
Erna Ýr Guðjónsdóttir, blaðamaður mbl.is, gerðist ekki brotleg við siðareglur Blaðamannafélags Íslands en dómur þess efnis var nýlega birtur á vef félagsins.
Kærandi í málinu var Gréta María Blöndal en hún setti út grein sem Erna skrifaði sem bar yfirskriftina „Ég er strákamamma út í gegn“.
Gréta taldi að ekki hafi verið gætt nægilegrar varúðar við umfjöllun um ólögráða barn. Sonur hennar sé auðþekkjanlegur á myndum en ekki komi skýrt fram að viðmælandinn í greininni sé ekki líffræðileg móðir barnsins.
Ekki hafi verið gætt nægilegrar varfærni gagnvart barninu og framsetning fjölskyldutengsla hafi ekki verið nægilega nákvæm eða sanngjörn. Að mati Grétu uppfyllir framsetningin ekki kröfur um nákvæmni og sanngirni í fjölmiðlaumfjöllun og geti haft áhrif á sjálfsmynd barnsins og tengslamyndun þess. Hún telur mikilvægt að gæta sérstakrar varfærni í ljósi þess að mál sem varðar umgengni og tengsl barnsins við sig og systkini þess sé til meðferðar hjá sýslumanni. Í slíkum aðstæðum geti opinber framsetning á röngum eða villandi fjölskyldutengslum haft frekari áhrif á stöðu barnsins og tengslamyndun.
Í andsvörum Ernu er því er hafnað að umfjöllunin hafi brotið gegn ákvæðum siðareglna Blaðamannafélags Íslands.
Greinin hafi fjallað um fjölskyldulíf með stóran barnahóp og áskoranir sem því fylgja. Fimm börn séu á heimili viðmælanda og eiginmanns hennar, en þau hafi ekki verið sérstaklega rædd eða tilgreind að öðru leyti en sem heild. Þá mótmælir Erna því að framsetningin á fjölskyldutengslum í greininni sé röng eða villandi af því ekki hafi verið tilgreint sérstaklega að eitt barnanna á heimilinu væri ekki líffræðilegur sonur viðmælandans. Óeðlilegt hefði verið að nafngreina hann sérstaklega og setja í ólíka stöðu en aðra í fjölskyldunni. Viðmælandinn, eiginmaður hennar og börn þeirra séu „fjölskylda í öllum skilningi þess orðs“, hvað sem líði ágreiningi milli kæranda og blóðföður um umgengni.
Alvanalegt sé að fjallað sé um fjölskyldulíf fólks án þess að greint sé sérstaklega á milli barna með þeim hætti sem kærandi leggi til. Það sé gert meðal annars með hagsmuni barnsins að leiðarljósi.
Siðanefndin tók undir sjónarmið kærðu um að í samhengi umfjöllunarinnar hefði verið óeðlilegt að tilgreina eitt barnanna og taka fram að viðmælandinn væri ekki líffræðileg móðir þess og fellst siðanefnd ekki á að umfjöllunin hafi verið ósanngjörn eða ónákvæm.
Erna hafi því ekki brotið siðareglur Blaðamannafélags Íslands.
Siðanefnd BÍ
Pálmi Jónasson
Ásgeir Þór Árnason
Valgerður Anna Jóhannsdóttir
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Brynhildur Kristín Ólafsdóttir

Komment