
Corey Feldman, sem lék meðal annars í kvikmyndum á borð við Stand by me, The Goonies og The Lost Boys, tók þátt í 34. þáttaröð Dancing With the Stars á dögunum. Eftir að hann datt úr úr keppninni í annari viku þáttanna hefur hann nú opnað sig um upplifun sína en Corey segir andrúmsloftið oft verið eitrað á bakvið tjöldin.
„Það var mikið um heimskulega dramatík og skítkast sem fór fram á bakvið tjöldin,“ sagði hann í viðtali í útvarpsþættinum Gurvey’s Law sem Daily Mail birti í dag. „Þar á staðnum var allt frábært. En allt þetta drama og bull sem fólk er að kasta fram á bakvið tjöldin, ég hef aldrei séð neitt þessu líkt.“
54 ára Feldman, sem dansaði með atvinnudansaranum Jennu Johnson í þáttunum, segir að þótt samskiptin á tökustað hafi verið góð, hafi það ekki alltaf átt við bakvið tjöldin.
„Þú byrjar að lesa í blöðunum,“ hélt hann áfram. „‘Þessi er reiður út í þennan.’ ‘Þessir tala ekki saman.’ ‘Corey Feldman eyðilagði þáttinn. Hann eyðilagði allan þáttinn því hann var svo mikill egóisti og erfitt að vinna með honum.’“
Corey svaraði einnig fullyrðingum Maksim Chmerkovskiy, mági Jennu, sem sagði við Daily Mail að Jenna hefði átt „svolítið erfitt uppdráttar með Corey“ eftir brottför þeirra í september.
„Ég spurði Jennu, ‘Hvaðan kemur þetta?’“ rifjaði Corey upp. „Hún ranghvolfdi augunum og sagði: ‘Þetta er bara Maks. Ekki taka mark á honum. Hann vill bara athygli.’“
Sögusagnir um ósætti milli Corey og Jennu komu upp strax eftir að leikarinn var kynntur í leikmannahópinn, en Feldman hefur lagt áherslu á að hann sé þakklátur fyrir samstarfið.
Daginn eftir brottför þeirra skrifaði hann athugasemd á Instagram síðu Jennu: „Takk Jenna! Þú varst alveg einstök að vinna með. Mér þykir leitt að fjölmiðlar séu að skapa falska mynd af því að tíminn okkar saman hafi verið eitthvað annað en ánægjulegur.“

Komment