1
Innlent

Hannes Valle fær þrjú ár fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni

2
Pólitík

Segir að egó Einars muni flækjast fyrir

3
Heimur

Afi fórnaði lífi sínu við að bjarga barnabarni sínu frá drukknun

4
Landið

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn

5
Innlent

Matvælastofnun innkallar hrísgrjón vegna leysiefna

6
Pólitík

Rifjar upp óvenjulega undirritun Sigmundar Davíðs

7
Fólk

Selja einbýli með koníakstofu á þakinu

8
Minning

Stefán Carlsson er fallinn frá

9
Innlent

Rósa Dögg fær ein níu mánaða styrk

10
Innlent

Konan fundin

Til baka

Kleini handtekinn vegna kynferðisbrots

Fyrrverandi kærasta Kleina opnar sig um ofbeldið sem hún upplifði í sambandinu.

Kleini mynd
Kristján Einar SigurbjörnssonKleini er einn þeirra sem handtekinn var á Akureyri fyrir kynferðisbrot um helgina
Mynd: Instagram

Hafdís Björg Kristjánsdóttir segir frá alvarlegu ofbeldi sem hún segist hafa orðið fyrir af hendi fyrrverandi kærasta síns, Kristjáns Einars Sigurbjörnssonar, sem oftast er kallaður Kleini. Frásögn hennar kemur fram í Facebook-færslu sem hún birti í morgun.

Kristján Einar er, samkvæmt mbl.is einn þeirra sem handteknir voru á Akureyri á dögunum, grunaður um að hafa í félagi við tvo aðra menn beitt konu hrottalegu kynferðisofbeldi.

Í færslunni segir Hafdís að henni hafi reynst erfitt að fylgjast með fréttum um málið.

„Mér þykir ótrúlega erfitt að fylgjast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeldinu sem fylgir þessum manni,“ skrifar hún. „Samviskubitið er að drepa mig.“

Hún segir að margar ástæður hafi verið fyrir því að hún steig ekki fyrr fram. Hún sé enn í áfallavinnu eftir sambandið og hafi ekki verið tilbúin að gera reynslu sína opinbera.

„Ég er enn í áfallavinnu eftir þetta samband og var ekki tilbúin að opna mín blæðandi sár og gera þau að fjölmiðlamat eða commentakerfis drullu.“

Hafdís segir einnig að hún hafi viljað vernda börn sín fyrir þeirri reynslu sem hún gekk í gegnum.

„Ég á líka fimm drengi sem ég hef reynt mitt allra besta að verja fyrir þessum raunveruleika og vildi ekki að þeir þyrftu að sjá eða heyra meira af þessum viðbjóði.“

Hún lýsir því að hún hafi í sumar fengið ráðleggingu um að leita í Kvennaathvarfið með börnunum sínum, en ákveðið í staðinn að fara með þeim til Spánar til að reyna að byggja upp styrk áður en hún tæki á raunveruleikanum.

Hafdís segir að sambandið hafi einkennst af endurteknum ofbeldisatvikum og ótta.

„Ég get ekki talið upp hversu oft hann hefur verið handtekinn eða hversu oft mér hefur verið hótað lífláti,“ skrifar hún.

Hún segir einnig að hún hafi ítrekað leitað til lögreglu.

„Ég leitaði oft eftir aðstoð. Ég hringdi margoft í lögregluna, en alltaf var honum sleppt daginn eftir og ég sat eftir með enn meiri ótta og afleiðingar.“

Í færslunni gagnrýnir hún einnig hvernig fórnarlömb ofbeldis er oft ekki trúað.

„Þegar maður reynir að segja frá ofbeldi eru því miður svo margir sem trúa því ekki, því við virtumst svo hamingjusöm á samfélagsmiðlum. Þá verður maður bara enn ein „klikkuð fyrrverandi“ ekki satt…“

Hafdís segir að á endanum hafi hún ákveðið að stíga fram vegna þess að hún gæti ekki lengur þagað.

„Eina ástæðan fyrir því að ég stíg fram núna er sú að ég hef ekki samvisku til að þegja lengur og horfa upp á þann viðbjóð sem hann skapar.“

Að lokum sendir hún konunni sem kærði mennina þrjá stuðningskveðju.

„Hugur minn er hjá elsku stelpunni sem er að ganga í gegnum þennan ljóta raunveruleika. Ég vona af öllu mínu hjarta að hún fái þann stuðning sem hún þarf á þessum tíma.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Styrkja Mannlíf

Má bjóða þér að styrkja starfsemi Mannlífs með mánaðarlegu framlagi?


Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tileinkaði Emmy-verðlaunin blaðamönnum sem Ísraelsher hefur myrt
Myndband
Heimur

Tileinkaði Emmy-verðlaunin blaðamönnum sem Ísraelsher hefur myrt

„Þetta eru dimmir dagar fyrir blaðamennsku.“
Sjaldgæfur sjúkdómur veldur stöðugum brjóstavexti hjá ungri konu
Myndir
Heimur

Sjaldgæfur sjúkdómur veldur stöðugum brjóstavexti hjá ungri konu

Dómari sendur í leyfi vegna meintra kynþáttafordóma
Heimur

Dómari sendur í leyfi vegna meintra kynþáttafordóma

Njarðvíkingur ákærður fyrir að þvætta rúmar 15 milljónir
Innlent

Njarðvíkingur ákærður fyrir að þvætta rúmar 15 milljónir

Læknafélagið fordæmir orð forstjóra Landspítalans
Innlent

Læknafélagið fordæmir orð forstjóra Landspítalans

Verjandi fór „yfir mörk viðeigandi tjáningar“ í héraði
Innlent

Verjandi fór „yfir mörk viðeigandi tjáningar“ í héraði

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Pólitík

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

Ákærður fyrir hnífstungu við Réttó
Innlent

Ákærður fyrir hnífstungu við Réttó

SÞ setja ísraelskar stofnanir á svartan lista vegna kynferðisglæpa
Heimur

SÞ setja ísraelskar stofnanir á svartan lista vegna kynferðisglæpa

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“
Pólitík

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“

Framkvæmdastjóri telur þrif aðstandenda vera samverustund
Innlent

Framkvæmdastjóri telur þrif aðstandenda vera samverustund

Innlent

Njarðvíkingur ákærður fyrir að þvætta rúmar 15 milljónir
Innlent

Njarðvíkingur ákærður fyrir að þvætta rúmar 15 milljónir

Einnig reyndi maðurinn að koma nokkrum milljónum úr landi
Læknafélagið fordæmir orð forstjóra Landspítalans
Innlent

Læknafélagið fordæmir orð forstjóra Landspítalans

Verjandi fór „yfir mörk viðeigandi tjáningar“ í héraði
Innlent

Verjandi fór „yfir mörk viðeigandi tjáningar“ í héraði

Ákærður fyrir hnífstungu við Réttó
Innlent

Ákærður fyrir hnífstungu við Réttó

Framkvæmdastjóri telur þrif aðstandenda vera samverustund
Innlent

Framkvæmdastjóri telur þrif aðstandenda vera samverustund

Loka auglýsingu