1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

4
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

5
Minning

Hörður Torfa kveður Megas

6
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

7
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

8
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

9
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

10
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Til baka

Hélt persónuupplýsingum sínum leyndum

Lögreglubílar
Alls voru 91 mál skráðSjö einstaklingar voru í fangageymslu
Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast frá klukkan 17:00 síðdegis til klukkan 05:00 í nótt, samkvæmt dagbók embættisins.

Meðal atvika var að einstaklingur var handtekinn eftir að hafa verið í tökum dyravarða í miðbænum. Honum var ekið á lögreglustöð, en ekki tókst að eiga við hann samskipti og var hann vistaður vegna ástands síns.

Þá var annar aðili stöðvaður í akstri og grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna. Sá var færður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins. Í öðru tilviki voru tveir einstaklingar handteknir í miðbænum, einnig grunaðir um fíkniefnasölu. Við handtöku fundust fíkniefni og fjármunir á þeim, auk frekari efna við leit á lögreglustöð. Báðir voru vistaðir vegna rannsóknar.

Lögregla var einnig kölluð til vegna manns sem olli usla utan við skemmtistað í miðbænum. Þegar lögreglu bar að garði var maðurinn enn til vandræða og var því handtekinn. Ekki tókst að ræða við hann og var hann vistaður vegna ástands.

Í öðru máli var maður handtekinn utan við starfsmannasamkomu fyrirtækis eftir að tilkynning barst um framferði hans. Hann neitaði að gefa upp nafn sitt við afskipti lögreglu og var því fluttur á stöð. Þar var honum tjáð að honum yrði sleppt ef hann veitti persónuupplýsingar, en hann neitaði áfram og var jafnframt mjög ölvaður. Var hann því vistaður.

Fimm einstaklingar voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Allir nema einn voru látnir lausir eftir sýnatöku, en sá var vistaður vegna málsins.

Þá var ökumaður stöðvaður við akstur án ökuréttinda, en því máli lauk með vettvangsskýrslu. Einnig var lögregla kölluð til vegna umferðaróhapps þar sem bifreið hafði verið ekið á skilti. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin skemmdist töluvert.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu