1
Innlent

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki

2
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl

3
Heimur

Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni

4
Heimur

Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi

5
Heimur

Sænsk kona neydd til að vinna í svikaverksmiðju í Myanmar

6
Innlent

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns

7
Heimur

Króatar takmarka drykkju ferðamanna

8
Fólk

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu

9
Heimur

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið

10
Heimur

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana

Til baka

Daníel Andri Eggertsson

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Daníel Andri Eggertsson
Daníel Andri Eggertsson
Mynd: Aðsend

Nú síðastliðna helgi kom upp grafalvarlegt mál þar sem þjóðþekktur einstaklingur, ásamt fleirum, er sakaður um gróft ofbeldi gegn ungri stelpu. Slík mál eru viðkvæm, flókin og krefjast þess að fjölmiðlar þurfi að stíga varlega til jarðar. Þá sérstaklega til að vernda fórnarlambið, fjölskyldu hennar, vini, samstarfsfélaga og fleiri.

Það sem hins vegar hefur gerst síðustu daga hafa vakið hjá mér spurningar um hlutverk ykkar, samfélagslega ábyrgð og siðferðisstefnu.

Nánast allir fjölmiðlar Íslands kusu, að mér virðist, að endurbirta Instagram-færslu þessa einstaklings þar sem hann lýsir yfir sakleysi sínu. Hann hefur ekki beðið ykkur um umfjöllun, augljóslega. Ekki nóg með að þið fóruð inn á reikning hans, birtuð póstinn, heldur gerðuð þið líka sérstaka frétt um að meintur gerandi myndi gefa út yfirlýsingu bráðlega. Svona lítil upphitun. Skapa fleiri heimsóknir á síður ykkar.

Í stað þess að fjalla af varfærni um alvarlegt ofbeldismál, sýna fórnarlambi og hennar nánustu virðingu, þá virðist þið hafa einfaldlega boðist til að miðla áfram ímyndunarsköpun hins sakaða og gefið honum vettvang fyrir alþjóð til þess að stýra umræðunni sér í hag. Spurningin er einföld; Hver eru eiginlega markmið íslenskra fjölmiðla?

Eru þeir til staðar til þess að upplýsa almenning með ábyrgum hætti- eða til þess að hámarka traffíkina á síðum sínum gjörsamlega án tillits til þeirra sem það gæti skaðað? Þegar þið takið færslu á netinu, sem er óritstýrð, ber með sér engin sönnunargögn og engin tilraun er gerð til þess að efast um efnistök hennar og birtið hana án þess að hugsa um þær afleiðingar sem það gæti haft í för með sér; það fær mann til að hugsa. Hvaða hagsmuna eruð þið að gæta? Okkar landsmanna, eða ykkar? Hver er tilgangur ykkar? Hver voru markmiðin með þessum fréttum í þessu hræðilega máli?

Tjáningafrelsi er eitt. En að veita aðila vettvang, að ykkar frumkvæði, án þess að rýna í gögn er svo ævintýralega óábyrgt og ófagmannlegt að það nær engri átt.

Það sem er raunverulega að gerast er að hér er stelpa sem hefur stigið fram og tilkynnt til lögreglu háalvarlegt brot. Enginn gerir það léttúðlega. Þegar umfjöllun fjölmiðla snýst fyrst og fremst um varnarræðu þess sakaða, meðvitað um að það fái mestu athyglina, með engri tilraun til rökhugsunar er hætta á að fórnarlambið verði aukaatriði í miðlun sem tengist frekar leikriti fjölmiðla sem meintur gerandi fær sviðsljósið og tækifæri til þess að stýra umræðunni, með ykkar góðfúslegu hjálparhönd (og að ykkar frumkvæði).

Fjölmiðlar eru ekki hlutlausir í þessu máli. Þeir tóku ákvörðun um hvað fengi mest vægi, hvaða rödd fengi míkrafóninn og hvaða sjónarhorn fá aðal-slottið.

Það er virkilega óþægileg upplifun að lýsa frá slíku ofbeldi. Því er mikilvægt hvernig slík mál eru sett fram í opinberri umræðu. Ef fyrstu viðbrögð fjölmiðla eru að magna upp sjálfsvarnarlýsingar, án laga og reglu, án sannanna, án ritskoðunar, getur það haft raunveruleg áhrif á umræðuna, viðhorf almennings og það hvernig þolendur upplifa samfélagið í kringum sig.

Viljum við búa í samfélagi þar sem upplifun fólks er nýtt sem skemmtiefni og forsenda til þess að magna traffík á “hlutlausum” fjölmiðlum? Eru svona mál bara sirkus fyrir ykkur þar sem hver sem er getur sagt sína skoðun á ykkar síðum? Þið birtið þessar fréttir án ritskoðunar, án rökhugsunar, án dóms og laga. Rétt eftir atburðinn og ekki eitt einasta kurl er komið til grafar.

Fjölmiðlar gegna mikilvægu hlutverki í lýðræðissamfélagi. Það hlutverk byggir á trausti og að þeir rýni í gögn. Það traust snýr að því að ritstjórar velji ekki einfaldlega það sem vekur mest viðbrögð heldur það sem þjónar almenningi og samfélaginu. Eruð þið bara skemmtanamiðlun?

Þegar alvarleg ofbeldismál verða að efni í hraða og yfirborðskennda miðlun samfélagsmiðlafærslna er ástæða til þess að staldra við. Að gera frétt um slík ofbeldismál er eitt. Hvernig þið kjósið að gera það er annað. Í hvernig samfélagi viljum við búa?

Með ykkar vitleysingsgang hafið þið raunverulega sært alvöru fólk. Þið eruð að fjalla um fólk. Pælið í því. Ekki bara fórnarlambið heldur líka fjölskyldu þess, vini og samstarfsmenn. Með þessari grein vil ég ekki ráðast á neinn. Heldur hvetja fjölmiðla til þess að líta í eigin barm og endurhugsa stefnu sína.

Eftirfarandi tilvísanir eru dregnar úr lögum Alþingis um fjölmiðla:

  1. gr. Markmið.

"Markmið laga þessara er að stuðla að tjáningarfrelsi, rétti til upplýsinga, [upplýsinga- og miðlalæsi], 1) fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlun sem og að efla vernd neytenda á þeim vettvangi.”

[15.] 3) [ "Fjölmiðlaþjónusta er þjónusta þar sem megintilgangur eða aðskiljanlegur hluti hennar er tileinkaður miðlun á efni, undir ritstjórnarlegri ábyrgð fjölmiðilsins, til almennings í þeim tilgangi að upplýsa, fræða eða skemmta."]

  1. [ "Ábyrgðarmaður er starfsmaður fjölmiðils sem ber ritstjórnarlega ábyrgð á efni og efnisvali og ákvarðar hvernig það er skipulagt, t.d. ritstjóri, dagskrárstjóri eða útvarpsstjóri."
  2. gr. [Málsmeðferð og vinnsla persónuupplýsinga.]

1)-["Fjölmiðlanefnd er heimil vinnsla persónuupplýsinga að því marki sem hún er nauðsynleg við athugun á þeim málum sem nefndin vinnur að í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum. Fjölmiðlanefnd er heimil vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga um heilsufar, kynhneigð og kynhegðun vegna kvartana sem henni berast á grundvelli þess að fjölmiðlaveita hafi brotið gegn grundvallarréttindum einstaklinga um friðhelgi einkalífs og mannréttindum þeirra. "

Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um vinnslu persónuupplýsinga í reglugerð samkvæmt þessu ákvæði.]

"Fjölmiðlaveita skal í starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og standa vörð um tjáningarfrelsi. [Hún skal virða mannréttindi og jafnrétti, og einnig friðhelgi einkalífs nema lýðræðishlutverk fjölmiðlaveitu og upplýsingaréttur almennings krefjist annars.]

1) "Fjölmiðlaveita skal gæta þess að uppfylla kröfur um hlutlægni og nákvæmni [í fréttum og fréttatengdu efni] 1) og gæta þess að mismunandi sjónarmið komi fram, jafnt karla sem kvenna."

"Fjölmiðlaveitu sem hefur þá yfirlýstu stefnu að beita sér fyrir tilteknum málstað skal vera óskylt að miðla efni sem gengur í berhögg við stefnu miðilsins."

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi
Heimur

Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi

Ross vakti áður athygli þegar hún dæmdi Todd Chrisley í fangelsi
Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni
Myndband
Heimur

Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi
Heimur

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi

Króatar takmarka drykkju ferðamanna
Heimur

Króatar takmarka drykkju ferðamanna

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns
Innlent

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu
Myndir
Fólk

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu

Sænsk kona neydd til að vinna í svikaverksmiðju í Myanmar
Heimur

Sænsk kona neydd til að vinna í svikaverksmiðju í Myanmar

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana
Myndband
Heimur

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki
Innlent

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið
Heimur

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið

Barn, kona og karl féllu til bana úr turni í Lundúnum
Heimur

Barn, kona og karl féllu til bana úr turni í Lundúnum

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Skoðun

Þegar heimili verður að víglínu: Saga einstæðrar móður í auga hvirfilbylins
Skoðun

Margrét Rut Eddudóttir

Þegar heimili verður að víglínu: Saga einstæðrar móður í auga hvirfilbylins

Hvað segja loforðin? Orðræðugreining á öllum ellefu framboðunum
Skoðun

Halldór Jörgen Olesen

Hvað segja loforðin? Orðræðugreining á öllum ellefu framboðunum

Opið bréf til atvinnuvegaráðherra um MAST
Skoðun

Árni Stefán Árnason

Opið bréf til atvinnuvegaráðherra um MAST

Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð?
Skoðun

Arndís R. Magnúsdóttir, Gunnar Geir Kristjánsson

Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð?

SPEGILL, SPEGILL
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

SPEGILL, SPEGILL

Vinnuskólinn - vinna eða skóli?
Skoðun

Jón Hjörvar Valgarðsson

Vinnuskólinn - vinna eða skóli?

Loka auglýsingu