1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

9
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

10
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Til baka

Brynjar Níels ýtir undir samsæriskenningu

Þingmaðurinn fyrrverandi ætlar sér í borgarstjórn

Brynjar Níelsson
Brynjar NíelssonEr fyrrverandi þingmaður og dómari
Mynd: Facebook/Brynjar Níelsson

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vekur athygli á samsæriskenningu í kringum mögulega inngöngu Íslands í ESB í nýjum pistli en í stuttu máli gengur sú kenning út á að núverandi ríkisstjórn hafi meðvitað gert líf Íslendinga verra til þess að gera inngöngu í ESB meira heillandi.

„Alþekkt er að flokkar í ríkisstjórn nái ekki öllu því fram sem þeir lofuðu kjósendum í aðdraganda kosninga. Oftast er það vegna þess að við gerð stjórnarsáttmála nær hver flokkur ekki öllu sínu fram eða að aðstæður og forsendur hafi breyst þegar ríkisstjórn er mynduð. Almenningur hefur skilning á því,“ skrifar Brynjar.

„Ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu fyrir síðustu kosningar að taka til hendinni í ríkisfjármálum og berja niður vexti og verðbólgu með áður óþekktum sleggjum. Hugmyndir um hugsanlegar aðildarviðræður við ESB áttu að bíða á meðan. Jafnframt átti ekki að hækka skatta á einstaklinga og fyrirtæki. Um þetta náðist sátt á milli stjórnarflokkanna við myndum ríkisstjórnarinnar. Mest var þó sáttin á milli formanna flokkanna um eigið ágæti,“ heldur hann áfram áður en hann fer í samsæriskenninguna.

Hálf drepa heimili

„Nú einu og hálfu ári eftir myndun ríkisstjórnarinnar hefur hún náð að slá met í vanefndum. Eitt er að ná ekki árangri á tilætluðum tíma en annað og alvarlega er að gera það sem lofað var að gera ekki. Kannski er hún ekki svo vitlaus eftir allt samsæriskenningin um að hálf drepa þurfi heimili og fyrirtæki svo hægt sé að koma þjóðinni inn í ESB,“ en þingmaðurinn fyrrverandi nefnir þó ekkert eitt dæmi í því samhengi.

„Þolinmæði almennings gagnvart þessari ríkisstjórn með hliðsjón af árangursleysi og sviknum loforðum er rannsóknarefni. Kannski er yfirlæti og hroki gagnlegur eftir allt. Þolinmæði borgarbúa er þó enn meiri gagnvart borgarstjórninni. Þar hefur meirihlutanum undanfarna þrjá áratugi tekist að svíkja endurtekin loforð kosningar eftir kosningar og miðað við skoðanakannanir virðist ekki ætla að verða breyting þar á. Stundum virðist hægt að selja sama draslið í nýjum umbúðum,“ segir Sjálfstæðismaðurinn.

„Þolinmæði er dyggð og trú á kraftaverk er stundum mikil. En það hljóta að vera einhver takmörk,“ skrifar hann svo að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“
Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Loka auglýsingu