins til þess að kæra eða grípa til aðgerða. Mér finnst það bara ekki halda vatni. Afleiðingin er þessi; hann lætur lífið og mamman stórslösuð. Í þessum tilvikum þegar þú ert með svona aldrað fólk sem er hrætt, það kannski gerir sér ekki grein fyrir því hvaða úrræði standa þeim til boða. Þá á einhver að koma og reyna að aðstoða þetta fólk, ekki senda það aftur heim til kvalara síns.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu