
Eysteinn Helgason er látinn. Hann var 77 ára gamall en Morgunblaðið greindi frá andláti hans.
Eysteinn fæddist í Reykjavík árið 1948. Hann gekk í Breiðagerðisskóla, Réttarholtsskóla og Verzlunarskóla Íslands og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1973.
Nokkrum árum eftir útskrift var hann ráðinn sem framkvæmdastjóri Samvinnuferða og var síðar ráðinn sem forstjóri Iceland Seafood í Bandaríkjunum. Hann var svo framkvæmdastjóri Plastprents í rúman áratug og var einnig síðar framkvæmdastjóri Kaupáss um langt skeið.
Eysteinn var mikill stuðningsmaður knattspyrnufélagsins Víkings og var meðal annars formaður handknattleiksdeildarinnar. Þá var hann lykilmaður í því að félagsheimili og íþróttahús félagsins var reist.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.
Komment