1
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

2
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

3
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

4
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

5
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

6
Fólk

Helgi Magnús kominn aftur á stjá

7
Minning

Þórir Einarsson er fallinn frá

8
Menning

Kærasta drullusokka

9
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

10
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Til baka

Barnamorðinginn Lucy Letby lýsir lífinu í fangelsi

Lögmaður „Engils dauðans“ reynir hvað hann getur að fá dómnum hnekkt

Lucy Letby
Lucy LetbyLucy situr nú af sér 15 lífstíðardóma

Bréf sem breski barnamorðinginn og hjúkrunarfræðingurinn Lucy Letby skrifaði úr fangelsi varpar dökkri mynd af lífi hennar bak við lás og slá. Í handskrifuðu bréfi segir hún að „engin orð“ dugi til að lýsa núverandi aðstæðum hennar og sver þess eið að hún muni aldrei hætta að berjast fyrir „sakleysi sínu“.

Ummælin koma fram í bréfi til vinkonu sem birt er í nýrri og uggvænlegri heimildarmynd á Netflix um réttarhöldin yfir henni og áframhaldandi áfrýjanir. Þar greinir Letby í fyrsta sinn frá aðstæðum sínum í fangelsi og talar um hversu sárt hún sakni gæludýra sinna, eftir að áhorfendur sjá hana á skjánum klappa ketti sínum og kveðja, þegar lögregla handtekur hana á heimili hennar.

Vinkonan, sem er nafnlaus í myndinni en kölluð Maisie, les bréfið upp. Þar skrifar Letby:

„Maisie, engin orð lýsa stöðu minni, en það að vita að ég eigi vináttu þína, sama hvað á gengur, skiptir mig ólýsanlega miklu.“

Hún heldur áfram:

„Ég er með eigið herbergi og salerni. Ég get farið í sturtu á hverjum degi og út í göngutúr. Það er svo mikilvægt að komast út, þó að það sé svolítið kalt. Ég sakna Tigger og Smudge ólýsanlega mikið, það nístir hjarta mitt að þau skilji ekki hvers vegna ég er ekki lengur þar. Þau hljóta að halda að ég sé hræðileg mamma. Mamma og pabbi hugsa þó vel um þau og dekra eflaust við þau,“ bætir hún við. Að lokum skrifar hún:

„Ég reyni að gera allt sem ég get til að vera sterk og jákvæð. Ég er staðráðin í að komast í gegnum þetta. Ég mun ekki gefast upp.“

Eftir að Maisie les bréfið upp sést hún gráta á skjánum. Hún segir að hún viti ekki lengur hvað hún eigi að segja við vinkonu sína, sem fjölmiðlar hafa kallað „engil dauðans“.

„Fram að réttarhöldunum og dómnum skrifuðum við hvor annarri. Nú veit ég ekki hvað ég á að segja,“ segir hún.

Síðar í myndinni segir Maisie að hún trúi enn vinkonu sinni, þrátt fyrir að smávægilegur vafi nagi hana.

„Það er alltaf einhver vafi, því sama hversu vel þú þekkir einhvern, þá þekkirðu aldrei allt. En nema ég sjái raunveruleg sönnunargögn get ég ekki trúað þessu. Ég veit að fólk heldur að ég styðji barnamorðingja, en hún er vinkona mín, núna, almennt og að eilífu,“ segir hún.

Letby, sem er 36 ára og frá Hereford, afplánar nú 15 ævilanga dóma eftir að hafa verið sakfelld fyrir að myrða sjö ungabörn og reyna að myrða sjö til viðbótar, þar af tvívegis sama barnið, á árunum 2015 til 2016.

Hún heldur áfram að lýsa yfir sakleysi sínu og lögfræðiteymi hennar vinnur að því að finna leið til að hnekkja dómnum.

Í heimildarmyndinni The Investigation Of Lucy Letby fá áhorfendur í fyrsta sinn að sjá þegar hún var handtekin árið 2018, þar sem lögregla nálgast hana á meðan hún liggur í rúminu. Hún virðist agndofa þegar hún er leidd á brott í slopp eftir að hafa verið sagt:

„Ég handtek þig vegna gruns um morð og tilraun til manndráps.“

Lögregla rekur einnig í myndinni hvernig sönnunargögn voru fundin og notuð til að sakfella Letby en hún hefur tvisvar sinnum tapað áfrýjunum.

Myndin sýnir jafnframt mannlegri hlið á Letby, meðal annars þar sem hún sést klappa gæludýrinu sínu og sitja í lögregluklefa.

Lögmaður hennar, Mark McDonald, sem tók við málinu í september 2024, útskýrir í myndinni hvers vegna hann telur hana eiga að hljóta lausn. Hann var fenginn af foreldrum hennar og berst nú fyrir endurupptöku málsins.

„Við verðum að muna að enginn sá hana gera neitt rangt. Það er ekkert eftirlitsmyndband og enginn augljós hvati,“ segir hann.

„Þetta var deild í algerri krísu. Hjúkrunarfræðingar grétu eftir vaktir vegna álags, manneklu og þess að hafa of mörg börn án nægilegra úrræða.“

The Investigation Of Lucy Letby verður frumsýnd á Netflix um allan heim í dag, 4. febrúar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Mannlíf varpar ljósi á son, bróður og dæmdan morðingja
Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

Helgi Magnús kominn aftur á stjá
Fólk

Helgi Magnús kominn aftur á stjá

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen
Innlent

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen

Þórir Einarsson er fallinn frá
Minning

Þórir Einarsson er fallinn frá

Hnífaræningi hótaði fólki
Innlent

Hnífaræningi hótaði fólki

Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður
Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður

Loftvarnarflautur hljóma nú stanslaust í Ísrael
Heimur

Loftvarnarflautur hljóma nú stanslaust í Ísrael

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein
Heimur

Leita að líkum stúlkna við búgarð Epstein

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram
Heimur

Hörmungarnar í Úkraínu halda áfram

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml
Myndband
Heimur

Myndband af hóstakasti Pútíns fjarlægt af Kreml

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“
Heimur

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“

Loka auglýsingu