1
Minning

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

2
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

3
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

4
Minning

Haukur Guðmundsson er fallinn frá

5
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

6
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

7
Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu

8
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

9
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

10
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Til baka

Bjartmar heiðraður fyrir austan

„Hinn eini sanni risi í íslensku tónlistarlífi.“

Bjartmar Guðlaugsson
Bjartmar GuðlaugssonEinn af alvöru töffurum Íslands
Mynd: Facebook

Tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson hlaut heiðursverðlaun tónlistarhátíðarinnar Köld sem fram fór í Neskaupstað um síðustu helgi. Verðlaunin eru veitt þeim sem hafa lagt sérstakt af mörkum til tónlistarlífs á Austurlandi að því er fram kemur í frétt Austurfréttar um málið.

Bjartmar á rætur á Austurlandi en hann bjó á Fáskrúðsfirði til sjö ára aldurs og síðar um árabil á Eiðum. Í gegnum árin hefur hann einnig unnið með tónlistarfólki úr fjórðungnum, meðal annars hljómsveitinni SúEllen og Bjarna Tryggvasyni söngvaskáldi.

Hann er fæddur árið 1952 og hóf tónlistarferil sinn á því að semja lög og texta fyrir aðra flytjendur. Meðal annars samdi hann texta fyrir hljómsveitina Loga úr Vestmannaeyjum á plötu sem kom út árið 1977. Síðar samdi hann lag og texta að laginu „Þannig týnist tíminn“, sem Ragnar Bjarnason og Lay Low gáfu út árið 2012.

Sólóferill Bjartmars hófst árið 1984 þegar hann gaf út sína fyrstu plötu, Ef ég mætti ráða. Síðan þá hefur hann samið fjölda laga sem notið hafa mikilla vinsælda, þar á meðal „Með vottorð í leikfimi“, „Sumarliði er fullur“ og „Týnda kynslóðin“.

Frá árinu 2010 hefur hann komið fram með hljómsveitinni Bergrisanum og ferðast með henni um landið en Bjartmar steig einmitt á svið með sveitinni á tónleikum hátíðarinnar á föstudagskvöld.

Í umsögn hátíðarinnar, sem Jón Björn Hákonarson las upp við afhendingu verðlaunanna, sagði meðal annars: „Við fáum því ekki einungis Bergrisana heldur hinn eina sanna risa í íslensku tónlistarlífi.“

Hér fyrir neðan má hlusta á lag Bjartmars, Kaffi Tröð þar sem hann syngur um að vera einmana og Austfirskur á Kaffi Tröð.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Stórstjörnur stofna saman fyrirtæki
Peningar

Stórstjörnur stofna saman fyrirtæki

Miklir snillingar þarna á ferðinni
Buxnalaus maður handtekinn af sérsveit
Myndband
Heimur

Buxnalaus maður handtekinn af sérsveit

„Jesús Kristur stóð með þeim sem voru jaðarsett í samfélaginu“
Innlent

„Jesús Kristur stóð með þeim sem voru jaðarsett í samfélaginu“

Eamonn Holmes opnar sig um „hræðilegt“ heilsuvandmál
Heimur

Eamonn Holmes opnar sig um „hræðilegt“ heilsuvandmál

Dæmd fyrir að stela lýsi og vítamíntöflum úr Bónus
Innlent

Dæmd fyrir að stela lýsi og vítamíntöflum úr Bónus

Eitt mest sjarmerandi hús Garðabæjar á sölulista
Myndir
Fólk

Eitt mest sjarmerandi hús Garðabæjar á sölulista

Ásatrúarfélagið fordæmir kaþólsku kirkjuna á Íslandi
Innlent

Ásatrúarfélagið fordæmir kaþólsku kirkjuna á Íslandi

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Menning

Bjartmar heiðraður fyrir austan
Menning

Bjartmar heiðraður fyrir austan

„Hinn eini sanni risi í íslensku tónlistarlífi.“
Brotthvarf Sölku Sólar hluti af stórum breytingum á Rás 2
Menning

Brotthvarf Sölku Sólar hluti af stórum breytingum á Rás 2

Kristmundur Axel fáviti eftir allt
Menning

Kristmundur Axel fáviti eftir allt

Auðunn í aðalhlutverki á Hulu
Menning

Auðunn í aðalhlutverki á Hulu

Loka auglýsingu