
Breski sjónvarpsmaðurinn Eamonn Holmes hefur opnað sig um erfiða heilsufarsbaráttu og segir ástandið hafa verið „hræðilegt“. Hann viðurkennir að hann geti ekki staðið upp án aðstoðar.
Holmes segir að hann þurfi að reiða sig á aðstoðarmenn yfir daginn og geti ekki staðið upp úr stól sjálfur. Hinn 66 ára gamli sjónvarpsmaður hefur glímt við króníska verki í nokkur ár. Hann greindist með mjaðmagrindarlos, sem olli þremur brjósklosum.
Á meðan hann var að jafna sig eftir aðgerð féll hann niður stiga á heimili sínu í Weybridge og braut öxl. Seinni aðgerð á hrygg og hálsi árið 2023 bætti lítið úr verkjunum og síðan þá hefur honum reynst sífellt erfiðara að ganga. Hann hefur jafnvel fallið úr sæti sínu í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni GB News.

Komment