1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

5
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

6
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

7
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

8
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

9
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

10
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

Til baka

Ofbeldi og erótík í Breiðholti

Skrímslafræðingur mætir á svæðið

Gerðuberg
GerðubergÞarna verður fjör um helgina.
Mynd: Reykjavíkurborg

Laugardaginn 7. mars fer fram ráðstefnan Hryllingsflóðið – ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir á Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á hryllingsbókmenntir fyrir börn og unglinga.

Gestum verður boðið að sækja safnið og hlýða á fjölbreytt erindi auk þess að taka þátt í umræðum um hlutverk og stöðu bókmennta fyrir börn og ungmenni í samtímanum.

Eins og heiti ráðstefnunnar gefur til kynna er þema hennar í ár hryllingur í barna- og unglingabókmenntum. Aðstandendur ráðstefnunnar benda á að hryllingssögur hafi um aldir verið vinsælar meðal bæði barna og fullorðinna. Á síðari árum hafi áhugi á slíkum sögum aukist enn frekar, meðal annars með aukinni útbreiðslu hrekkjavöku í íslensku menningarlífi. Á haustin verði því oft vart við svokallað „hryllingsflóð“ í útgáfu bóka fyrir yngri lesendur.

Á ráðstefnunni munu nokkrir þekktir fræðimenn og rithöfundar flytja erindi. Þar á meðal eru Arngrímur Vídalín, skrímslafræðingur og dósent í íslenskum bókmenntum fyrri alda, auk rithöfundanna Hilmars Arnar Óskarssonar, Ævars Þórs Benediktssonar og Berglindar Írisar Sævarsdóttur. Í erindum sínum munu þau nálgast hryllinginn frá ólíkum sjónarhornum og meðal annars fjalla um ofbeldi, erótík og mörkin milli hrolls og húmors í bókmenntum fyrir unga lesendur.

Fundarstjóri ráðstefnunnar verður rithöfundurinn Elísabet Thoroddsen.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Dómurinn taldi skýringar hans verulega ótrúverðugar
Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Menning

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna
Menning

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna

Hugmyndin kviknaði af eigin reynslu Kristínar Guðmundsdóttur
Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu
Menning

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu

Góð bók gæti gert meira fyrir þig en þú heldur
Menning

Góð bók gæti gert meira fyrir þig en þú heldur

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“
Myndband
Menning

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“

Loka auglýsingu