Vel skipulögð og björt 76,3 fermetra íbúð á fyrstu hæð í litlu fjölbýli við Rauðás 14 er nú komin á sölu.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir, blaðamaður á Smartlandi og Morgunblaðinu, og Ingvar Haraldsson, greininga- og samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, eiga þessa glæsilegu íbúð en það var einmitt greint frá því á Smartlandi að blaðamaður Smartlands væri að selja íbúð.
Eignin er staðsett á vinsælum stað með fallegu útsýni yfir Rauðavatn til austurs, en til vesturs snúa svalir og garður sem bjóða upp á góða útiaðstöðu.
Íbúðin er í húsi sem reist var árið 1981 og hefur viðhald verið reglulegt á undanförnum árum. Árið 2023 var húsið málað, farið í múrviðgerðir og gluggar yfirfarnir. Þá var þak og þakkantur málað árið 2019, samhliða því sem stigagangur var endurnýjaður með nýju teppi og málningu á sameign. Einnig var þakkantur að hluta endurnýjaður og yfirfarinn árið 2017.
Lóð hússins er snyrtileg með stórum grasflötum og leiksvæði sem hentar vel fjölskyldum. Næg bílastæði eru við húsið og aðgengi gott.
Eignin er staðsett í grónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, þar á meðal skóla, sundlaug og fjölbreytt íþrótta- og útivistarsvæði.
Ásett verð eignarinnar er 64.900.000 krónur.


Komment