1
Pólitík

Ari Edwald braut lög

2
Innlent

Meðlimir Dimmu saka Stefán um lygar

3
Minning

Elva Dagmar Simundsson er fallin frá

4
Innlent

Reyndi að flýja land með illa fengið fé

5
Fólk

Tannlæknir selur stóra íbúð í Mosó

6
Innlent

Íris „eltihrellir“ gengur laus

7
Fólk

Læknir og tónskáld selja á Akureyri

8
Innlent

Sævar Þór ógnaði lögreglumanni með hnífi

9
Heimur

Skelfilegt rútuslys á Kanaríeyjum

10
Innlent

Einn handtekinn vegna kynferðisbrots

Til baka

Gervigreindarfyrirtæki bauð Unu Stef fúlgu fjár fyrir rödd hennar

„Ég gæti orðið næsta Siri!“

Una Stef
Una StefUna Stef svaraði boðinu neitandi
Mynd: Instagram

Tónlistarkonan Una Stefánsdóttir eða Una Stef eins og hún kallar sig, segist hafa hafnað tilboði frá erlendu fyrirtæki sem vildi fá hana til að taka upp hundruð klukkustunda af tali og söng á íslensku til að þjálfa gervigreindarkerfi.

Una greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún segir fyrirtækið hafa haft ítrekað samband við sig.

„Það er erlent fyrirtæki búið að hafa ítrekað samband við mig til þess að fá mig til að vinna fyrir sig. Ég á að taka upp hundruði klukkutíma af sjálfri mér að tala íslensku og sömuleiðis á ég að syngja enn fleiri klukkutíma af efni á íslensku,“ skrifar hún.

Markmiðið hafi verið að þjálfa gervigreind til að tala og syngja á íslensku og mögulega nota rödd hennar í framtíðinni.

„Jú, þeir vilja þjálfa AI módelið sitt til þess að læra íslensku og að öllum líkindum kaupa svo réttinn á að nota röddina mína í vöruna sína. Ég gæti orðið næsta Siri! Nema alíslensk OG syngjandi!“

Að hennar sögn var henni boðið mjög há greiðsla fyrir verkefnið en hún segist ekki hafa þurft að hugsa sig lengi.

„Fyrir þetta er mér boðið heeeeeellingur af peningum en ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um. Svarið er nei.“

Una segir að hún vilji ekki að rödd hennar verði notuð á opinberum vettvangi þar sem hún hafi enga stjórn á því í hvaða samhengi hún birtist.

„Ég vil ekki selja röddina mína á opinberan vettvang þar sem hver sem er getur notað hana í hvað sem er,“ skrifar hún og bendir á að röddin gæti jafnvel verið notuð í auglýsingar eða efni sem hún vilji ekki tengjast.

Hún segir söngrödd sína vera afrakstur margra ára vinnu og reynslu og vill ekki að gervigreind læri að endurgera hana.

„Ég er búin að eyða mörgum árum, peningum, tíma í námi, á sviði og í hljóðveri til þess að æfa söngröddina mína og verða að söngkonunni sem ég er í dag.“

Í færslunni hvetur hún aðra listamenn til að íhuga vel áður en þeir samþykkja sambærileg tilboð og spyr: „Hvers virði er röddin ykkar?“

Una segir jafnframt að hún hafi áhyggjur af áhrifum gervigreindar á tónlistariðnaðinn og kallar eftir skýrari reglum.

„Það vantar skýrari lagaramma í kringum hvað má og hvað má ekki,“ skrifar hún og segir að nú þegar sé gervigreind notuð til að búa til tónlist fyrir auglýsingar, sjónvarp og streymisveitur.

Hún segir þó að hún sé ekki andvíg gervigreind í sjálfu sér.

„Að því sögðu þá er ég enginn AI hater,“ skrifar hún og segir tæknina geta verið gagnlega, svo lengi sem hún vinni með listafólki en taki ekki vinnuna af því.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Brynjar Níels ýtir undir samsæriskenningu
Pólitík

Brynjar Níels ýtir undir samsæriskenningu

Þingmaðurinn fyrrverandi ætlar sér í borgarstjórn
„Þar var ég næstum því dauður“
Myndband
Fólk

„Þar var ég næstum því dauður“

Yfirvöld í Sádí-Arabíu tóku sjö manns af lífi á einu degi
Heimur

Yfirvöld í Sádí-Arabíu tóku sjö manns af lífi á einu degi

Aðkomumaður hrækti í andlit lögreglumanns á Akureyri
Innlent

Aðkomumaður hrækti í andlit lögreglumanns á Akureyri

Linda Ben í góðum gír í sólinni
Myndir
Fólk

Linda Ben í góðum gír í sólinni

Kona ráðin aðalþjálfari karlaliðs í efstu deild Þýskalands
Sport

Kona ráðin aðalþjálfari karlaliðs í efstu deild Þýskalands

Læknir og tónskáld selja á Akureyri
Myndir
Fólk

Læknir og tónskáld selja á Akureyri

Ari Edwald braut lög
Myndband
Pólitík

Ari Edwald braut lög

Hélt persónuupplýsingum sínum leyndum
Innlent

Hélt persónuupplýsingum sínum leyndum

Einn handtekinn vegna kynferðisbrots
Innlent

Einn handtekinn vegna kynferðisbrots

Nemandi grunaður um morðtilraun í skólanum
Heimur

Nemandi grunaður um morðtilraun í skólanum

Fundu þrjú tonn af kóki í meintri bananasendingu
Myndir
Heimur

Fundu þrjú tonn af kóki í meintri bananasendingu

Meðlimir Dimmu saka Stefán um lygar
Innlent

Meðlimir Dimmu saka Stefán um lygar

Fólk

„Þar var ég næstum því dauður“
Myndband
Fólk

„Þar var ég næstum því dauður“

Grínistinn og skáldið Dóri DNA opnar sig um slæma lífsreynslu
Eitt dýrasta hús Íslands lækkað talsvert í verði
Myndir
Fólk

Eitt dýrasta hús Íslands lækkað talsvert í verði

Linda Ben í góðum gír í sólinni
Myndir
Fólk

Linda Ben í góðum gír í sólinni

Læknir og tónskáld selja á Akureyri
Myndir
Fólk

Læknir og tónskáld selja á Akureyri

Tannlæknir selur stóra íbúð í Mosó
Myndir
Fólk

Tannlæknir selur stóra íbúð í Mosó

Jakob fær rúmar fimm milljónir
Fólk

Jakob fær rúmar fimm milljónir

Loka auglýsingu