Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Réðst á lögreglumann við samkomuhús og hélt áfram í fangaklefanum

Maðurinn var fluttur í fanga­klefa á lögreglu­stöðinni við Vínlands­leið

Lögreglumenn við störf
Lög­reglu­menn við störf Mynd: Víkingur

Karlmaður hefur verið sakfelldur í Héraðs­dómi Reykja­víkur fyrir brot gegn vald­stjórninni eftir að hafa ráðist á lögreglu­mann við skyldu­störf og síðar slegið hann tvívegis í andlitið á lögreglustöð.

Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi.

Samkvæmt ákæru átti atvikið sér stað að morgni sunnudags á bifreiða­stæði við samkomuhús. Þar sparkaði maðurinn tvívegis í innanvert vinstra læri lögreglu­manns sem var við skyldu­störf.

Maðurinn var í kjölfarið fluttur í fanga­klefa á lögreglu­stöðinni við Vínlands­leið í Reykjavík. Þar hélt árásin áfram en samkvæmt ákæru sló hann sama lögreglu­mann tvívegis með krepptum hnefa í andlitið og var maðurinn var ákærður fyrir brot gegn vald­stjórninni.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til ungs aldurs mannsins. Hann hafði þó áður gengist undir lögreglu­stjóra­sáttir vegna umferðar­lagabrots og vopna­lagabrots. Einnig kom fram að maðurinn hefði átt við andlega erfið­leika að stríða og unnið að því að bæta líf sitt.

Dómurinn ákvað að fresta ákvörðun um refsingu skilorðs­bundið í þrjú ár. Ákvörðunin fellur niður að þeim tíma liðnum gerist maðurinn ekki sekur um nýtt brot á skilorðs­tímanum.

Honum var jafnframt gert að greiða 353.400 krónur í málsvarnar­þóknun og 55.130 krónur í annan sakar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag