1
Innlent

Fleiri konur stíga fram vegna Kleina

2
Innlent

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag

3
Peningar

Þungur rekstur Kleina bakvið glansmyndina

4
Fólk

Selja hús sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

5
Minning

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir er látin

6
Innlent

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki

7
Fólk

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús

8
Innlent

Átta Kínverjar ákærðir

9
Fólk

Fyrrum þingmaður kominn með nýja vinnu

10
Minning

Felix Ólafsson er fallinn frá

Til baka

Brynjar segir bakslag komið í hjónabandið

„Nú hefur komið í ljós að hana langaði meira í standlampa“

Brynjar Níelsson
Brynjar NíelssonBakslag er orð dagsins hjá Brynjari
Mynd: Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir

Brynj­ar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir bakslag ríkja víða í samfélaginu um þessar mundir, jafnvel í einkalífi sínu. Þetta kemur fram í nýrri Facebook-færslu hans, sem löðrar af kaldhæðni og húmor.

„Ég þekki ekki þann kima í samfélaginu þar sem ekki er bakslag nú um stundir. Meira að segja er komið verulegt bakslag í hjónaband okkar Soffíu,“ skrifar Brynjar. Hann segir að í síðasta pistli hafi hann greint frá því að hann hefði gefið eiginkonu sinni skartgrip í tilefni af degi elskenda „að amerískum sið“, en að gjöfin hafi ekki fallið í kramið.

„Nú hefur komið í ljós að hana langaði meira í standlampa. Þar að auki telur hún að þeir sem hafa enga tilfinningu fyrir fegurð og stíl eigi ekki að kaupa skartgripi,“ skrifar hann.

Brynjar segir að við leit sína að standlampa á netinu hafi hann rekist á yfirlýsingar ráðherra í ríkisstjórninni um efnahagsmál. Þar hafi komið fram gagnrýni á sérfræðinga hins opinbera. Hann skrifar:

„Meðan ég leita á netinu hvar hægt sé að kaupa góðan standlampa rekst ég reglulega á yfirlýsingar ráðherra í okkar góðu ríkisstjórn um hvað allir sérfræðingar okkar í hagfræði og efnahagsmálum eru fáfróðir, einkum þeir í Seðlabankanum, Fjármálaráðuneytinu og Hagstofunni.“

Að mati Brynjars skorti þessa sérfræðinga skilning á störfum ráðherranna. „Þar misskilja menn eða hreinlega skilja ekki snilld ráðherranna við efnahagsstjórn,“ bætir hann við.

Hann veltir því jafnframt upp hvort spara megi í ríkisrekstri með því að segja þessum sérfræðingum upp.

„Mér sýnist hægt að spara verulega í ríkisrekstri með því að reka þessa fáfróðu hagfræðinga,“ skrifar Brynjar.

Í staðinn stingur hann upp á öðrum lausnum og nefnir bæði einstaklinga og hópa. „Hægt væri að fá Höllu Gunnarsdóttur og Ásgeir Brynjar Torfason, sem eru með þetta skemmtilega og fróðlega hlaðvarp um efnahagsmál, til að vera ríkisstjórninni innan handar fyrir lítinn pening eða deildarforsetann í viðskiptafræði við Háskólinn á Bifröst, sem alls staðar hefur slegið í gegn.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

„Slæma stelpan“ enn og aftur dæmd í fangelsi
Innlent

„Slæma stelpan“ enn og aftur dæmd í fangelsi

Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur
Þorkell Jóelsson er látinn
Minning

Þorkell Jóelsson er látinn

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn
Pólitík

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn

Veitir 91 milljón í styrki
Pólitík

Veitir 91 milljón í styrki

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum
Pólitík

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals
Innlent

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?
Skoðun

Daníel Andri Eggertsson

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Fjórir Kínverjar til viðbótar ákærðir
Innlent

Fjórir Kínverjar til viðbótar ákærðir

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður
Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður

Þingmaður Miðflokksins rakst á „borgarstjóra New York“
Myndir
Fólk

Þingmaður Miðflokksins rakst á „borgarstjóra New York“

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús
Myndir
Fólk

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús

Felix Ólafsson er fallinn frá
Minning

Felix Ólafsson er fallinn frá

Lögreglan gerði manni tilboð
Innlent

Lögreglan gerði manni tilboð

Fólk

Þingmaður Miðflokksins rakst á „borgarstjóra New York“
Myndir
Fólk

Þingmaður Miðflokksins rakst á „borgarstjóra New York“

Hún segist hafa náð mynd af honum fyrir tilviljun
Selja glæsilegt einbýli sem þarfnast umhyggju
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli sem þarfnast umhyggju

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús
Myndir
Fólk

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús

Fyrrum þingmaður kominn með nýja vinnu
Fólk

Fyrrum þingmaður kominn með nýja vinnu

Selja hús sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á
Myndir
Fólk

Selja hús sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Gullfallegt hús á risastórri lóð til sölu
Myndir
Fólk

Gullfallegt hús á risastórri lóð til sölu

Loka auglýsingu