1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

3
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

4
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

5
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

6
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

7
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

8
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

9
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

10
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

Til baka

Víglundur Þór Þorsteinsson er látinn

Kerti
Mynd: Shutterstock

Víglundur Þór Þorsteinsson læknir lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. febrúar síðastliðinn, 91 árs að aldri. Mbl.is sagði frá andlátinu.

Víglundur fæddist á Brekku 24. júlí árið 1934 og ólst upp í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Ingigerður Jóhannsdóttir húsfreyja og Þorsteinn Þ. Víglundsson, skólastjóri og sparisjóðsstjóri.

Á unglings- og menntaskólaárum vann Víglundur við ýmis störf, meðal annars verkamannavinnu, síldveiðar og landbúnaðarstörf. Hann lauk landsprófi frá Gagnfræðaskólanum vorið 1950, stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni árið 1954 og íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1955. Í kjölfarið starfaði hann sem kennari við Gagnfræðaskólann árin 1955–1956 og sinnti jafnframt þjálfun og íþróttakennslu á sumrin á árunum 1955–1958.

Víglundur lauk læknaprófi í febrúar 1964 og bandarísku útlendingaprófi í læknisfræði í mars sama ár. Á kandídatsári starfaði hann við sjúkrahús Vestmannaeyja, sem staðgengill héraðslæknis, auk starfa á sjúkrahúsum í Reykjavík. Hann hélt síðan til Bandaríkjanna til sérnáms, þar sem hann lauk bandarísku sérfræðingaprófi í læknisfræði og meistaranámi (MSc) við University of Minnesota. Hann hlaut almennt lækningaleyfi á Íslandi árið 1965 og sérfræðileyfi árið 1971.

Víglundur starfaði meðal annars við Jósefsspítala í Hafnarfirði og um tíma við Landakotsspítala. Hann rak jafnframt læknastofu í Læknastöðinni í Glæsibæ í Reykjavík og stundaði skurðlækningar kvenna í Handlæknastöðinni þar.

Hann tók virkan þátt í faglegu starfi lækna og sat í stjórn Félags íslenskra kvensjúkdómalækna á árunum 1981–1985, í stjórn Námssjóðs lækna 1981–1986 og í samninganefnd sérfræðinga innan Læknafélags Reykjavíkur 1985–1998. Víglundur var einn af stofnendum Handlæknastöðvarinnar í Glæsibæ árið 1983 og gegndi formennsku í stjórn hennar til ársins 1989. Þá var hann einnig formaður stjórnar Læknastöðvarinnar í Glæsibæ á árunum 1985–1998.

Á efri árum sinnti Víglundur meðal annars skráningu fróðleiks um Eyjar og Eyjafólk á vefnum Heimaslóð.is.

Eiginkona Víglundar var Fríða Jóhanna Daníelsdóttir, kennari og húsfreyja, sem lést árið 2023. Þau eignuðust fjögur börn: Sigrúnu, fædda 1960, Þorstein Inga, fæddan 1962, Víglund Þór, fæddan 1966, og Ásgerði Eddu, fædda 1971. Afkomendur þeirra eru sex barnabörn og sex langafabörn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Dagný Ósk Vestmann er látin
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

Flosi Kristinsson er fallinn frá
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

Sigurður Hafstein er fallinn frá
Minning

Sigurður Hafstein er fallinn frá

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu