1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

3
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

4
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

5
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

6
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

7
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

8
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

9
Minning

Megas er látinn

10
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

Til baka

Kristinn hvetur til aukinnar blöndunar Íslendinga

„Látum ekki Ísland mygla, opnum glugga og hleypum ferskum vindum til landsins.“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn HrafnssonKristinn hvetur til meiri blöndunar
Mynd: HENRY NICHOLLS / AFP

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, skrifaði í hádeginu í dag Facebook-færslu þar sem hann hvetur til aukinnar blöndunar Íslendinga og segir slíkt vera bæði þjóðlegt og samfélaginu til framdráttar. Færslan er eins og oft hjá Kristni, löðrandi í hæðni en hún hefst á eftirfarandi máta:

„Það laust niður í mig löngun til þess að gefa landinu aldeilis ókeypis og óumbeðið ráð. Þetta er því eins konar landráð og verði ég kallaður landráðamaður fyrir vikið, mun ég taka því í þeim skilningi,“ skrifar Kristinn og segir ráðið vera að „stórauka blöndun Íslendinga, okkur til framdráttar, bæði vegna menningarlegs ávinnings og líkamlegs.“

Hann segir slíka stefnu eiga djúpar rætur í íslenskri sögu og minnir á að Íslendingar hafi frá upphafi verið blendingsþjóð. „Sérstaða Íslendinga, vel umfram flestar aðrar norrænar þjóðir, felst í því að við erum frá upphafi blendingsþjóð. Hér mættust norræn og írsk eða keltnesk gen,“ skrifar hann.

Kristinn telur að keltneski arfurinn hafi verið grundvallaratriði fyrir íslenskan menningararf. „Hið auðugasta í íslenskum menningararfi er ritlistin sem við getum þakkað írska arfinum. Án blöndunar ættum við engan ritaðan sagnaarf, engin handrit til að vera stolt yfir.“

Með þessa sögu að baki segir hann að Ísland eigi að ganga lengra í blöndun en nú er gert. „Með þessa forsögu í huga eigum við að stuðla að enn meiri innblöndun en við búum við í dag. Þannig verðum við ríkara og betra samfélag.“

Í færslunni skýtur hann einnig ádeilu á lokunarstefnu í innflytjendamálum. „Sú stefna að loka og læsa vistarverum er ávísun á óloft, sagga, myglu og vanlíðan. Látum ekki Ísland mygla, opnum glugga og hleypum ferskum vindum til landsins.“

Að lokum leggur Kristinn áherslu á að menningarverðmæti þjóðarinnar verði þó varin: „En fyrir alla muni verjum íslenskuna, okkar mikla djásn.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu