Fallegt og vel skipulagt einbýlishús við Baughús 40 í Grafarvogi hefur verið settá sölu á 165 milljónir króna.
Húsið var byggt árið 1991 og státar af miklu og fallegu útsýni, sem er reyndar ekki sýnt á neinum myndum nema að mjög takmörkuðu leyti, ásamt björtum og rúmgóðum rýmum.
Eignin einkennist af aukinni lofthæð og stórum þakglugga sem gefur rýmunum góða og náttúrulega birtu. Skipulag hússins er fjölskylduvænt með fjórum til fimm svefnherbergjum, þremur stofum og tveimur baðherbergjum. Þá er einnig sér þvottahús í húsinu.
Garðurinn er rótgróinn og afgirtur til suðurs sem veitir bæði næði og góð skilyrði til útivistar. Þar er að finna timburverönd með skjólveggjum auk heits potts sem býður upp á notalegar stundir allt árið um kring.
Eignin er því vel til þess fallin fyrir fjölskyldur sem vilja rúmgott heimili í rólegu og vinsælu hverfi með meintu fallegu útsýni og góðu skipulagi.


Komment