1
Heimur

Unglingur lést við að renna sér

2
Innlent

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar

3
Fólk

Svaraði árás Jóns með rappi hjá Gísla Marteini

4
Heimur

Bitvargur á sextugsaldri réðist á lögreglumann

5
Heimur

Reiði eftir að smábarn fékk gallað hjarta

6
Fólk

Kona með sögu

Til baka

Ég taldi mig þekkja vandann en er samt í sjokki

Steindór Þórarinsson skrifar opinn pistill til heilbrigðisráðherra, landlæknis og forystu heilbrigðiskerfisins

Steindór Þórarinsson
Steindór ÞórarinssonSpyr góðra spurninga og vonandi verður svar eða svör á borðinu innan tíðar
Mynd: Aðsend

Ég fékk nýlega þær þungbæru fréttir að Bríet Irma, ung kona sem ég þekkti, hefði tekið eigið líf.

Ég setti stuttan minningarstatus.

Svo fór að rigna inn sögum.

Fjörutíu og ein ítarleg frásögn um bið og loknar dyr. Yfir hundrað skilaboð frá fólki sem þorir ekki að leita sér hjálpar af ótta við fordóma hjá sama kerfi og það þarf á að halda.

Ég taldi mig þekkja vandann.

Ég er samt í sjokki.

Þetta snýst ekki um tölur. Þetta snýst um fólk með drauma og fjölskyldur. Foreldra sem halda heimili saman. Ungmenni sem leita leiðar. Aðstandendur sem standa vaktina og brenna út.

Á bak við hverja línu í töflu er manneskja með nafn.

Nú spyr ég ykkur sem manneskjur áður en þið eruð ráðherrar, stjórnendur eða sérfræðingar.

Finnst ykkur þetta í lagi?

Fordómar kosta líf og traust og fólk skrifar mér að það þori ekki að biðja um hjálp. Ótti við stimpil. Ótti við að verða merkt sem vandamál. Á meðan bíður lífið.

Finnst ykkur þetta í lagi?

Snemmtæk þjónusta sparar líf og sparar fé. Færri bráðar innlagnir. Minni tími á bráðamóttöku. Færri útköll. Færri fangelsisdaga. Minna framleiðnitap. Minni byrði á aðstandendum.

Þetta er ekki slagorð heldur skynsemi.

Finnst ykkur í lagi að bíða eftir skaðanum í stað þess að grípa inn fyrr?

Fimm svör sem ég óska eftir:

Hver er raunbið í dag eftir fyrstu þjónustu hjá heilsugæslu og sérhæfðri geðþjónustu og hvernig er hún mæld.

Hvað tekur langan tíma að komast í greiningu og fyrstu meðferð ef viðkomandi hefur engin fjárráð og hvar er lifandi leið inn?

Hver ber framkvæmdarábyrgð á því að stytta bráða bið næstu þrjátíu daga hjá börnum og fullorðnum með nafni og símanúmeri?

Hvaða þrjár aðgerðir fara í gang strax í dag til að koma í veg fyrir endurteknar bráðakomur án eftirfylgdar?

Hvenær og hvernig birtist regluleg, opinber uppfærsla á biðtíma, úrræðum og árangri á einum stað sem allir skilja?

Ef kerfið er í lagi má svara þessu strax. Ef kerfið er ekki í lagi þarf að segja það hreint út og laga það núna.

Hvað þarf að gerast strax í dag?

Opna samfellda bráða leið í þjónustu sem virkar utan skrifstofutíma og tryggja tímabundna fagþjónustu án greiðslu fyrir fólk með litla eða enga greiðslugetu.

Setja stutt, markviss stuðningsviðtöl með skýrri eftirfylgd í heilsugæslu.

Bjóða skjót ráðgjafasamtöl fyrir aðstandendur með skýra leið inn í kerfið.

Virkja samstarf við félagasamtök sem geta mætt fólki strax.

Ég skrifa sem manneskja með ADHD og reynslu af kerfinu en ég fékk greiningu seint og greiddi sjálfur fyrir mat. Ég á fólk sem styður mig. Ekki allir hafa þann stuðning. Þess vegna þarf þjónustu sem tekur á móti án stimplunar.

Ég er að stofna Strax í dag. Grasrót sem krefst virkrar þjónustu, gagnsæis og samráðs. Ég auglýsi kynningarfund fljótlega.

En aðalatriðið er að fá svör og sjá aðgerðir.

Til ykkar sem haldið um stjórnvölinn:

Tölum saman. Sýnum hugrekki. Setjum fólkið á undan ferlinu. Finnst ykkur þetta í lagi eins og staðan er í dag?

Til þeirra sem eiga erfitt.

Píeta er í síma 552 2218 og á vefnum pieta.is. og Neyðarlínan er opin allan sólarhringinn alla daga.

Það er í lagi að leita hjálpar. Það er styrkur. Þú ert ekki ein eða einn. Ég gefst ekki upp. Við getum lagað þetta. En það þarf svör, samkennd og aðgerðir sem byrja strax í dag.

Höfundur er með ADHD og PTSD, og er viðurkenndur markþjálfi og stofnandi STRAX Í DAG.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Kona með sögu
Viðtal
Fólk

Kona með sögu

Þórunn Valdimarsdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, er eins og eldfjall orðanna. Það er sama hvort maður les textann hennar eða talar við hana - orðin virðast koma úr iðrum jarðarinnar eða sálarinnar og verða að listaverki.
Svaraði árás Jóns með rappi hjá Gísla Marteini
Fólk

Svaraði árás Jóns með rappi hjá Gísla Marteini

Reiði eftir að smábarn fékk gallað hjarta
Heimur

Reiði eftir að smábarn fékk gallað hjarta

Unglingur lést við að renna sér
Heimur

Unglingur lést við að renna sér

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar
Úttekt
Innlent

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar

Bitvargur á sextugsaldri réðist á lögreglumann
Heimur

Bitvargur á sextugsaldri réðist á lögreglumann

Átján létust í hörðum árekstri rútubíls og vörubíls í Egyptalandi
Heimur

Átján létust í hörðum árekstri rútubíls og vörubíls í Egyptalandi

Tíu ára drengur látinn eftir sveðjuárás á Tenerife
Heimur

Tíu ára drengur látinn eftir sveðjuárás á Tenerife

Nora Haukland lýsir meintu ofbeldi í sambandi við Marius Borg Høiby
Heimur

Nora Haukland lýsir meintu ofbeldi í sambandi við Marius Borg Høiby

Brynjar segir bakslag komið í hjónabandið
Fólk

Brynjar segir bakslag komið í hjónabandið

Ungt kærustupar fannst látið í orlofsbúðum
Heimur

Ungt kærustupar fannst látið í orlofsbúðum

„McSteamy“ er fallinn frá
Heimur

„McSteamy“ er fallinn frá

Trump boðar opinberun gagna um geimverur
Heimur

Trump boðar opinberun gagna um geimverur

Innlent

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar
Úttekt
Innlent

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar

Kafari fann flak Glitfaxa
Kjálkabraut mann með kjaftshöggi
Innlent

Kjálkabraut mann með kjaftshöggi

Hlaut tíu ára dóm fyrir banvæna árás í Kiðjabergi
Innlent

Hlaut tíu ára dóm fyrir banvæna árás í Kiðjabergi

Sakar Auði og Kvenfélag Íslands um „froðufellandi karlhatur“
Innlent

Sakar Auði og Kvenfélag Íslands um „froðufellandi karlhatur“

Axel kærði blaðamann DV vegna fréttar
Innlent

Axel kærði blaðamann DV vegna fréttar

Kristinn hvetur til aukinnar blöndunar Íslendinga
Innlent

Kristinn hvetur til aukinnar blöndunar Íslendinga

Loka auglýsingu